Fréttablaðið - 21.12.2007, Page 11
FÖSTUDAGUR 21. desember 2007 11
Eldur í Hljómskálagarðinum
Eldur kom upp í Hljómskálagarðinum
í Reykjavík um fimmleytið í gær. Kom
eldurinn upp í leiktækjum en að sögn
slökkviliðsmanna var eldurinn ekki
mikill. Til öryggis voru dælubíll og
sjúkrabílar sendir á staðinn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Nýr skrifstofustjóri
Regína Ásvaldsóttir verður ráðin nýr
skrifstofustjóri borgarstjórnar. Regína
var nú síðast sviðsstjóri þjónustu- og
rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar. Hún
var valin úr hópi sex umsækjenda.
REYKJAVÍKURBORG
SAMFÉLAGSMÁL Algengasta búsetuform á
landinu er að fólk búi eitt. Kjarnafjölskyldan,
fólk með börn, er nú næstalgengasta búsetu-
formið. Þetta kemur fram í rannsókn Hagstof-
unnar fyrir árin 2004 til 2006.
Hlutfall einhleypingsheimila á höfuðborgar-
svæðinu er nú 35 prósent, en 33,7 prósent á
landinu öllu. Þetta hlutfall er minna í bæjum á
landsbyggðinni og minnst í sveitum. Þar er
algengast að fólk búi saman og með börnum
sínum.
Áður voru pör með börn algengasta
heimilisformið, en þau eru nú 33 prósent
heimila.
Eitt af hverjum tíu heimilum er heimili
einstæðs foreldris. Hlutfallið er hæst á
höfuðborgarsvæðinu, rúm ellefu prósent, en
lægst í sveitum, rúm sjö prósent.
Barnlaus pör fylla tæpan fimmtung heimila
á landsvísu og rúm fjögur prósent heyra til
annars konar heimilisgerð, segir Hagstofan.
Þegar rýnt er í tölur um heimilisreksturinn
kemur á daginn að útgjöld einhleypra eru
hlutfallslega hæst. Þeir eyða til dæmis að
jafnaði meiru á mann í síma og önnur
fjarskipti, íþróttir, fjölmiðla og happdrætti og
veitingar.
Einhleypir eyða líka um efni fram, eða að
jafnaði næstum fimm prósentum meira en
þeir afla. - ikh / Sjá Markaðinn síðu 12
Rannsókn Hagstofunnar sýnir að algengast er að fólk búi eitt:
Kjarnafjölskyldan ekki stærst
AKRANES Verkalýðsfélag Akraness
hefur skorað á bæjarráð Akra-
ness að greiða starfsmönnum
Akraneskaupstaðar 30 þúsund
króna jólabónus
líkt og starfs-
menn Hafnar-
fjarðarbæjar
fá. Einnig hefur
félagið skorað á
bæjarráðið að
skoða með
jákvæðum hug
launahækkanir
til tekjulægstu
starfsmanna
sveitarfélag-
anna á höfuð-
borgarsvæðinu.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, hefur
átt fund með bæjarráði til að
ræða þessi mál. Í frétt á vefsíðu
félagsins segir að bæjarráðið ætli
að skoða málin. „Nú er bara að
vona að þeir fylgi fordæmi
sveitarstjórnarmanna á höfuð-
borgarsvæðinu og geri vel við
sína starfsmenn öllum til heilla,“
segir þar. - ghs
Verkalýðsfélag Akraness:
Vill 30 þúsund í
jólabónus
VILHJÁLMUR
BIRGISSON
STJÓRNMÁL Samgönguráðherra,
Kristján Möller, hefur skipað
nefnd sem ætlað er að endur-
skoða umferðar-
lögin en
núgildandi lög
eru að stofni til
frá 1987.
Meðal þess
sem á að skoða
er tekjutenging
sekta vegna
umferðarlaga-
brota og hvort
setja beri
áfengislása í
bíla til að koma í veg fyrir
ölvunarakstur.
Róbert Spanó, lagaprófessor
við Háskóla Íslands, er formaður
nefndarinnar en aðrir nefndar-
menn eru Jón Haukur Edwald,
Karl Ragnars, Gunnar Narfi
Gunnarsson, Ólafur Guðmunds-
son og Kolbrún Sævarsdóttir. - bþs
Umferðarlög endurskoðuð:
Áfengislásar og
tekjutengdar
sektir í skoðun
RÓBERT SPANÓ
INDLAND, AP Eðlisfræðikennari
sem grunaður er um að hafa agað
ódæla nemendur með því að gefa
þeim raflost hefur verið handtek-
inn, að því er yfirvöld á Indlandi
greindu frá á miðvikudag.
Kennarinn notaði víra tengda
rafhlöðum til að gefa áttundu-
bekkingum væg raflost í skóla í
bænum Bhusaval. Atvikið átti sér
stað á laugardag þegar kennarinn
sagði nemendum að mæta á
tilraunastofu skólans til að gera
tilraunir en þótti þeir hegða sér
illa.
Kennarinn á yfir höfði sér allt
að tveggja ára fangelsi verði
hann sakfelldur. - sdg
Indverskur eðlisfræðikennari:
Gaf nemendum
sínum raflost
BÆJARSTJÓRAHJÓNIN Í BOLUNGARVÍK ÁSAMT BÖRNUM
Nú er algengast að fólk búi eitt.
HEIMILISGERÐIR
Einhleypir 33,7%
Barnlaust sambýlisfólk 18,9%
Sambýlisfólk með börn 33,0%
Einstæðir foreldrar 10,0%
Önnur heimilisgerð 4,3%
Heimild: Hagstofa Íslands