Fréttablaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 8
8 18. janúar 2008 FÖSTUDAGUR
SKIPULAGSMÁL Samkeppni um
hönnun á Listaháskóla Íslands
(LHÍ) í miðborg Reykjavíkur er
hafin. Er hún í samstarfi LHÍ,
Samson Properties ehf., Arki-
tektafélags Íslands og mennta-
málaráðuneytisins en markmiðið
er að fá fram tillögur sem verði
grundvöllur að hönnun bygginga
sem hýsa munu alla starfsemi
skólans frá haustinu 2011.
Lögð er áhersla á metnaðarfull-
an arkitektúr og að húsnæðið falli
vel að miðborgarumhverfinu enda
er áætlað að um þriðjungur hús-
næðisins verði opinn almenningi
svo skólinn geti glætt miðborgina
auknu lífi með fjölbreytilegu
menningarframlagi, segir í til-
kynningu. Er samkeppnin byggð á
samkomulagi LHÍ, Reykjavíkur-
borgar og menntamálaráðuneytis
frá miðju síðasta ári.
Skiptist samkeppnin í tvö þrep
þar sem öllum er frjálst að taka
þátt. Er skilafrestur til 17. mars
en að því loknu verða valdar fimm
tillögur til áframhaldandi þróun-
ar. Verðlaun, að heildarfjárhæð
átta milljónir króna, verða veitt í
síðara þrepi en þar fá allir þátttak-
endur jafnframt greitt fyrir tillög-
ur sínar.
Stefnt er að lokaniðurstöðu sam-
keppninnar í lok júní næstkom-
andi en í kjölfar þess verður hald-
in sýning á tillögunum. Sjá má
nánari keppnislýsingu á slóðinni
www.ai.is. - ovd
Hafin er samkeppni um hönnun á húsi Listaháskóla Íslands í Reykjavíkurborg:
Skólinn glæði miðborgina lífi
FRÁ UNDIRRITUN SAMKOMULAGSINS
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Lista-
háskóla Íslands, undirritar samkomu-
lag um byggingu nýs húsnæðis fyrir
skólann.
FLUG Flugvél á vegum Plúsferða, Sumarferða og
Úrvals-Útsýnar lenti í slæmu veðri og hrakningum á
heimleið frá Kanaríeyjum á þriðjudaginn var.
Flugvélin ætlaði að millilenda á Spáni til að taka
bensín en gat það ekki vegna veðurs og var þá snúið
til Portúgals. Þar millilenti hún og tók bensín í flugið
heim til Íslands.
Hrakningar flugvélarinnar ollu geðshræringu
meðal farþega og voru nokkrir farþegar farnir að
kasta upp þegar lending á Spáni var reynd. Flug-
þjónar höfðu varla undan við að dreifa ælupokum og
þurfti að láta þrífa vélina í Portúgal þar sem nokkrir
höfðu kastað upp án þess að hafa poka.
Þorsteinn Guðjónsson, forstjóri Ferðaskrifstofu
Íslands, staðfestir að þessar hrakningar hafi átt sér
stað. Hann segir að vélar af gerðinni 737 geti þurft
að millilenda ef vélarnar eru fullar í löngu flugi,
farþegarnir með mikinn farangur og mótvindur er á
leiðinni. Það komi fyrir og sé bara öryggisráðstöfun.
Vélin hafi hætt við lendingu á Spáni vegna þess að
þar hafi verið slæmt veður.
„Flugstjórinn reiknar þetta út þegar allir farþegar
eru búnir að tékka inn og flugstjórinn er með
hleðslutölur og veðurspá,“ segir hann og bendir á að
mjög dýrt sé að millilenda og því sé það aðeins gert
öryggisins vegna. „Þetta er bara ákvörðun flug-
stjóra þegar búið er að tékka inn og allar hleðslutöl-
ur liggja fyrir.“ - ghs
Flugvél á heimleið frá Kanarí lenti í hrakningum á þriðjudaginn var:
Vélin þrifin eftir uppköstin
ÞORSTEINN
GUÐJÓNSSON
RV
U
N
IQ
U
E
01
08
01
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Katrín Edda Svansdóttir,
sölumaður í þjónustuveri RV
Skrifstofuvörur
- á janúartilboði
Á tilboðií janúar 2008
Bréfabindi, ljósritunarpappír,
töflutússar og skurðarhnífur
1.398 kr. ks.
5 x 500 blöð í ks.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
FANGELSISMÁL Hegningarhúsinu á
Skólavörðustíg og Kvennafang-
elsinu í Kópavogi verður lokað
þegar nýtt fangelsi rís á
höfuðborgarsvæðinu, svokallað
Hólms heiðarfangelsi. Þarfa-
greiningu á því fangelsi er lokið
og er stefnt að því að það verði
tilbúið árið 2009.
Páll Winkel fangelsismálastjóri
segir mikið uppbyggingarstarf
hafa verið unnið í fangelsismál-
um að undanförnu. Sem dæmi
megi nefna að á síðasta ári hafi
verið lokið við endurbyggingu
Kvíabryggju og þar fjölgað um
átta rými og öll aðstaða sé til
fyrirmyndar. Þá sé jafnframt
unnið að endurbyggingu fangels-
isins á Litla-Hrauni og verið sé að
leggja lokahönd á endurbyggingu
fangelsisins á Akureyri en þar
munu tvö ný rými bætast við.
Með nýrri byggingu á Hólms-
heiði hefur verið áætlað að 64
rými bætist við. Í svörum Björns
Bjarnasonar dómsmálaráðherra
á Alþingi í gær við fyrirspurn
Sivjar Frið-
leifsdóttur
alþingismanns
um fangelsis-
mál, kom fram
að hugmyndir
væru uppi um
að skoða til hlít-
ar möguleika á
því að hægt
verði að sam-
eina nýtt fang-
elsi og nýjar
höfuðstöðvar
lögreglunnar á
höfuðborgar-
svæðinu í einni
byggingu. Verði
þetta gert er
líklegt að fang-
elsið yrði minna
en áður hefur
verið áætlað.
Í áætlunum um nýtt fangelsi á
Hólmsheiði kemur fram að þar
verði meðferðar- og sjúkradeild
en kostnaður við bygginguna er
talinn verða um tveir milljarðar.
„Ég held að þetta sé mjög góð
hugmynd og þess virði að skoða
hana algerlega ofan í kjölinn,
hvort ekki sé hægt að slá tvær
flugur í einu höggi,“ segir Stefán
Eiríksson, lögreglustjóri höfuð-
borgarsvæðisins. Hann bendir á
að fangelsið á Hólmsheiði sé
fyrst og fremst hugsað fyrir
gæsluvarðhaldsfanga. Á meðan
mál þeirra séu í rannsókn sé hent-
ugt að hafa þá í nálægð við þá
sem rannsaka málið en nú séu
ferðir á Litla-Hraun vegna rann-
sókna tíð. „Bara af þeirri ástæðu
held ég að það sé skynsamlegt,“
segir hann en bætir við að auk
þess kunni einnig að vera hag-
stætt fjárhagslega að hafa stofn-
anirnar í sameiginlegri bygg-
ingu.
karen@frettabladid.is
Styttist í endalokin
hjá Hegningarhúsinu
Nýtt fangelsi á Hólmsheiði mun leysa Hegningarhúsið við Skólavörðustíg og
Kvennafangelsið í Kópavogi af hólmi. Þar er gert ráð fyrir meðferðar- og sjúkra-
deild. Kostnaðurinn um tveir milljarðar. Góð hugmynd, segir lögreglustjóri.
KÓPAVOGSFANGELSIÐ Bæði húsin þykja börn síns tíma og því hefur töluvert verið ýtt á eftir uppbyggingu nýs fangelsis á
höfuðborgarsvæðinu sem nú er talað um að gæti einnig hýst höfuðstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Að auki
hefur verið bent á þörf á að bæta úr þeim húsakosti sem nú er til staðar við Hverfisgötu.
STEFÁN EIRÍKSSON
PÁLL WINKEL