Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.12.2007, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 21.12.2007, Qupperneq 50
 21. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● jólin koma Margrét María Pálsdóttir, framleiðandi Duggholufólksins, og maður hennar Ari Kristinsson voru við nám í Kaliforníu árið 1980 og upplifðu þar óhefðbundinn jóladag sem líður þeim seint úr minni. „Aðfangadagurinn var tiltölulega hefðbundinn og við fengum vinafólk okkar sem bjó skammt frá í heimsókn,“ segir Margrét María. „Á jóladag suðum við hins vegar hangikjöt sem við höfðum fengið sent að heiman, hituðum uppstúf og grænar baunir og héld- um með öll herlegheitin á ströndina. Þar sátum við á teppi í þrjá- tíu stiga hita og reyndum að ná upp jólastemningu, lýsir Margrét María. Hún segir það þó ekki hafa gengið sem skyldi þrátt fyrir hangikjötið. „Við gerðum okkur grein fyrir því að þetta var ekki rétta um- hverfið og höfum notið jólanna á Íslandi miklu betur eftir þetta. Við höfum að mestu leyti verið heima síðan en fórum þó einu sinni til Kanaríeyja. Það var samt ekki nærri því eins skrítið og þessi jóladagur á ströndinni,“ segir hún. - ve Hangikjöt og upp- stúf á ströndinni ● Margrét María Pálsdóttir upplifði sérkennilegan jóladag í Kaliforníu. Það er öllu jólalegra um að litast heima í stofu hjá Margréti Maríu Pálsdóttur og Ara Kristinssyni en á hvítri sólarströnd. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Það hefur ekkert sérstakt komið upp á og eru jólin friðsæl í mínum huga,“ segir Margrét Eir Hjartar- dóttir en bætir við að auðvitað hafi oft verið mikið að gera í söngnum. „Ég á yndislegar jólaminning- ar með afa mínum Eiríki Páls- syni sem var merkismaður í Hafn- arfirði og svo held ég að ég muni eftir mér í rauðum flauelsjólakjól sem barn en það getur verið að ég hafi bara séð mig þannig á mynd. Sú mynd er mér að minnsta kosti ofarlega í huga,“ segir Margrét. Hin síðari ár hafa hún og móðir hennar, Hanna Eiríksdóttir, hald- ið jólin tvær. „Við höfum skipst á að vera heima hjá hvor annarri og leggjum mikið upp úr því að elda góðan mat. Við höfum stundað alls kyns tilraunastarfsemi í eldhús- inu en ég hugsa að kengúran sem við elduðum um árið standi upp úr. Í ár verðum við heima hjá mér og nú fær kærastinn minn að vera með,“ segir Margrét glöð í bragði þar sem hún er stödd í miðri jóla- ösinni. vera@frettabladid.is Tilraunastarfsemi í eldhúsinu ● Margrét Eir segist svo lánsöm að hafa upplifað frekar tíðindalítil jól. Margrét Eir og móðir hennar hafa stundað ýmiss konar tilraunastarfsemi í eldhúsinu en kengúran sem þær elduðu um árið stendur upp úr. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR Sverrir Páll Erlendsson, kennari við Menntaskólann á Akureyri, segir jólin árið 1995 vera sér sér- staklega eftirminnileg þegar blaða- maður biður hann að rifja upp jóla- minningu. „Þetta ár var ég í leyfi frá kennslu og var sjálfur við nám í Suður-Frakklandi. Desember hafði verið kaldur og mikið um verkföll svo ég var ekki viss um að kom- ast út úr landinu yfir hátíðirnar. Ég komst hins vegar með króka- leiðum framhjá verkfallsvörðum og út úr Frakklandi og hélt yfir til Þýskalands. Þar dvaldi ég um há- tíðirnar í góðu yfirlæti hjá frænku minni sem býr í Düsseldorf og fjöl- skyldu hennar.“ Sverrir Páll segir það hafa verið mikinn mun að komast frá Frakk- landi yfir til Þýskalands, enda séu jólin í Þýskalandi mun líkari því sem við eigum að venjast hér heima á Íslandi. „Jólin í Frakklandi eru ekki jafn mikil fjölskyldusamkoma og þau eru hér á Norðurlöndunum og í Þýskalandi. Frakkar lögðu mikið upp úr stórum skreytingum og allt virtist ganga út á að selja konfekt og slíkar gjafir, meðan skreytt var með fínlegu jólaskrauti í Þýska- landi. Þá tóku Þjóðverjar sér frí á aðfangadag en í Frakklandi mætti fólk til vinnu. Hins vegar skildist mér að Frakkar vöknuðu snemma á jóladagsmorgun og leituðu að jólapökkunum sínum, svipað og við gerum mörg hver við páska- egg hér heima.” Sverrir Páll segir jólin í Þýska- landi hafa verið sérstaklega falleg. „Það var snjór yfir öllu og að lokn- um mat var gengið út að kirkju þar sem fólkið í hverfinu hittist. Í kirkjuturninum voru blásarar sem léku jólalög og stemningin var því ótrúleg.“ - öhö Margt líkt með jólasiðum Þjóðverja og Íslendinga ● Sverrir Páll Erlendsson, kennari við Menntaskólann á Akureyri, varði jólunum 1995 hjá frændfólki sínu í Þýskalandi. Hann segir margt líkt með jólavenjum Þjóðverja og Íslendinga. Sverrir Páll segir mikinn mun á jólahaldi Þjóðverja og Frakka og var því ánægður að komast til Þýskalands yfir hátíðirnar. MYND/GUNNAR ÖRN MAGNÚSSON ● EKKI GLEYMA BESTU VINUNUM Í öllu jólastressinu vilja þeir sem lítið hafa sig í frammi gleymast. Gæludýrin okkar þurfa að ganga í gegnum margt yfir hátíðarnar enda raskast öll regla, fullt af ókunnugu fólki kemur í heimsókn og heimilið breytist í ofskreytta jóla- verslun. Til að gleðja dýrin og róa samviskuna geta eigendurnir gefið dýrinu sínu eitthvað fallegt í jólagjöf. Úrvalið er hreint ótrúlegt í öllum gæludýraverslununum. Allt frá fallegri dýnu að liggja á til skrautlegra tuskudýra. Það sem er þó líklega vinsælast er eitthvað af því sem kitlar bragðlaukana.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.