Fréttablaðið - 21.12.2007, Page 86

Fréttablaðið - 21.12.2007, Page 86
46 21. desember 2007 FÖSTUDAGUR menning@frettabladid.is Ekki eru allir á eitt sáttir hvað varðar skyldur fyrir- tækja gagnvart almenningi. Það er í það minnsta víst að fyrirtækin sjálf standa sig misvel þegar kemur að því að deila auðæfunum með sam- félaginu og því eru það ávallt ánægjulegar fréttir að heyra af slíkum gjörningum. Bankinn Glitnir hefur staðið sig með prýði í þessum efnum og sinnt andlegri og líkamlegri heilsu viðskiptavina sinna, núverandi og mögulegra, með glæsibrag. Nýverið hélt Glitnir gjafmildi sinni áfram með því að gefa Listasafni Reykjanesbæjar fallegt málverk eftir Gunnlaug Blöndal í tilefni af opnun nýs bankaútibús í Reykjanesbæ. Málverkið sýnir konur við saltfiskvinnslu og hefur verið í eigu bankans um áraraðir. Málverkið hekk uppi í hús- næði bankans að Hafnargötu 60 frá árinu 1963, en hefur nú verið flutt í Listasalinn í Duushúsum þar sem jólasýning Listasafns Reykjanesbæjar stendur yfir fram til 13. janúar næstkomandi. Glitnir í Reykjanesbæ hefur frá fyrstu tíð átt í góðu samstarfi við Listasafn Reykjanesbæjar. Sem dæmi um það má nefna að nú er í gildi samn- ingur milli safnsins og bankans þar sem Glitnir greiðir aðgangseyri þannig að ókeypis er fyrir gesti á sýningar í Duushúsum. Því má með sanni segja að Glitnir og Listasafn Reykjanesbæjar séu til fyrirmyndar þegar kemur að samstarfi fyrirtækja og menningarstofnana í þágu almennings. - vþ Tækifæriskveðskapur og lausavís- ur frá 30 ára tímaskeiði, allt frá heimilislegum stílæfingum skóla- bekkjar að stórhátíðarlofgerðar óði fyrir kór og hljómsveit, rímaðar og ríkulega stuðlaðar vangaveltur um hvaðeina sem hugur og hjarta kveikir; ástina, börnin, vistina og ljóðið. Kvæðin einkennast af form- festu og lærdómi; bóklegar hand- unnar tilraunir með hátt og brag, orð, straum og stefnu – réttherm- dar sonnettur og réttfeðruð atóm- ljóð á víxl sem skína eins og gáfna- ljós í heiði en eru þó í raun dálitlir ofvitar. Ófrumlegur skáldskapur og víða ögn tilgerðarlegur, röddin ósjálfstæð og þiggjandi, sammála síðasta ræðumanni. Inntakið fer víða ansi halloka eða beinlínis tapar átt og mætti í ættstórum ytri skrautbúningi. En augljósir ágallarnir eru vita- skuld ekki meginmálið – þetta eru kvæði, vísur og hugrenningar þjóð- kunnrar konu sem vel er hagmælt og vel að sér í allri ljóðagerð, siða- vönd og dyggðug og kýs að deila tómstundaiðju sinni með þjóðinni að sígildum höfðingajasið. Ekkert upp á það að klaga. Þetta eru kvæð- in Ólínu og kveðin af ærlegum hug, vitnisburður um djörfung og dug, dagbókarblogg í einkar prúðbúnu formati, skáldskapur sem „fýsir inngöngu til fundar við menn“ (59), ekki ljóðabók skáldkonu sem ætlar sér heildstæða lýríska áeggjan eða endurskoðun á ljóðmáli feðranna og reynir ekkert að fela þann undanslátt. Og móðurást ljóðanna er vissu- lega máttug og hrífandi orka sem rífur sig lausa frá öllum lánsfjöðrunum og skartar stolt eigin ævarandi gildi, frjáls af íþrótt karls og hefðar. Ljóð eru „orð sem hrynja af sálarhvarmi á hvíta papp- írsörk“ segir í Ljóði á bls. 40 (sem byrjar vel en botninn lakari eins og víðar eru dæmi) og rímar við þá æva- fornu rómantík að skáldskapur sé einhvers konar neisti að handan og vitundinni jafnvel óviðkomandi. Kveðskapur bókarinnar er hins vegar vitnisburður um hið gagn- stæða, ekki yfirskilvitleg rödd eða hugboð innri dulsálar heldur áþreifanleg handavinna iðins bók- menntafræðings sem setið hefur við og raðað saman orðum upp úr gamalkunnum kistli og fellt þau fimlega að höfuðstaf eigin ævi. Eins og ritgerð upp á 9,5 í „skap- andi skriftir 101“ – námfús og nákvæm eftirlíking. Og það er ekki bragarháttunum sjálfum að kenna að orð eins og „þrælrímuð og þrautbundin“ sækja stundum á hugann við lestur kvæð- anna (enda eiga þau ekki síður við um atómljóðin), heldur þeim óhjá- kvæmilegu eftirköstum sem sam- tímaljóð í sýnilegum lánsfötum feðranna ávallt hafa; draga tjaldið fyrir um leið og ljóðinu lýkur – botna inntakið með sjálfvirku handafli formsins eða færa það í kaf með tilskipuðu skrúði. Það er harðsótt að leita efnis kjarna í kvæði sem lesandinn hefur á til- finningunni að nærist á þeirri íþrótt öðru fremur að hnoða eigið deig – og þá jafnvel þótt uppskrift- in liggi fyrir. Allt um það; víða vel kveðið. En frjálsræði sem treystir í blindni á for- ræði eigin sköpunar og sleppir hönd af hand- riði gærdagsins hefur sýnt slíka yfirburði yfir höft og haldreipi sem raunsönn tjáning ljóðs á okkar afhelguðu tímum, að sonnettur og önnur endurreisnardjásn sem eiga sér þá innri forsendu að sanna festu heil- agrar lífskeðju eru máttvana í saman burði, komast ekki yfir þröskuldinn og spóla í eigin upp- safnaðri fegurð; daga uppi í fölnuð- um fífilbrekkum. Reglubundnir bragliðir í ljóði glata merkingu ef öldin sjálf er hrokkin úr liði. Og tíðin er á spani, atómið sprungið líka og krefur ljóðið enn á ný um viðeigandi úrræði. En bókin hefur hnarreista sál og hnakkakerrtan búning – þar sem öldin er forstöndug eins og í vestr- inu Ólínar gilda væntanlega bönd- in og því allt í réttu samræmi, þótt frekur dómarinn heimti annað svar við sama dæmi og sé obbo pu. Sigurður Hróarsson Hnarreist ljóð í hraustum vindi BÓKMENNTIR Vestanvindur Ljóð og lausir endar Ólína Þorvarðardóttir ★★ Samtímaljóð í sýnilegum lánsfötum BÓKMENNTIR Ólína Þorvarðardóttir sendir frá sér ljóðabók. KONUR AÐ VERKA FISK Glitnir gaf Listasafni Reykja- nesbæjar þetta glæsilega málverk. Farsælt samstarf banka og safns Kl. 14 Grálista-hópurinn opnar sýninguna „Grálist með smálist“ í DaLí Gallery á Akureyri í dag kl. 14. Hópur- inn verður með smálistagjörn- ing á myndbandi og þekur veggi gallerísins með smá- myndum. > Ekki missa af... Árlegum jólatónleikum Kvartetts Kristjönu Stefáns sem haldnir verða á Riverside á Hótel Selfossi í kvöld. Húsið opnar kl. 21 en tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 22. Kvartettinn er að vanda skipaður þeim Kristjönu Stef- ánsdóttur, Vigni Þór Stefáns- syni, Smára Kristjánssyni og Gunnari Jónssyni. Sérstakur gestur hljómsveitarinnar er söngvarinn Gísli Stefánsson. Leikritið eldfima Svartur fugl var sýnt í Hafnarfjarðarleikhús- inu í haust við góðar undirtektir gagnrýnenda og áhorfenda. Nú getur landsbyggðin fagnað þar sem Kvenfélagið Garpur, Hafnar- fjarðarleikhúsið og Flugfélag Íslands hafa ljáð verkinu vængi og gert leikhópnum kleift að ferðast um landið í janúar næst- komandi. Verkið verður sýnt á Egilsstöðum, á Ísafirði og í Vest- mannaeyjum og verður sett upp tvisvar á hverjum stað. Leikritið Svartur fugl er eftir leikskáldið David Harrower, en er sýnt hér á landi í íslenskri þýðingu Hávars Sigurjónssonar. Leikritið segir frá þeim Unu og Ray. Þau áttu í forboðnu ástar- sambandi fyrir fimmtán árum en hafa ekki séð hvort annað síðan sambandinu lauk. Ray er því brugðið þegar Una hefur uppi á honum. Hún leitar svara varðandi fortíðina og samband þeirra og endurnýjuð kynni þeirra leiða óhjákvæmilega til uppgjörs. Viðfangsefni sýningar- innar er ögrandi, þó að ekki verði farið nánar út í það hér, og stykkið vekur upp áleitnar spurningar um sakleysi, vald, sekt og kynlíf. Leikhúsunnendur á lands- byggðinni geta því farið að hugsa sér gott til glóðarinnar, en taka skal fram að verkið er ekki ætlað börnum yngri en 14 ára. Verkið verður sýnt 12. og 13. janúar í Sláturhúsinu – Menningarsetri á Egilsstöðum, 19. og 20. janúar í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og 26. og 27. janúar í Leikhúsinu í Vestmannaeyjum. Miðaverð er 2.900 kr. og miðasala fer fram á miðavefnum www.midi.is og við innganginn. - vþ Svartur fugl á ferð og flugi FORBOÐIN ÁST Leikritið Svartur fugl tekst á við ögrandi mál. Íslenskir tónlistarmenn eiga merkilegri velgengni að fagna úti í hinum stóra heimi, stundum svo mikilli að maður hlýtur að spyrja sig hvort Íslendingar séu hugsanlega meiri og betri tónlistarhæfileikum gæddir en flestar aðrar þjóðir. Þrátt fyrir að kenningar í þá veru hafi hvorki verið sannaðar né hraktar breytir það ekki þeirri staðreynd að útlendingar um heim allan virðast kunna vel að meta hinn ferska og frumlega íslenska hljóm. Píanóleikarinn Gunnar Gunnarsson hefur nú bæst í hóp þeirra tónlistarmanna sem heillað hafa fólk í fjar- lægum löndum. Tveir geisladiskar með píanóleik hans komu á dögunum út hjá tónlistarútgáfunni Star Search Media í Suður-Kóreu, en fyrirtækið sér einnig um dreifingu og sölu í Kína og Japan. Annar af disk- unum tveimur er tvöfaldur og hefur að geyma 40 lög, úrval efnis sem upphaflega kom út hér heima á geisla- diskunum Skálm, Stef og Húm. Á þessum innihalds- ríka diski er íslenskt og norrænt efni í fyrirrúmi. Hinn diskurinn sem Gunnar gefur út í Asíu er jóla- diskur sem kom áður út hérlendis undir nafninu Des, en hefur verið endurnefnur fyrir asískan markað og ber nú hinn framandi titil X-mas Gift. Fyrir þá sem ekki vita skal upplýst að Gunnar Gunnarsson er píanóleikari og organisti. Hann hefur verið afkastamikill á útgáfusviðinu og sent frá sér átta geislaplötur alls, þar á meðal þrjár hljóðritanir ásamt Sigurði Flosasyni saxófónleikara, Sálma lífs- ins, Sálma jólanna og Draumalandið. En útrás íslenskra tónlistarmanna er tæpast lokið með þessarri útgáfu Gunnars þar sem áðurnefndur útgefandi í Suður-Kóreu, Star Search Media, hefur gert heildarsamning við tónlistar- og bókaútgáfuna íslensku Dimmu ehf. Samningurinn felur í sér útgáfu á fleiri íslenskum geisladiskum á næstunni og því verður spennandi að fylgjast með því hvernig Íslend- ingum vegnar á asískum markaði. vigdis@frettabladid.is Gunnar gefur út á asískri grundu GUNNAR GUNNARSSON Herjar nú á asískan tónlistarmarkað. GERÐUBERG www.gerduberg.is Óskum listafólki, samstarfsaðilum og gestum hússins gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir frábært samstarf á liðnum árum. Starfsfólk Gerðubergs Gerðuberg verður lokað 24. - 27. des, 31. des og 1. jan. Sýningar verða opnar virka daga frá kl. 11-17 og um helgar frá 13-16. 7. og 8. des uppselt 30. des
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.