Fréttablaðið - 04.12.2007, Side 59

Fréttablaðið - 04.12.2007, Side 59
ÞRIÐJUDAGUR 4. desember 2007 HANDBOLTI Axel Stefánsson mun hætta að þjálfa norska liðið Elverum í vor en félagið vill ekki endurnýja samninginn við hann. Axel fékk þessi svör þegar hann vildi fá að vita um framtíðar- áform félagsins. „Þetta var ekki óskatímasetn- ingin fyrir að gefa þetta út en það má alveg lesa það út frá þessu að við séum ekki hundrað prósent ánægðir fyrst við viljum ekki semja við hann áfram,“ sagði Aril Tronslien, yfirmaður íþróttamála hjá félaginu, í viðtali við norska blaðið Ostlendingen. „Ég vildi fá svör bæði vegna fjölskyldu minnar og vegna námsins,“ sagði Axel í viðtali við sama blað en hann mun búa áfram í Elverum á meðan hann klárar sitt nám í íþróttafræðum. - óój Axel Stefánsson í Noregi: Hættir þjálfun Elverum í vor FÆR EKKI NÝJAN SAMNING Axel Stefáns- son hættir í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Vandræðagemlingurinn Joey Barton, leikmaður New- castle, ítrekaði í viðtali við BBC í gær að hann hræddist ekki fangelsisvist yrði hann dæmdur sekur fyrir árás á Ousmane Dabo, fyrrverandi samherja hans hjá Manchester City. „Ef ég fer í fangelsi fyrir að verja mig, þá stendur mér vitanlega ekki á sama, þar sem ég er þess fullviss um að ég gerði ekkert rangt. Ég er ekki vondur maður þó svo að ég hafi ef til vill slæmt orð á mér og ég held að fólk sé búið að dæma mig fyrir fram án þess að vita hvort ég sé sekur eða saklaus í þessu máli. Einn dag get ég leyst frá skjóð- unni um hvað átti sér stað í raun og veru,“ sagði Barton. Réttarhöld í málinu fara líklega fram í júní á næsta ári og ef Barton verður dæmdur sekur getur hann átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsisvist. - óþ Enska úrvalsdeildin: Barton kveðst vera saklaus HARÐJAXL Joey Barton hefur orð á sér fyrir að vera harður í horn að taka. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.