Fréttablaðið - 21.12.2007, Side 28
28 21. desember 2007 FÖSTUDAGUR
taekni@frettabladid.is
TÆKNIHEIMURINN
Vefurinn: The Onion
Bandarísk húmorsíða með meinfyndnum
fréttum. Líklega ein af fyrirmyndum
Baggalútsdrengjanna.
www.theonion.com
Tónlistarleikurinn Guitar
Hero III er jólaleikurinn í
ár. Hann selst í bílförm-
um og er uppseldur í
mörgum leikjaverslun-
um.
Í leiknum er spilarinn í hlut-
verki rokkstjörnu, og sér um
að spila undir á gítar í ýmsum
frægum rokklögum. Til þess
notar hann sérstakan plastgít-
ar sem fylgir með leiknum,
með því að ýta á takka á
hálsinum og slá á „streng-
ina“ í takt við lagið.
Meðal hljómsveita sem
eiga lög í leiknum eru
Guns N‘ Roses, Metallica,
The Rolling Stones,
Weezer, Slayer og
Dragon force. Alls er
hægt að spila yfir sextíu
lög.
Leikurinn er til fyrir allar
helstu leikjatölvurnar: Xbox
360, Wii, Playstation 3 og Play-
station 2, en auk þess er hann til
fyrir PC-tölvur. Hann kostar á
milli níu og tíu þúsund krón-
ur með gítarnum, en hægt er
að kaupa leikinn án gítars ef
menn eiga slíkan fyrir.
„Guitar Hero stoppar varla
í búðunum hjá okkur, við feng-
um fimm bretti send með flugi á
mánudaginn og þau voru uppseld
á þriðjudag,“ segir Gunnar Ingv-
arsson, vörustjóri hjá BT. „Við
gætum hafa selt fimmfalt meira
af honum ef framboðið væri
meira. Í dag koma fimm bretti í
viðbót, og ég býst fastlega við að
þau seljist upp á morgun.“
Örn Barkarson, innkaupastjóri
afþreyingar hjá Elko, tekur í sama
streng. „Guitar Hero er alveg
hrikalega stór fyrir þessi jól, hann
er uppseldur hjá okkur og búinn
að vera það í ágætis tíma,“ segir
hann. Það er mikið verið að kaupa
leikinn í jólagjafir, en svo sjáum
við líka fólk kaupa þetta fyrir sig
sjálft.“
Hann segist sjálfur hafa prófað
leikinn og finnist hann skemmti-
legur. „Þetta er fín afþreying og
góður partíleikur. Í rauninni er
hann svipaður og Buzz-spurninga-
leikirnir og Singstar, bara enn
einn leikurinn í þá flóru.“
Rokkstjörnuhermir undir
jólatrjám leikjaunnenda
Leopard, sjötta útgáfa Mac OS X
stýrikerfisins, hefur selst betur á
fyrsta mánuði eftir útgáfu en
nokkuð annað stýrikerfi frá
Apple. Meira en tvær milljónir
stýrikerfisins seldust í nóvember,
en það kom út í lok október.
Viðtökurnar koma sér mjög vel
fyrir Apple því helsti keppinaut-
urinn, Windows Vista, hefur
hlotið dræmar móttökur. - sþs
Tvær milljónir í nóvember:
Leopard rýkur
úr hillunum
Forsvarsmenn bandaríska
skráaskiptavefjarins TorrentSpy,
þar sem hægt er að nálgast
kvikmyndir, tónlist, tölvuleiki og
annað höfundarréttarvarið efni,
hafa tapað dómsmáli sem snýst
um höfundarréttarbrot. Samtök
rétthafa kvikmynda í Bandaríkj-
unum, MPAA, kærðu vefinn.
Höfundarréttarsamtökin þurftu
ekki að sanna að um höfundar-
réttarbrot væri að ræða, því
forsvarsmenn síðunnar urðu ekki
við beiðnum um að varðveita
sönnunargögn heldur eyddu
þeim. Þar með féll dómurinn
sjálfkrafa höfundarréttarsamtök-
unum í vil.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu var lögbann sett á
stærsta skráaskiptavef landsins,
Torrent.is, hinn 19. nóvember og
honum lokað. Samtök myndrétt-
hafa á Íslandi, Smáís, lögðu fram
lögbannskröfuna sem sýslu-
maðurinn í Hafnarfirði féllst á. - sþs
Sjálfkrafa dæmdir sekir fyrir að eyða sönnunargögnum:
Torrentvefur tapar
í dómsmáli vestra
Duke Nukem sýnishorn
Leikjaunnendur gripu andann á lofti í vikunni þegar nýtt sýnis-
horn skotleiksins Duke Nukem Forever fór í dreifingu á netinu.
Leikurinn, sem er búinn til af 3D Realms, hefur verið í
framleiðslu í tíu ár og er ókrýndur konungur þeirra tölvu-
leikja sem ætla aldrei að koma út. Enginn útgáfudagur
er þó tiltekinn í sýnishorninu, sem sýnir Duke reykjandi
vindil á bekkpressubekk.
Firefox 3 fer í aðra betu
Ný tilraunaútgáfa Firefox 3 vafrans kom út síðasta
þriðjudag. Meðal annars er búið að laga fjölda minn-
isleka sem eru til staðar í Firefox 2 og gera vafrann
hraðari í notkun. Hægt er að ná í Firefox 3 Beta 2 á
vefnum, en hafa skal í huga að útgáfan er aðeins hugsuð
til prófana og inniheldur mögulega villur.
Ár stjörnufræðinnar 2009
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt
að árið 2009 verði alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar. Þá
verður haldið upp á einn mikilvægasta atburð í sögu
raunvísinda, þegar Galíleó Galílei beitti sjónauka fyrstur
manna til rannsókna í stjörnufræði.
Farsími vegna öryggis
Foreldrar vilja að börnin sín séu með farsíma öryggis-
ins vegna. 78 prósent þeirra 339 foreldra sem tóku
þátt í rannsókn sögðust íhuga að kaupa farsíma handa barni sínu svo þeir
gætu náð sambandi við það í neyð. Þrettán prósent sögðust vilja að börnin
sín héldu sambandi við vini og fjölskyldu, og sex prósent viðurkenndu að þeir
íhuguðu að kaupa farsíma handa barninu sínu af því að það hefði beðið um
hann.
Amitelo semur við ZTE
Svissneska farsímafyrirtækið Amitelo, sem hyggst
koma upp farsímaþjónustu hérlendis á næsta ári,
hefur samið við kínverska fyrirtækið ZTE um sam-
starf við fjármögnun og uppbyggingu GSM-kerfisins
á Íslandi. Amitelo hefur verið í fréttum að undanförnu
vegna gruns um að fyrirtækið hafi framvísað falsaðri
bankaábyrgð við útboð á uppbyggingu GSM-kerfis á
landsbyggðinni.
Tunglið yngra en talið var
Tunglið okkar er þrjátíu milljónum ára yngra en hingað til hefur verið talið.
Það varð ekki heldur til þegar loftsteinn á stærð við Mars rakst á jörðina,
heldur myndaðist það úr hluta jarðarinnar sem brotnaði frá henni sextán
milljónum ára eftir að kjarni jarðar myndaðist. Þetta er niðurstaða vísinda-
manna við svissnesku vísindastofnunina í Zürich, sem er greint frá á vef
vísindatímaritsins New Scientist.
ThinkSecret lokað
Vefnum ThinkSecret, þar sem birst hafa sögusagnir um nýjar Apple-vörur,
hefur verið lokað. Þetta var gert í samráði við Apple, skrifar útgefandinn Nick
Ciarelli í síðustu fréttinni á vefnum. Með því lýkur málsókn sem Apple hóf
gegn ThinkSecret vegna þess hve vefurinn birti oft fréttir um hluti sem áttu að
heita trúnaðarmál innan fyrirtækisins.
ROKKAÐ FEITT Hægt er að spila sem Slash, gítarleikarinn í Guns N‘ Roses, í Guitar Hero III, auk annarra persóna. Yfir sextíu lög
eru í leiknum, flest þeirra upprunalegar upptökur.
„Það er margt að gerast hjá okkur þessa dagana, um
áramótin erum við að setja á fót nýja þjónustu sem
breytir áherslunum okkar svolítið,“ segir Frosti
Heimisson, framkvæmdastjóri OpenHand. „Þannig
förum við úr því að vera í samkeppni við til dæmis
BlackBerry og yfir í eins konar sérlausnahluta.“
OpenHand sérhæfir sig í samskiptalausnum
fyrir farsíma, og býr til hugbúnað sem gerir fólki
kleift að nálgast tölvupóst, dagatal og tengiliðalista
í gegnum farsímann. Frosti segir að eftir ára-
mót verði einnig hægt að búa til sérhæfðari
forrit fyrir farsímann, eins og til dæmis sölu-
kerfi eða tímaskráningakerfi.
„Við erum búnir að vera að vinna með
þetta kerfi í langan tíma, en opinbera
útgáfan kemur út um áramótin. Við
erum til dæmis núna að vinna verkefni í
Suður-Afríku þar sem allt að níu þúsund
starfsmenn á vegum ríkisstjórnarinnar þar munu nota
OpenHand lausn til að skrá niður íbúa og aðstoða þá
við að sækja ýmsa þjónustu á vegum ríkisins. Síðan
erum við líka í samstarfi við flutningafyrirtæki, fjár-
málastofnanir, banka, opinberar stofnanir og fleiri um
mögulegar lausnir í farsíma sem veittu aðgang að innri
kerfum fyrirtækisins.“
Frosti bætir við að OpenHand hafi nýlega tekið upp
hina svokölluðu tuttugu prósenta reglu, sem Google
gerði fræga. Hún felst í því að starfsmenn OpenHand
mega eyða tuttugu prósentum af vinnutíma sínum í
gæluverkefni sem þeir hafa áhuga á, svo lengi sem það
gagnast fyrirtækinu.
„Ég held við séum með þeim fyrstu hérna á Íslandi
til að taka upp þessa reglu, og við vonum að þetta skili
sér í sniðugum lausnum. Við köllum bara eftir góðum
hugmyndum frá fólki að sniðugum forritum í farsím-
ann.“
TÆKNISPJALL: FROSTI HEIMISSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI OPENHAND
Vinna fyrir suður-afrísku ríkisstjórnina
NÆTURVAKTIN
KOMIN Á DVD
NÆTUR-
VAKTIN
allir 12 þættirnir
á 2 diskum troðfullir af
aukaefni; tilurð þáttanna
/ upptökur frá spunum,
gerð næturvaktarinnar
og yfirlestur
(commentary)
frá höfundum
og aðalleikurum.
Eigum við
að ræða
það eitthvað?
2
DVD
HETJULEIKUR Guitar Hero III er til fyrir
leikjatölvurnar Xbox 360, Wii, PlayStat-
ion 3 og PlayStation 2. Auk þess er til
útgáfa fyrir PC-tölvur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TORRENTSPY Á vefsíðunni má nálgast
kvikmyndir, tölvuleiki, forrit, tónlist og
annað höfundarréttarvarið efni. For-
svarsmenn hennar voru dæmdir sekir,
en refsing verður ákvörðuð síðar.