Fréttablaðið - 11.01.2008, Blaðsíða 57
FÖSTUDAGUR 11. janúar 2008 25
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Við hvetj um les end ur til að senda
okk ur línu og leggja orð í belg um
mál efni líð andi stund ar. Grein ar
og bréf skulu vera stutt og gagn-
orð. Ein göngu er tek ið á móti efni
sem sent er frá Skoð ana síð unni
á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein-
ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni
birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða
í báð um miðl un um að hluta eða
í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt-
inga og til að stytta efni.
UMRÆÐAN
Heimaþjónusta
Öll eigum við það sameiginlegt að vilja vera sjálfbjarga. Það
er óhætt að fullyrða að næstum
frá fæðingu rembist börn við að
skapa sér sjálfstæði, standa á
eigin fótum. Og þetta tekst okkur
flestum á endanum. Við verðum
fullorðin og stöndum undir eigin
lífi, stolt og ánægð, komum upp
börnum og fylgjumst með þeim
vaxa og dafna.
En allir hlutir hafa sinn tíma og
þegar færni okkar skerðist, vegna
öldrunar, slysa eða sjúkdóma, er
mikilvægt að okkur sé mætt af
virðingu og tillit tekið til þeirrar
eðlilegu þrár okkar að vera sjálf-
bjarga. Að gæta að því að fólk
haldi sinni reisn er lykilatriði og
því leggur Reykjavíkurborg
áherslu á það að heimaþjónusta
og stuðningur við heimilishald
séu veitt af nærgætni og vand-
virkni.
Einkunnarorð heimaþjónustu
Reykjavíkurborgar eru „sjálfs-
hjálp með stuðningi“. Okkar
metnaður er að fólk haldi sinni
reisn og virðingu. Það er engum
hollt að leggjast bara aftur og láta
aðra um þrif og heimilishald. Það
er mun jákvæðara fyrir líðan og
sjálfsmynd fólks að hafa enn tögl
og hagldir á eigin heimili. Mark-
mið okkar er að styðja fólk við
heimilishaldið án þess að taka
yfir þau verk sem fólk getur enn
unnið sjálft.
Lifandi starf
Við sem störfum í Þjónustumið-
stöð Laugardals og Háaleitis
erum stolt af samstarfsfólki
okkar í heimaþjónustunni. Þetta
er öflugt og samhent lið sem vinn-
ur krefjandi vinnu þar sem trún-
aður og traust skipta meginmáli.
Ekki er aðeins um að ræða kraft-
mikla og röggsama starfskrafta
heldur líka augu okkar og eyru
úti meðal þess fólks sem við þjón-
um. Í gegnum samræður og sam-
veru við þá sem njóta stuðnings
og þjónustu getur starfsfólk
heimaþjónustunnar eflt þekkingu
okkar á þörfum íbúa hverfisins
og þannig bætt til muna þá þjón-
ustu sem við veitum.
Heimaþjónustustarfið er ekki
aðeins mikilvægt, heldur líka gef-
andi, þar sem það er liður í því að
rjúfa einangrun fólks í samfélag-
inu og eiga lifandi samskipti við
það. Þannig hafa mörg vinatengsl
myndast í gegnum starfið, enda
er það eðlilegt þegar unnið er
með fólki. Það víkkar líka sjón-
deildarhringinn að komast í snert-
ingu við ólíka reynslu og upplifun
fólks sem er ekki endilega hluti
af hinni daglegu hringiðu fjöl-
miðla og umræðu í okkar sam-
félagi.
Símenntun og tungumálanám
Eldri borgarar og aðrir þeir sem
njóta heimaþjónustu hafa bent á
mikilvægi þess að starfsfólk
heimaþjónustu kunni til verka, sé
jákvætt og vel upplýst. Þjónustu-
miðstöðin leggur því ríka áherslu
á að efla þekkingu og menntun
starfsfólks. Hálfsmánaðarlega
eru haldnir fræðslufundir með
starfsfólki um ýmis málefni og er
starfsfólk einnig hvatt til símennt-
unar.
Ljóst er að íslenskt þjóðfélag er
að verða sífellt fjölmenningar-
legra og því er einnig mikilvægt
fyrir okkur að hafa starfsfólk
sem talar fleiri en eitt tungumál í
þjónustustörfum.
Má í því ljósi nefna að starfs-
fólk af erlendum uppruna sækir
starfstengda íslenskukennslu sér
að kostnaðarlausu á vinnutíma.
Þannig nýtast kraftar og reynsla
þessa starfsfólks betur en áður
og starfsfólk og notendur þjón-
ustunnar geta betur miðlað sín á
milli reynslu og þekkingu.
Fagfólk á sínu sviði
Ekki er sjálfgefið að allir geti
orðið starfsmenn í heimaþjón-
ustu, því starfið krefst mikillar
hæfni í mannlegum samskiptum,
sveigjanleika og nærgætni. Með
reynslu, símenntun og stöðugri
fræðslu má segja að starfsfólk
heimaþjónustunnar verði smátt
og smátt fagfólk á sínu sviði. Enn-
fremur hafa margir menntað sig
sem félagsliða en í félagsliðanám-
inu er einmitt lögð mikil áhersla á
margbreytileika í mannlegum
samskiptum, mannvirð-
ingu í orði og verki. Í
náminu eru einnig
kenndar aðferðir til að
hvetja þá til dáða sem
einhverra hluta vegna
hafa einangrast og
þurfa stuðning til að
koma sér af stað í
hreyfingu, félagsstarf
eða hvað annað sem
hugurinn stendur til.
Sparnaður fyrir þjóðar-
búið
Að lokum má nefna það
að nyti heimaþjónustu
ekki við, myndi þörfin fyrir
hjúkrunarrými hér á landi aukast
gríðarlega. Það er einfalt reikn-
ingsdæmi að sjá það álag sem slík
aukning á þörf myndi valda á heil-
brigðiskerfinu, enda er kostnað-
urinn vegna hjúkrunarrýma
margfaldur á við þann kostnað
sem stafar af heimaþjónustu.
Þess vegna er framlag þessa
starfsfólks án nokkurs efa gríðar-
lega verðmætt, ekki eingöngu
með tilliti til vellíðunar og heilsu
þeirra sem heimaþjónustunnar
njóta, heldur einnig út frá hags-
munum skattborgara. Þannig
vinna allir þegar heimaþjónustan
stendur sig vel.
Sigrún er deildarstjóri og Svavar
frístunda- og félagsauðsráðgjafi
hjá Þjónustumiðstöð Laugardals.
Lykilstarfsfólk í samfélaginu
SIGRÚN
INGVARSDÓTTIR
SVAVAR
KNÚTUR
Auglýsingasími
– Mest lesið