Fréttablaðið - 11.01.2008, Blaðsíða 64
32 11. janúar 2008 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Fari svo að þú komir til
greina í stöðuna mun
ég væntanlega þurfa að
vita meira um reynslu
þína en að þú hafir gert
„massamikið“.
RÁÐNINGAR
Ferilskrá
Ég er kominn
vel yfir þrítugt
og fæ enn
ofsakvíða af
tilhugsuninni
um að kaupa
smokka! Er það
eðlilegt?
Tjaa... Maður
er nú kannski
aðeins léttari
í spori þegar
mann vantar
bara léttmjólk og
hrökkbrauð, en
það ætti ekki að
vera þannig!
Samt... ég
finn fyrir
kaldsvitanum
á bakinu! Fólk
veit að ég er
ekki að hugsa
um mínígolf!
Jói! Hertu þig
upp! Farðu út
á bensínstöð,
keyptu einhvern
samtíning og
hentu þeim inn
á milli! Málið
dautt!
Ókei! Ég geri
það!
Ókei!
Möffins, kók, smurostur, kerti í
bílinn, rúðuþurrkur, dekk fyrir
Fiat Pinto! En engir...?
Næst! Ég sver
það! Næst!
Sonur minn, Tarzan
símanna.
Hvað er að, Mjási?
Mjá
Ertu svangur? Viltu fara út?
Ertu að leita að litla bleika
sokknum? Viltu klapp?
Þarftu vatnssopa?
Jább, neibb,
neibb, jább,
og jább.
JÁ! VIÐ ERUM MEÐ
AFMÆLISVEISLU FYRIR
DÓTTUR OKKAR!
Í ALVÖRU? JÁ, ÉG SKAL
ATHUGA HVAÐ ÉG GET GERT!
ÞETTA VAR NASA... MANNSKAPURINN Á GEIMSTÖÐINNI
HRINGDI TIL AÐ KVARTA UNDAN HÁVAÐA!
Litla fjölskyldan mín
stækkaði örlítið fyrir
nokkrum dögum
þegar smávaxinn
kettlingur bættist í
hópinn. Núna get ég
varla haft augun af
honum því eins og margt annað í
náttúrunni hefur mér alltaf fund-
ist ungviði ótrúlega vel hannað. Á
meðan afkvæmi dýra og manna
eru ennþá of lítil og veikburða til
þess að geta séð um sig sjálf eru
þau svo yfirnáttúrulega sæt og
krúttleg að þau kalla fram það
besta í öllum í kringum sig.
Í dýraríkinu eru fjölmörg dæmi
um að ungviði sem misst hefur
móður sína sé tekið í fóstur af öðru
kvendýri og jafnvel af annarri teg-
und. Hjá okkur mannfólkinu við-
gengst það sama og við tökum skil-
yrðislaust að okkur börn sem
vantar foreldra og dýr sem við
sýnum umhyggju og ástúð.
Ég gleymi því aldrei þegar
báðar kisuprinsessurnar á heimili
foreldra minna áttu von á kettling-
um á sama tíma. Önnur kisan var
mín en hin á ábyrgð litla bróður
míns, og þrátt fyrir að við værum
bestu vinir var samkomulag gælu-
dýranna ekki jafn gott. Þeim var
samt komið fyrir hvoru í sínum
kassanum hlið við hlið inni í
geymslu þar sem þær eignuðust
fimm kettlinga hvor með um það
bil viku millibili.
Eftir að kettlingar kisunnar
minnar voru orðnir nógu stórir til
þess að fara úr og í kassann sinn
sjálfir kíkti ég einhvern tímann á
þá þar sem þeir lágu hjá móður
sinni og tók þá eftir að einn var
horfinn. Ég hóf dauðaleit um alla
geymslu en hvergi fann ég kisa.
Mér datt þá í hug að kíkja ofan í
kassann hjá hinni læðunni og viti
menn, þarna lá hlunkurinn á spena
hjá henni innan um kettlinga sem
voru helmingi minni.
Fljótlega voru allir kettlingarnir
farnir að flakka á milli kassa og
mæðurnar kipptu sér ekki upp við
það þótt stundum væru þær með
fleiri kettlinga frá hinni á spena en
af sínum eigin. Því þrátt fyrir að
læðurnar hefðu alltaf verið var-
kárar gagnvart hvor annarri leyfð-
ist ungviðinu greinilega allt.
STUÐ MILLI STRÍÐA Gripinn í röngu bóli
EMILÍA ÖRLYGSDÓTTIR GETUR ENDALAUST HORFT Á BÖRN, KETTLINGA OG ANNAÐ UNGVIÐI
Gagnrýnendur
eru á einu máli:
"sýning sem gleður,
hræðir, skelfir og hrífur...
heilsteypt flott listaverk."
E.B. Fréttablaðið
"fátt sem geislar jafnmikilli
ástríðu á sviði núna"
M.R. Morgunblaðið
"verkið er unnið af
heiðarleika, alúð og
auðmýkt... Til hamingju!"
Þ.E.S. Víðsjá. RÚV
"unnendur góðrar leiklistar
láti þessa sýningu ekki
fram hjá sér fara"
E.B. Fréttablaðið
Sýnt í Silfurtunglinu, Austurbæ.
Næstu sýningar:
Fös 11/1 kl. 20, uppselt.
lau 12/1 kl. 20,
lau 19/1 kl. 20,
lau 19/1 kl. 22,
fös 25/1 kl. 20, uppselt.
fös 25/1 kl. 22, aukasýning.
lau 26/1 kl. 20
Höfundur: Sam Shepard
Leikstjórn:
Jón Gunnar Þórðarson
Leikarar:
Sveinn Ólafur Gunnarsson,
Þóra Karítas,
Magnús Guðmundsson
KK
Tryggðu þér miða núna!
Miðasala á midi.is
og í síma 551 4700