Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2007, Qupperneq 55

Fréttablaðið - 04.12.2007, Qupperneq 55
ÞRIÐJUDAGUR 4. desember 2007 35 Lindsay Lohan vinnur nú að þriðju plötu sinni og samkvæmt föður hennar, Michael Lohan, vonast hún til að njóta aðstoðar 50 Cent við gerð plötunnar. „Þau eru að ræða mögu- leika á samstarfi. Það hefur ekkert verið ákveðið enn, en þau eru að tala saman,“ segir Michael við Life and Style. „Þau hafa reyndar þekkst í dálítinn tíma, bara í gegnum það að vera í sama bransa og hittast á ýmsum uppákomum,“ segir hann. Lindsay hefur áður sent frá sér plöturnar Speak, sem kom út árið 2004, og A Little More Per- sonal (Raw), sem kom út ári síðar. Fyrsta smáskífan af seinni plötunni bar heitið Confessions of a Broken Heart (Daughter to Father), en þar sendi Lindsay einmitt áður- nefndum föður sínum tón- inn fyrir allan þann sárs- auka sem hann hafði valdið fjölskyldunni. Feðginin virðast hafa náð sáttum á ný, eftir að Michael heimsótti dóttur sína á með- ferðarheimilið sem hún dvald- ist á í Utah fyrr á árinu. Það er því spurning hvort textar á nýrri plötu verði jafn grimmi- legir í hans garð. 50 Cent aðstoðar Lindsay Lohan Joey Chestnut er 24 ára gamall Bandaríkjamaður sem hefur atvinnu af því að stunda kappát. Nýlega setti hann nýtt heimsmet í hamborgaraáti þegar hann torgaði 108 slíkum á aðeins átta mínútum. Einhverjir kynnu að halda að Joey þessi væri yfir meðallagi þungur, en svo er þó alls ekki. Eins og gefur að skilja er þyngd hans nokkuð rokkandi en þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum þrekraunir á borð við að borða 108 hamborg- ara í einum rykk hefur Joey aldrei mælst yfir 90 kíló. Joey uppgötvaði áthæfileika sína fyrir tilviljun árið 2005 þegar hann var plataður til þess að taka þátt í árlegu aspas-kappáti Háskólans í San Jose, sem hann stundaði þá nám við. Joey át 3,5 kíló af aspas á ellefu mínútum og komst að því að magi hans er einstaklega rúmgóð- ur, auk þess sem vélinda hans er óvenju teygt og veldur því að hann getur troðið mun stærri bitum ofan í sig en eðlilegt getur talist. Á síð- ustu tveimur árum hefur Joey sett fjölmörg heimsmet í kappáti og er nú svo komið að hann hefur fulla atvinnu af því að taka þátt í átkeppnum víða um heim. Nýjasta afrek Joey er heimsmet sem hann setti í lok október, þegar hann borðaði 108 hamborgara á rétt tæpum átta mínútum og sló fyrra metið um 11 borgara. Að meðaltali var Joey því rúmar 4,5 sekúndur með einn hamborgara. „Kappát snýst alls ekki um matar lyst eða magastærð heldur miklu frekar um tækni,“ segir Joey, spurður um ástæður vel- gengni sinnar, en hann er lang- stigahæstur á heimslista IFOCE, alþjóðlegu kappátssamtakanna. Joey tekur starf sitt mjög alvar- lega og segir það alls ekkert grín að innbyrða svona mikinn mat á jafnstuttum tíma. „Fullt af fólki telur að kappát sé bara grín, en það verður að átta sig á því hvað við erum að leggja á líkama okkar. Á þessum átta mínútum ögra ég líkamanum á mér eins mikið og hægt er og það tekur hann langan tíma að jafna sig.“ vignir@fretta- bladid.is Hefur atvinnu af því að borða hratt TROÐIÐ OFAN Í SIG Joey Chestnut segist leggja lífið undir í hverju einasta kappáti sem hann tekur þátt í – svo mikil séu átökin og álagið sem hann setur á líkamann. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES HEIMSMET Í EIGU JOEY Kjöt: 4 kíló af rifnu svínakjöti á 12 mínútum, 3,8 kíló af svínarifjum á 12 mínútum, 182 kjúklingavængir, samtals 3,2 kíló, á 12 mínútum. Vorrúllur: 212 kjúklinga- og grænmetisvorrúllur á tíu mínút- um. Samlokur: 59 hnetusmjörssamlokur á 10 mínút- um, 47 grillaðar ostasamlokur á 10 mínútum. Pylsur: 66 pylsur á 12 mínútum. Hamborgarar 108 hamborgarar á 8 mínútum. AÐSTOÐARMAÐUR LOHAN Samkvæmt Michael Lohan eiga Lindsay og 50 Cent nú í viðræðum um mögulegt samstarf. NÝ PLATA Lindsay Lohan vinnur nú að gerð þriðju plötu sinnar, en hún hefur áður sent frá sér plöturnar Speak og A Little More Personal. Yamaha RX-V861 7 x 105W, RMS (7.1) SCENE 3 x HDMI, 1080p stuðningur Uppskölun í HDMI: 1080i iPod Ready Verð 94.995 kr. og myndin? Ármúli 26 / Sími 522 3000 / www.hataekni.isOpnunartími: virka daga 9-18 | laugardaga 12-17 Yamaha RX-V3800 7 x 140W, RMS (7.1) Dolby TrueHD og DTS-HD Master Audio 5 x HDMI 1.3a / LAN tengi / USB tengi Uppskölun í HDMI: 1080p Full HD iPod Ready Verð 179.995 kr. Með Yamaha heimabíómagnara færðu enn kröftugri hljómburð úr stóra flatskjánum þínum. Stór mynd og öflugt hljóð haldast í hendur. Tengdu líka DVD-tækið og flakkarann við magnarann og síðan magnarann við sjónvarpið. Þá verður allt magnað! Piparkökur (fígúrur, kökuhús)150 g smjör 150 g púðursykur 1 1/2 dl síróp engifer á hnífsoddi 3 tsk. kanill 1/2 tsk. negull 2 tsk. natron 1 egg 5-600 g hveiti Setjið öll hráefni í pott nema egg og hveiti.Hrærið stöðugt í þar til suðan kemur upp.Dragið pottinn af hellunni. Blandið eggi oghveiti út í. Setjið deigið á borð, hnoðið og fletjiðsíðan út á bökunarplötu. Leggið sniðin ofaná og skerið út. Bakið við 200°C í u.þ.b. 10 mín.Takið af plötunni á meðan kökurnar eruvolgar. Skreytið me glassúr. Límið húsiðsaman með bræddum sykri. Þessi uppskrifter tilvalin í myndakökur. Glassúr: Setjið 1 eggjahvítu í skál og sigtiðflórsykur út í smátt og smátt. Hrærið vel þartil glassúrinn verður seigfljótandi og drýpurhægt af tannstöngli.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.