Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2007, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 04.12.2007, Qupperneq 54
34 4. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR > KRYDDPÍURNAR AF STAÐ Fyrstu tónleikarnir á ferða- lagi Kryddpíanna um heiminn fóru fram í Vancouver á sunnu- dag við góðar undirtektir tón- leikagesta. David Beckham var einn tónleikagesta og gaf stúlkun- um fimm armbönd til minnis um þennan merkisatburð. folk@frettabladid.is Ashlee Simpson er á meðal þeirra stjarna sem hafa gengið í lið með tímaritinu Seventeen í átaki sem miðar að því að breyta hugarfari ungra stúlkna hvað varðar óánægju með líkamsvöxt. Aðrar stjörnur eru Fergie og Brittany Snow úr Hairspray, sem sjálf hefur átt við átröskun að stríða. Ashlee gæti þó orðið umdeild, því hún lét gjörbreyta útliti sínu með lýtaaðgerðum á síðasta ári og telst því tæplega góð fyrirmynd. FRÉTTIR AF FÓLKI Faðir Amy Winehouse, leigubílstjórinn Mitch, lét verkin tala í síðustu viku, þegar hann réðst á Pete Doherty. Atvikið átti sér stað eftir tónleika Amy í Brixton, þegar Mitch rakst á Babyshambles-söngvarann baksviðs. Samkvæmt heimildum The Sun er faðir Winehouse þreyttur á drengjum sem hafa slæm áhrif á dótturina. Fregnir bárust þar af auki af því á dögunum að Doherty væri í símasambandi við Amy nánast upp á dag, en hann sagðist vera að hjálpa henni að koma fótunum undir sig á nýjan leik. Mitch Winehouse virðist þó ekki hafa verið sannfærður um hæfileika Doherty sem ráðgjafa. Samkvæmt The Sun réðst Mitch á Doherty með hnefana á lofti og þar að auki með gítar á vopni. „Hann sagði honum að láta Amy vera, og sagði að hann væri síðasta manneskjan sem hún þyrfti á að halda eins og er,“ segir heimildarmaður The Sun. „Pete var glottandi þangað til Mitch sneri sér við og kýldi hann,“ segir hann. Fjölskylda Winehouse vill nú fara með dótturina á öruggan stað yfir jól og nýár, og að sögn The Sun kemur Flórída sterkt inn. Eiginmaður Winehouse situr í fangelsi, og verður ekki sleppt fyrir jól. Faðir Amy réðst á Doherty FLÓRÍDAJÓL Fjöl- skylda Amy Winehouse vill fara með hana til Flórída yfir hátíð- arnar til að jafna sig í ró og næði. EKKI BESTI RÁÐGJAFINN Faðir Amy Winehouse er ekki par hrifinn af því að Doherty skipti sér af lífi dóttur hans, og sló til hans í síðustu viku. Britney Spears fagnaði 26 ára afmæli sínu í kynning- arpartíi fyrir Scandinavian Style Mansion í Hollywood á sunnudaginn. Söngkonan sannaði við sama tækifæri að hún getur verið ansi fingralöng. Britney Spears og Paris Hilton voru á meðal gesta í kynningar- partíi fyrir Scandinavian Style Mansion á sunnudaginn, en mark- mið fyrirtækisins er að kynna skandinavíska hönnun í Holly- wood. Sharon Stone var gestgjafi kvöldsins, sem var sótt af um 400 gestum. Sagt er frá atburðum kvöldsins á vefsíðu sænska dag- blaðsins Aftonbladet, sem var við- statt fögnuðinn. Britney varð 26 ára gömul á sunnudag og á miðnætti var henni því færð súkkulaðikaka með nafni hennar á. Hún lét skort á hnífapör- um ekki stöðva sig og notaði guðs- gafflana til að sleikja krem af kökunni. Hún hafði áður notað þá til enn vafasamra athafna. Á meðal þeirra sem sýndu vörur sínar í partíinu var merkið Berg- lund of Copenhagen. Britney hreifst af hvítum jakka úr leðri og pelsi. Hún gerði sér lítið fyrir, tók einn fyrir sig og þrjá fyrir vini sína og yfirgaf svæðið, hönnuðin- um Katja Berglund til undrunar. „Sharon Stone keypti jakka. Britney tók fjóra án þess að borga,“ sagði hún hissa. Jakkinn var verð- lagður á andvirði um 430 þúsund íslenskra króna, og tók Britney því vörur fyrir andvirði ríflega 1,7 milljóna íslenskra króna. Ekki kemur fram hvort Katja Berglund hyggist grípa til ein- hverra aðgerða eða hvort hún mun líta á missi jakkanna sem rándýra afmælisgjöf til Britneyjar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sögur berast af fingralengd hinnar forríku söngkonu. Í síðustu viku greindi tímaritið Us Weekly frá því að Britney hefði stolið hár- kollu úr Hustler-versluninni í West Hollywood, sem selur misdjörf nærföt og þvíumlíkt. Eftir að söng- konunni var neitað um að máta nærfatastafla, þar sem búðin leyfir það aldrei, skipti hún skapi og reif sig úr eigin fötum úti á miðju gólfi til að máta nærbuxur úr búðinni. „Þetta var eins og að eiga við barn,“ sagði einn afgreiðslumaður við Us Weekly. Britney varð ekki heldur vel við þegar henni var sagt að greiða fyrir vörur sínar en lét sig hafa það. Í staðinn lét hún til sín taka á leið út. „Hún fór upp að gínu, reif hárkolluna af höfði hennar og stal henni!“ segir heimildarmaður Us Weekly. Britney er þjófur JAKKINN GÓÐI Britney Spears tók fjóra jakka ófrjálsri hendi í kynningarpartíi fyrir Scandinavian Style Mansion á afmælisdegi sínum á sunnudag. NORDICPHOTOS/GETTY Yamaha RX-V661 7 x 90W, RMS (7.1) SCENE 3 x HDMI,1080p stuðningur iPod Ready Verð 69.995 kr. Er hljóðið jafnstórt PIPA R • S ÍA • 7 2 3 1 9
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.