Fréttablaðið - 11.01.2008, Blaðsíða 48
BLS. 12 | sirkus | 11. JANÚAR 2008
Sirkusstjórinn sló ekki slöku við þessa
fyrstu helgi ársins enda er ekki annað í
boði en að halda marineringu jólanna
gangandi. Á föstudagskvöld var Boston
stútfullur af skemmtilegu fólki
sem fagnaði því að jólin
væru afstaðin. Vesturports-
parið Rakel Garðarsdóttir,
framkvæmdastjóri
Vesturportsins, og
kærasti hennar, Björn
Hlynur, leikari og
leikstjóri, skemmtu
sér konunglega
með leikurum úr
Jesus Christ
Superstar. Á næsta borði sat leikstjórinn
Ragnar Bragason ásamt vinum sínum og
virtist vera hinn hressasti. Baggalúts-
bræðurnir Bragi Valdimar Skúlason og
Karl Sigurðsson létu sig heldur ekki
vanta á Boston þetta kvöld og
voru kampakátir að vanda.
Þegar Sirkusstjórinn ætlað
að venda kvæði sínu í
kross og kíkja á næsta bar,
var ekki hægt að
þverfóta fyrir fólki og
biðraðirnar virtust
alls staðar ná langt
út á götu. Sama
kvöld létu Sveinn Andri Sveinsson
lögmaður og Björn Ársæll Pétursson,
útibússtjóri Landsbankans í Hong Kong,
fara vel um sig á Salti. En á sama stað
mátti sjá glitta í Andrés Pétur Rúnarsson,
fyrrverandi fasteignasala. Á Ölstofunni
var múgur og margmenni. Þar voru
meðal annars Börkur Gunnarsson
kvikmyndagerðarmaður, Pétur Blöndal,
blaðamaður á Mogganum, og Ólafur
Teitur Guðnason hjá Straumi.
Eftir vel heppnað kvöld var
ekkert annað í stöðunni en
að fara snemma heim enda
fer það ekki saman
að detoxa og
hanga á barnum.
■ Hverjir voru hvar? S igurganga ítalska fatamerkisins Miss Sixty hefur aukist gríðar-
lega síðastliðin ár og í dag er það eitt
af vinsælustu merkjunum. Stjörnur
á borð við Demi Moore, Mischa
Barton, Maggie Gyllendal og Hilary
Swank hafa tekið ástfóstri við merk-
ið en þær voru fremstar í flokki á
tískusýningunni í New York þegar
vorlínan 2008 var frumsýnd. Í dag
opnar sérstök Miss Sixty verslun í
Kringlunni og því þurfa íslenskar
dömur ekki að láta sig dreyma um
fötin á myndunum heldur látið verk-
in tala og notið í botn.
SVALT&
seiðandi
opið föstudag 10-18.30 og
laugardag 10-17
Útsala 50%
Flottust !