Fréttablaðið - 11.01.2008, Blaðsíða 78
46 11. janúar 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Laugavegur 4-6.
2 Kristján Gunnarsson.
3 Sam Allardyce.
HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ?
LÁRÉTT
2. dýrka 6. hæð 8. kvikmyndahús 9.
farfa 11. 2000 12. hroki 14. ljúka 16.
ekki 17. eru 18. angan 20. skóli 21.
krafs.
LÓÐRÉTT
1. mylsna 3. í röð 4. fax 5. auð 7.
hringfari 10. mál 13. blástur 15. skyn-
færi 16. trjátegund 19. eldsneyti.
LAUSN
„Það hringdi pía í okkur sem sagð-
ist vera til í að sofa hjá honum
ef hún væri nógu full,“
segir Sigvaldi Kaldalóns,
eða Svali, útvarps-
maður á FM 957 og
einn af stjórnendum
þáttarins Zúper.
Fiðringur virðist
vera kominn í íslenskar
stúlkur fyrir
komu rokkar-
ans Tommy
Lee hingað til
lands síðar í
mánuðinum,
enda er hann
alræmdur
kvennabósi
og fyrrver-
andi eiginmaður kynbombunnar
Pamelu Anderson. „Við töluðum
við Magna og hann sagði að
þetta væri ábyggilega eins og
að sjá um tvö ensk fótboltalið
að fá Tommy hingað. Frá því
hann lendir og þangað til
hann fer er bara
partí. Það er
ekki bara
það að hann
sé slæmur sjálfur heldur vill hann
að allir aðrir skemmti sér geð-
veikt vel. Það tala allir um að
skemmtilegustu partíin sem hægt
er að fara í séu hjá Tommy Lee,“
segir Svali. „Magni sagði að á
smærri giggum úti séu oft langar
raðir af stúlkum sem vilja koma
við hann og fá koss. Þær vilja allar
vera kviðmæðgur Pamelu Ander-
son. Ég get ekki beðið eftir því að
fara í partí eftir tónleikana bara
til að sjá þetta,“ segir hann.
Svali fór í eftirpartí þegar hús-
bandið sem spilaði undir í Rock-
star-þáttunum með Magna kom
hingað til lands. „Ég fékk áfall,
mér fannst þetta svo fyndið. Það
var eins og þeir væru helstu kvik-
myndastjörnur heimsins. Þeir
voru með tvær stelpur undir sitt
hvorri hendinni og hvernig held-
urðu að þetta verði hjá Tommy
Lee og félögum? Þeir eru að koma
hingað til að djamma.“ - fb
Íslenska kvenþjóðin spennt fyrir Tommy
SVALI Svali ætlar að fara í eftirpartí með
Tommy Lee eftir tónleika hans á Nasa.
TOMMY
LEE
Tommy
kann svo
sannarlega að
skemmta sér,
miðað við það
orðspor sem fer af honum.
„Skutull.is er faglegur fréttamiðill og þar er
unnið eftir viðurkenndum starfsreglum blaða-
og fréttamennsku,“ segir Ólína Þorvarðar-
dóttir en hún hefur ásamt Bryndísi Friðgeirs-
dóttur lagt fram stjórnsýslukæru á hendur
bæjarstjórn Ísafjarðar-
bæjar. Aðstandendur
vefsíðunnar telja að
jafnræðisregla hafi
verið brotin þegar
meirihluti bæjarráðs
synjaði henni um
sama rými og vefsíð-
an bb.is hefur á vef
bæjarins sem og öll auglýsingaviðskipti við
bæinn. Með kærunni vilja þær að ákvörðun
bæjarstjórnar verði endurskoðuð.
Ólína sagði í samtali við Fréttablaðið að um
væri að ræða pólitískt mál. Bæjarstjórinn væri
ekki að draga skynsamleg skil milli Í-listans
annars vegar og vefsíðunnar hins vegar. En
Ólína er gift Sigurði Péturssyni sem situr í
minnihluta bæjarstjórnar Ísafjarðar fyrir
hönd Í-listans.
Halldór Halldórsson segir að
ákvörðun bæjarráðs hafi ekkert
með hans persónulegu skoðun að
gera en Halldór lýsti því yfir í
útvarpsviðtali að vefurinn væri
óneitanlega litaður af liðsmönnum
Í-listans. Hins vegar segir Halldór
að ekki mætti blanda saman
persónulegum skoðun-
um hans og svo ákvörð-
un bæjarráðs.
„Bæjarráð taldi ein-
faldlega að það væru margir aðrir vefir á
svæðinu og að skutull.is væri ekki sambæri-
legur vefur og bb.is sem er einn af tuttugu
mest lesnu vefjum landsins,“ segir Halldór
sem hefur svarað fyrirspurn frá félagsmála-
ráðuneytinu en það óskaði eftir umsögn frá
bænum.
Ólína gefur lítið fyrir þessar útskýringar
bæjarstjórans og segir að Halldór sitji alla
fundi bæjarráðs og leggi þar upp öll mál í
samstarfi við meirihlutann. „Þegar hann
var inntur eftir ástæðum synjunar í
útvarpsviðtali sagði hann að skutull
væri málgagn Í-listans. Og það er í
hæsta máta óeðlilegt að gera það svar
sitt nú að sinni persónulegri skoðun,“
segir Ólína. - fgg
Ritstjóri og bæjarstjóri í hart
PÓLITÍSK ÁKVÖRÐUN
Ólína segir ákvörðun bæjar-
stjórnar um að hafna
skutull.is um sama
pláss og bb.is af
pólitískum rótum.
MARGIR AÐRIR VEFIR Halldór telur
ákvörðun bæjarráðs ekkert hafa með
pólitík að gera, bb.is og skutull.is séu
einfaldlega ekki sambærilegir.
Íslenskir dansþættir í formi So
You Think You Can Dance-þátt-
anna vinsælu hefja göngu sína á
Stöð 2 í haust. Pálmi Guðmunds-
son, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2,
staðfesti við Fréttablaðið í gær að
formlegur undirbúningur væri
hafinn. Þáttaröðin hefur notið
gífur lega vinsælda bæði hér á
landi og vestanhafs, og er áhorfið
sambærilegt við Idol-keppnina og
X-factor. „Við stefnum á að hafa
áheyrnarpróf með vorinu og frum-
sýnum í haust,“ segir Pálmi, en
þættirnir eru gerðir í samvinnu
við Íslenska dansflokkinn.
Danshöfundar og dómarar úr
bandarísku þáttunum eru væntan-
legir til landsins á næstu mánuð-
um og munu vera Stöð 2 innan-
handar við gerð þáttanna. „Þeir
munu kannski ekki gegna hefð-
bundnum hlutverkum sínum, þar
sem þeir tala ensku, en ætla að
undirbúa þættina með okkur og
semja dansrútínur,“ útskýrir
Pálmi. Ófá lönd hafa gert sína
eigin útgáfu af So You Think You
Can Dance, en aðstandendur
bandarísku þáttanna hafa ekki
komið að slíkri vinnu áður. „Þetta
er mjög mikill fengur fyrir okkur,“
segir Pálmi. Íslenskt nafn á þátt-
inn er þó enn ófundið. „Allar góðar
ábendingar eru vel þegnar,“ segir
Pálmi og hlær við. „Það er dálítið
snúið að þýða þetta vel.“
Þeir Dan Karaty og Shane
Sparks verða fyrstu fulltrúar So
You Think You Can Dance hér á
landi, en þeir halda dansnámskeið
á vegum Dancecenter um miðjan
febrúar. Karaty kenndi hér nám-
skeið síðastliðið sumar, en Shane
Sparks kemur nú í fyrsta skipti.
„Það verða fleiri viðburðir á árinu
sem verða auglýstir sérstaklega,“
útskýrir Nanna Ósk Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Dancecenter.
Á meðal væntanlegra dansgesta
er sigurvegarinn úr síðustu þátta-
röð, Sabra Johnson, en með henni í
för verður Danny Tidwell, sem
hreppti annað sætið.
„Shane og Dan munu kenna allt
það nýjasta frá Los Angeles og
New York. Þeir blanda saman alls
konar stílum, eins og hip-hoppi,
jazz, funki og streetdansi,“
útskýrir Nanna, sem segir þetta
frábært tækifæri fyrir íslenska
dansunnendur til að kynnast
nýjum straumum og stefnum án
þess að þurfa að sækja sér þá
kennslu til útlanda. „Þeir leggja
líka báðir mikla áherslu á að ná
því besta úr nemendum sínum.
Þeir eru hérna fyrir nemendur,
ekki öfugt,“ bætir Nanna við.
Skráning á námskeiðið með Kar-
aty og Sparks er hafin á dance-
center.is.
sunna@frettabladid.is
PÁLMI GUÐMUNDSSON: ÍSLENSKIR SO YOU THINK YOU CAN DANCE-ÞÆTTIR
Erlendir dómarar taka þátt
F.V. MARY MURPHY, SHANE SPARKS,
DAN KARATY NORDICPHOTOS/GETTY
STÓRSTJÖRNUR Í
DANSI TIL ÍSLANDS
Þeir Dan Karaty og Shane
Sparks verða fyrstu fulltrúar
So You Think You Can Dance-
þáttanna hér á landi, en þeir
halda dansnámskeið á vegum
Dancecenter og Nönnu
Óskar Jónsdóttur í febrúar.
Fleiri dómarar og danshöf-
undar úr þáttunum munu
verða Stöð 2 innan handar
við gerð þáttanna.
LÁRÉTT: 2. dást, 6. ás, 8. bíó, 9. lit,
11. mm, 12. dramb, 14. klára, 16. ei,
17. séu, 18. ilm, 20. fg, 21. klór.
LÓÐRÉTT: 1. sáld, 3. áb, 4. símbréf,
5. tóm, 7. sirkill, 10. tal, 13. más, 15.
auga, 16. eik, 19. mó.
„Það voru fáir tilbúnir að spons-
ora mig, nema ég léki í sjón-
varpsauglýsingum. Ég geri það
aldrei, og ekki heldur í öðrum
auglýsingum.“
Bubbi, í viðtali við Pressuna árið 1992.
„Ég gerði það ekkert á þeim tíma. Ef ég
man rétt var ég á tónleikaferð í kringum
landið, og var ókeypis inn á alla tónleika.
Reyndar lék ég í fyrstu sjónvarpsaug-
lýsingunni minni árið 1980, þar sem ég
auglýsti kaffi,“ segir hann nú.
Tónlistarmaðurinn
Gylfi Ægisson og
sjónvarpsmaðurinn
Jón Ársæll Þórðar-
son leiða saman
hesta sína í þætti
hins síðarnefnda,
Sjálfstæðu fólki, um helgina. Í
þættinum verður farið yfir merkan
feril Gylfa sem kunnastur er fyrir
að hafa samið lagið Minning um
mann. Óvænta uppákomu er þó að
finna í þættinum að því er heyrst
hefur. Í ljós kemur að Gylfi á son
sem snýr heim frá Ítalíu. Er honum
lýst sem suðrænni útgáfu af Gylfa
Ægissyni. Það verður að teljast for-
vitnilegt.
Spaugstofumenn
keppast nú við að setja
saman sinn fyrsta þátt
eftir jólafrí. Í þættinum
er líklegt að Jón Viðar
Jónsson leikhúsfröm-
uður birtist en hann
hefur löngum verið
Spaugstofumönnum
hugstæður. Jóni
Viðari var kippt af frumsýningarlista
Borgarleikhússins eins og frægt er
orðið en þetta er langt í frá fyrsta
skipti sem hann hefur átt í útistöð-
um við leikhúsforkólfa. Þannig að
Pálmi Gestsson dustar nú væntan-
lega rykið af JónsViðarsgervinu
sínu. Og líklegt má telja Össur
Skarphéðinsson og rauðvínsgjöf
Kaupþings komi við sögu í þættin-
um auk musterisriddara.
Hinn ástsæli útvarpsmaður Freyr
Eyjólfsson á Rás 2 rak upp stór
augu og stundi þegar hann las 24
stundir í gær. Til að fríska upp á
blaðið hafa starfsmenn 24 stunda
gripið til þess ágæta ráðs að fletta
gömlum Pressum, Morgunpóstum
og öðrum slíkum gæðablöðum
og vakið þaðan til lífs gamla
efnisþætti. Tvífarar vikunnar er
einn slíkur en eitthvað skortir á
hugkvæmni blaðamanna á 24
stundum við úrvinnslu. Freyr lendir
í það minnsta öðru sinni í Tvíför-
unum, sem væri sök sér, nema að
enn og aftur er bent á að leikarinn
Daniel Meade í
Ugly Betty-þátt-
unum þykir
sláandi
líkur Frey.
- hdm/jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI