Fréttablaðið - 11.01.2008, Blaðsíða 30
BLS. 2 | sirkus | 11. JANÚAR 2008
■ Heyrst hefur
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Ritstjóri Marta María Jónasdóttir
martamaria@365.is
Bergþóra Magnúsdóttir
bergthora@frettabladid.is
Forsíðumynd Valgarður Gíslason
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir
kristina@frettabladid.is
Sirkusblaðið Skaftahlíð 24
105 Reykjavík, sími 512 5000
Auglýsingar Guðný Guðlaugsdóttir
sími 512 5462
SKYNDIBITINN: Við Hagia Sofia og
bláu moskuna í hjarta Istanbúl er
veitingastaðurinn Tarihi Sultanahmet
Köftecisi Selim Usta. Hingað hafa
heimamenn skroppið áratugum saman
til að fá sér köfte, þ.e. lambahakkboll-
ur og hrísgrjón sem eru þau bestu í
bænum. Eftir á er tilvalið að gæða sér
á „lokum“, mjúkum sælgætismolum
sem margir þekkja undir nafninu
Turkish delight. Þær bestu í bænum
fást hjá Ali Muhiddin.
BÚÐIN: Tískubúðirnar er að finna á
Istliklal Caddesi en hátískuna í hverfinu
Nisantasi. Grand Bazaar, þessi
goðsagnakenndi, aldagamli yfirbyggði
markaður er ómissandi. Hægt er að
gera stórkostleg kaup, fyrst og fremst
á textíl, silfri og gulli, með nægan tíma
að vopni og vilja til að prútta.
LÍKAMSRÆKTIN: Eftir allan ganginn
um borgina er tilvalið að fara í alvöru
tyrkneskt bað, hamam. Ég mæli með
Cemberlitas Hamami, sem er rétt hjá
Grand Bazaar, þangað sem innfæddir
sækja. Þar fæst ekta nudd og
sápuskrúbb sem gleymist seint, og
andrúmsloftið er engu líkt.
BARINN: Leb-I Derya, sem er á efstu
hæð háhýsis, er besti barinn í Istanbúl
með mögnuðu útsýni yfir fallegasta
hluta Istanbul, Topkapi-höllina og
helstu moskurnar. Maturinn er líka
frábær. Þeir sem vilja alvöru tyrkneskt
kaffi ættu að heimsækja Patisserie
Markiz á Istliklal Caddesi, aðalverslun-
argötu Istanbúl. Hann er innréttaður í
art nouveau-stíl.
VEITINGASTAÐURINN: Vogue, á
efstu hæð háhýsis í hverfinu Besiktas,
hefur stórkostlegt útsýni. Matseðillinn
er metnaðarfullur og um að gera að
koma snemma til að njóta drykkjar á
svölunum. Hægt er að fá sushi,
steikur og dæmigerðan tyrkneskan
mat.
HVAÐ HEILLAR: Það sem heillar við
Istanbúl er þessi einstaka blanda
austurs og vesturs, með því besta frá
hvorum menningarheimi fyrir sig.
Sjarmerandi heimsborg sem er
nauðsynlegt að sækja heim. Enda er
gestrisnin engu lík.
Þ rátt fyrir skjálfta í Kauphöllinni halda bankarnir áfram að ráða
sjónvarpsstjörnur til starfa. Nýjasti
bankastarfsmaðurinn er ofurþulan
Eva Sólan sem hefur verið mikið í fjöl-
miðlum síðastliðin ár. Hún hefur hafið
störf á lögfræðisviði Landsbankans
en hún útskrifaðist með BS í við-
skiptalögfræði frá Háskólanum að
Bifröst síðastliðið vor. Eva Sólan sett-
ist á skólabekk eftir tíu ára hlé og
fluttist í Borgarfjörðinn í kjölfarið.
Hún kláraði námið á methraða, eða á
tveimur árum, með því að stunda
námið líka á sumrin. Nú er hún hins
vegar komin í mastersnám í lögfræði
með vinnunni í Landsbankanum og
er staðráðin í að ná langt. Í viðtali við
Sirkus síðastliðið vor fór hún fögrum
orðum um námið, sem hún sagði að
væri mjög skemmtilegt. Ljóst er að
það er mikill fengur fyrir Landsbank-
ann að fá þuluna um borð og nú verð-
ur tíminn að leiða í ljós hvort Eva yfir-
gefi þulustólinn fyrir bankann. Í
Landsbankanum starfa fleiri stjörnur
en Idol-tvíeykið, Simmi og Jói, starfar
á sölu- og markaðssviði. Óhætt er að
segja að stuðið sé aldrei langt undan
enda eru þeir félagar allt annað en
fúlir og leiðinlegir. Knattspyrnukonan
Ásthildur Helgadóttir hóf einnig
nýlega störf í bankanum en þar starfa
líka fleiri stjörnur úr íþróttalífinu eins
og Björgólfur Takefusa.
Í Glitni halda Jónsi í Svörtum fötum
og Addi Fannar í Skítamóral uppi
stuðinu sem viðburðastjórar bank-
ans. Gítarleikarinn Áki Sveinsson úr
Svörtum fötum starfar einnig í Glitni
en hann starfar í markaðsdeildinni.
Rapparinn og tónlistarmaðurinn
Sölvi Blöndal úr Quarashi er kominn
til starfa í Kaupþingi og tekur sig
miklu betur út í jakkafötum en í
víðum rapparafötum. Nú er bara
spurning hvort popp- og skemmtana-
elítan geti dansað sig í gegnum fall á
fjármálamörkuðum og reynt að lyfta
brúnum skipstjóranna meðan bank-
arnir sigla í gegnum þennan öldu-
gang.
bergthora@frettabladid.is
martamaria@365.is
SKEMMTANAELÍTAN FLYKKIST Í BANKANA
Eva Sólan komin til
LandsbankansSonur þeirra Sigríðar Snævarr og Kjartans
Gunnarssonar,
fyrrverandi
framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokks-
ins, var skírður á
þrettándanum eins og
visir.is greindi frá í
vikunni en skírnin
fór fram í
Dómkirkjunni og
skírnarveislan
var haldin í Iðnó.
Einkasonurinn var skírður Kjartan
Gunnsteinn í höfuðið á föður sínum og
afa, föður Sigríðar, Gunnsteini Ármanni
Snævarr. Athygli vekur að merking
beggja nafnanna tengist vígvelli og
orrustum. En samkvæmt nafnabókinni
merkir nafnið Kjartansnafnið herkonung-
ur en Gunnsteinn þýðir orrustusteinn.
Hvort foreldrarnir hafa
vitað af þessari
merkingu nafnana er
erfitt um að segja
en ljóst er að
Kjartan Gunnsteinn
ber nafn hermannsins
sem ætti að geta
haft sigur í
hvaða orrustu
sem er.
Ásta Andrésdóttir,
ritstjóri á Nýju lífi.
ISTANBÚL
Jói Simmi Ásthildur Addi Fannar Sölvi Jónsi
Eva Sólan
Bahama-barn á leiðinni
S tjörnuparið Völundur Snær Völundarson, kokkur á Bahamaeyjum, og eiginkona hans,
Þóra Sigurðardóttir rithöfundur, eiga von á erf-
ingja. Áætlaður fæðingardagur er 19. júní og ef
barnið verður kvenkyns má ekki búast við öðru en
að það verði mikill kvenskörungur. Þóra er
komin fjóra mánuði á leið og heilsast vel. Þóra
og Völundur giftu sig sumarið 2006 og hafa
búið saman á Bahamaeyjum síðan þá. Þóra er
landsþekkt barnagæla en hún stýrði Stundinni
okkar um nokkurra ára skeið ásamt Jóhanni G.
Jóhannssyni og saman gerðu þau Birtu og Bárð
ódauðleg. Þóra ætti því ekki að vera í vandræðum
með að verða skemmtilegasta mamma í heimi og
spinna upp endalausa leiki með barninu.
„Barnið verður alið upp á endursýning-
um á Stundinni okkar, það ætti ekki
að klikka,“ segir Þóra og hlær og
viður kennir að henni hafi aldrei
liðið betur. Þegar hún er spurð að
því hvort það verði ekki skrýtið að
ala íslenskt barn upp innan um
pálmatré og hvítar tærar strendur
segir hún svo ekki vera. „Ég held að
barnið verði bara miklu frjálsara því
það þarf ekki að vera dúðað eins og ef
við byggjum á Íslandi. Annars verður
þetta bara allt að koma í ljós,“ segir hún.