Fréttablaðið - 11.01.2008, Blaðsíða 72
40 11. janúar 2008 FÖSTUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ! NÝTT Í BÍÓ!
DAGSKRÁ OG MIÐASALA Á MIÐI.IS - ALLT UM MYNDIRNAR Á GRAENALJOSID.IS OG AF.IS - ALLAR MYNDIR MEÐ ENSKUM TEXTA
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
16
10
16
7
10
7
LIONS FOR LAMBS kl. 8 - 10
THE NANNY DIARIES kl. 10
THE GOLDEN COMPASS kl. 6 - 8
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 6 ÍSL. TAL
12
10
16
12
16
LUST CAUTION kl.6 - 9
ÍM NOT THERE kl.6 - 9 ótextuð
WE OWN THE NIGHT kl.5.30 - 8 - 10.30
RUN FAT BOY RUN kl.5.30-8 - 10.10
THE MIST kl. 5.20 - 8 - 10.40
THE MIST LÚXUS kl. 5.20 - 8 - 10.40
THE NANNY DIARIES kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE GOLDEN COMPASS kl. 5.30 - 8 - 10.30
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 4 - 6 ÍSLENSKT TAL
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 8 ENSKT TAL
HITMAN kl. 10
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 3.45
THE NANNY DIARIES kl. 8 - 10.20
THE GOLDEN COMPASS kl. 8 - 10.30
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 6
5%
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
MOLIERE kl. 5.40
LOFAÐU MÉR kl. 5.50
Í KÖÐLUNUM kl. 6
SÍÐASTI GEÐSJÚKLINGURINN kl. 8
PERSEPOLIS kl. 8
LÖGMAÐUR HRYÐJUVERKANNA kl. 10
BREYTT HEIMILISFANG kl. 10
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ 11.-24. JANÚAR
TÖFRAPRINSESSAN mögnuð spennumynd
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
STÆRSTA ÆVINTÝRI
VETRARINS
ER UM ÞAÐ BIL AÐ
HEFJAST.
ÁLFABAKKA KEFLAVÍK
KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSS
NATIONAL TREASURE 2 kl. 8 - 10:30 12
RUN, FAT BOY, RUN kl. 8 L
BUTTERFLY ON A WHEEL kl. 10 16
ALVIN OG ÍKOR... M/- ÍSL TAL kl. 6 L
ENCHANTED M/- ÍSL TAL kl. 6 L
NAT. TREASURE 2 kl. 8 - 10:30 12
THE GOLDEN COMPASS kl. 8 10
SAW IV kl. 10:20 16
NAT. TREASURE 2 kl.3:30-5:30D -8D -10:40D 12
NAT. TREASURE 2 kl. 5:30 - 8 - 10:40 VIP
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 - 8 - 10:10 7
I AM LEGEND DIGITAL kl. 3:30 - 6 - 8:20 - 10:40 14
I AM LEGEND kl. 3:30 VIP
TÖFRAPRINSESSAN ÍSL TAL kl. 3:30 DIGITAL L
ENCHANTED M/- ENSK TAL kl. 3:30-5:50-8:10-10:30 L
BÝFLUGUMYNDIN M/- ÍSL TAL kl. 3:30 L
BEE MOVIE M/- Ensku TAL kl. 6 L
SIDNEY WHITE kl. 8 L
AMERICAN GANGSTER kl. 10:40 16
DEATH AT A FUNERAL kl. 4 - 6 - 8 - 10 7
NAT. TREASURE 2 kl. 5:30D - 8D - 10:30D 12
I AM LEGEND kl. 8 - 10 14
TÖFRAPRINSESSAN M/- ÍSL TAL kl. 3:40D L
BÝFLUGUMYNDIN M/- ÍSL TAL kl. 3:30D L
BEOWULF Síðustu sýningar kl. 5:50(3D) 12
TÖFRAPRINSESSAN ÍSL TAL kl. 6 L
NATIONAL TREASURE 2 kl. 8 - 10:20 12
BÝFLUGUMYNDIN ÍSL TAL kl. 6 L
ENCHANTED M/- Ensku TAL kl. 8 L
I AM LEGEND kl. 10:20 16
fyndnasta breska gamanmynd síðan
„FOUR WEDDINGS AND A FUNERAL“
FRÁ LEIKSTJÓRA „WHAT ABOUT BOB“
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
THE MYST kl. 8 og 10.30 16
THE GOLDEN COMPASS kl. 5, 8 og 10.15 10
RUN FATBOY RUN kl. 6, 8 og 10 L
ALVIN OG ÍKORNARNIR - ÍSL TAL kl. 4 og 6 L
BÝFLUGNAMYNDIN - ÍSL TAL kl. 4 L
Viðskiptavinir, sem greiða
með korti frá SPRON, fá
20% afslátt
af miðaverði á myndina
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins slitu Auðunn Blöndal og
unnusta hans Lilja Björk samvistir
fyrir tveimur mánuðum eftir
fimm ára samband. Hvorki Auð-
unn né Lilja vildu tjá sig um málið
þegar Fréttablaðið leitaði eftir
því. Séð og Heyrt greindi frá því í
blaði sínu í gær að samband þeirra
héngi á bláþræði en sambandið
virðist hafa verið löngu búið áður
en glanstímaritið fór í prentun.
Auðunn og Lilja hafa verið
saman í fimm ár og eftir því sem
Fréttablaðið kemst næst var
ákvörðunin tekin í sameiningu.
Þau hafa alltaf reynt að halda sam-
bandi sínu frá kastljósi fjölmiðl-
anna og hafa lítið viljað koma
fram saman opinberlega. Reyndar
var Lilja Björk Auðuni innan hand-
ar í fyrstu seríunni af Tekinn en
var víðs fjarri í þeirri seinni en
hún stundar nú nám í lögfræði.
Auðunn og Lilja hætt saman
FIMM ÁRUM LOKIÐ Auðunn og Lilja höfðu verið saman í fimm ár en hafa nú tekið
sameiginlega ákvörðun um að halda í sína áttina hvort.
Jake Gyllenhaal ku hafa beðið
Reese Witherspoon að giftast sér.
Gyllenhaal bað leikkonunnar í
Róm í október síðastliðnum, þegar
þau voru þar saman í fríi. Sam-
kvæmt vinum parsins svaraði
Reese bónorðinu með orðunum
„ekki strax“, en skilnaður hennar
við leikarann Ryan Phillippe gekk
ekki í gegn fyrr en í október í
fyrra. Þau voru gift í sjö ár, en
Reese hafði sótt um skilnað tæpu
ári áður.
Þó að fyrsta svar Óskarsverð-
launaleikkonunnar hafi verið frek-
ar neikvætt ku hún síðar hafa
svarað játandi, eftir að hafa ráð-
fært sig við nána vini. „[Vinir
hennar] voru ekki bara hrifnir af
Jake, þeir sáu líka að hann var
ótrúlega hrifinn af henni,“ segir
vinur leikkonunnar. „Þegar Jake
bar upp spurninguna í Róm vissi
hann að Reese þurfti meiri tíma,
og bjóst ekki við því að hún myndi
segja „já“ um leið. Hann vildi bara
að hún vissi að hann tæki samband
þeirra alvarlega – nógu alvarlega
til að gera hana að eiginkonu
sinni.“
Orðrómur um samband á milli
Gyllenhaals og Witherspoon fór af
stað á síðasta ári, þegar þau léku
saman í kvikmyndinni Rendition.
Þau neituðu bæði sögusögnum
þess efnis til að byrja með, en hafa
sést meira saman á opinberum
vettvangi frá því í haust.
Gyllenhaal bað Reese
Fjórir íslenskir flytjendur koma
fram á tónlistarhátíðinni Euro-
sonic sem hófst í Hollandi í gær
og lýkur á morgun. Um er að ræða
hljómsveitirnar Jakobínarínu og
Bloodgroup og tónlistarmennina
Mugison og Ólaf Arnalds.
Tónlistarráðstefnan Midem fer
síðan fram í Frakklandi í lok
mánaðarins. 28. janúar heldur
íslenska menntamálaráðuneytið
veislu til að kynna íslenska tónlist
og þar verður Mugison einnig á
meðal flytjenda ásamt söngkon-
unni Kenya. Þau íslensku
fyrirtæki sem ætla að koma sínu
fólki á framfæri á ráðstefnunni
eru Sena, 12 Tónar, Smekkleysa,
Zonet, Dimma, KGEM, D3 og
Blánótt.
Fjórir spila á
Eurosonic
YFIR SIG
HRIFINN
Vinir leikkon-
unnar segja það
augljóst að Jake
Gyllenhaal sé
yfir sig hrifinn
af henni.
TÓK BÓNORÐI
Eftir að hafa ráð-
fært sig við nána
vini breytti Reese
svari sínu við
bónorðinu í
„já“.
Misskilningur réði því að dregið var til
baka boð um gjöf 20 verka eftir Þor-
vald Skúlason til Listasafns Íslands.
Formsatriðum var ekki fullnægt
auk þess sem sérstakrar varúðar
var þörf því hinn góði gefandi
heitir jú, Jónas Freydal.
„Mér eru það mikil vonbrigði að hafa
aldrei fengið að sjá verkin,“ segir
Auður Ólafsdóttir safnstjóri
Listasafns Háskóla Íslands.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að Jónas Freydal
athafnamaður hefur
ákveðið að draga til baka
boð sitt um að gefa safninu
30 verk eftir Þorvald
Skúlason, 30 af 121 verki sem
hann fann í Frakklandi áður
óþekkt. Jónas segir áhugaleysi af
hálfu safnsins hafa ráðið þeirri
ákvörðun – áhugaleysi sem hann
segir jaðra við dónaskap. Hann
hafi ekki heyrt frá Auði frá 5.
desember en á fundi stjórnar
safnsins 12. desember var tilboð
hans rætt.
Í samtali við Fréttablaðið segist
formaður stjórnar, Sigrún Júlíus-
dóttir prófessor, sem minnst vilja
tjá sig um málið. Hún hafi nú sagt
sig frá stjórninni og sé ekki lengur
formaður. Hún segir afgreiðslu
málsins hafa dregist einkum af
tæknilegum orsökum vegna vendinga í
stjórn og vísar á rektor eða Auði.
Jónas hefur tölvupósta dagsetta 5. og
10. desember þar sem hann býðst til að
koma gjöfinni til Auðar. Auður segir
málið byggjast á misskilningi.Hún hafi
beðið Jónas um að fá að skoða verkin og
skrá, með forverði og ljósmyndara, en
alltaf fengið sama svarið, tilboð um að
Jónas kæmi á hana verkunum. En þannig
gangi þetta ekki fyrir sig og formsatrið-
um hafi ekki verið fullnægt.
„Ég get ekki endalaust sent sömu
fyrirspurnina,“ segir Auður sem vildi
fá að skoða verkin áður en hún tæki
við þeim. „Söfn lúta ákveðnum
verklagsreglum við móttöku
listaverkagjafa. Áður en stjórn safns ákveður
hvort listaverk eru þegin þurfa að liggja fyrir
stjórnarfundi ljósmyndir af verkunum, uppruna-
og eigendasaga, og skýrsla forvarðar um ástand
og áreiðanleika verka,“ segir Auður. Það gefi
augaleið að safn tekur ekki við neinum listaverk-
um óskoðuðum og afhending gjafar jafngildi ekki
skoðun.
Varðandi það hvort Jónas hafi, við afgreiðslu
þessa erindis, verið látinn gjalda fortíðar sinnar
sem sakborningur í málverkafölsunarmálinu
segist Auður hafa reynt að vanda sig í þessu máli.
„Það var ekki ætlunin að móðga gefanda. En
Jónas Freydal getur ekki talið það óeðlilegt í ljósi
þess að nafn hans tengist stóra málverkafölsun-
armálinu að sérstaklega sé vandað til verka og
forvörður fái að skoða verk Þorvalds þau sem
um ræðir. En eins og kom fram í bréfum
mínum til Jónasar hafði ég mikinn áhuga á að
fá að skoða bæði hugsanleg gjafaverk og
líka önnur verk eftir Þorvald sem Jónas
hefur undir höndum með það fyrir augum
að skrá og ljósmynda. Enda er það hluti
af rannsóknarhlutverki Listasafns HÍ í
tengslum við heildarskráningu á
verkum Þorvalds.“ jakob@frettabladid.is
Vildi ekki móðga Freydal
AUÐUR ÓLAFSDÓTTIR
Ekki óeðlilegt að vanda
hafi sérstaklega til verka
því nafn Jónasar tengist
málverkafölsunarmálinu.
JÓNAS FREYDAL Segir áhugaleysi safnsins jaðra við
dónaskap. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MUGISON Tónlistar-
maðurinn Mugison
ætlar að spila sín
bestu lög í Hollandi
og Frakklandi.