Fréttablaðið - 18.01.2008, Síða 48
BLS. 12 | sirkus | 18. JANÚAR 2008
Sirkusstjórinn stundar
næturlífið af miklu
kappi þessa dagana
enda fátt annað að
gera í kuldanum og
skammdeginu en að
lyfta sér upp með
örlítilli brjóstbirtu og
barferðum. Á
föstudagskvöldið var
leikkonan Þóra Karitas Árnadóttir með
öllu genginu úr sýningunni Fool 4 love á
Boston. Þar var líka Sara Dögg
Ásgeirsdóttir leikkona sem fer með
aðalhlutverk Pressunnar en hún getur
heldur betur fagnað góðu gengi þáttarins
sem virðist njóta mikilla vinsælda.
Leikararnir Stefán Hallur Stefánsson og
Viktor Már Bjarnason voru
áberandi á Ölstofunni þetta
sama kvöld og Baggalúts-
bróðirinn Karl Sigurðsson
lék þar við hvurn sinn
fingur. Hinn eini sanni
Manni, Einar Örn
Einarsson, var
þar líka, þó án
félaga síns
Garðars Thors
Cortes. Á
laugardagskvöldið
virtist vera það
sama upp á
teningnum eins og
föstudagskvöldið en leikarar og
kvikmyndagerðarfólk virtust vera í öðru
hverju horni. Ragnar Bragason leikstjóri
var á Boston ásamt eiginkonu sinni,
Helgu Rós Hannam búningahönnuði, og
nutu þau félagsskapar leiklistarnemanna
Lilju Nóttar Þorsteinsdóttur og Vigdísar
Másdóttur. Jörundur Ragnarsson,
leikarinn góðþekki úr Næturvaktinni, leit
þar sömuleiðis við ásamt kærustu sinni,
Dóru Jóhannsdóttur leikkonu. Þar var
líka leikstjórinn Baltasar Kormákur.
Ölstofan var full af fólki þetta sama kvöld
þar sem listamenn og blaðamenn drukku
frá sér kulda og hroll. Hallgrímur
Helgason, rithöfundur og myndlistarmað-
ur, lét sig ekki vanta og var í miklu stuði
sem og sjálfur Megas sem stóð við
barinn reffilegur og hress. Þar var einnig
spjátrungurinn Skjöldur sem stóð vaktina
á sinni eigin Ölstofu og ræddi málin við
gesti og gangandi. Sirkusstjórinn hefði
vel getað dvalið
lengur við á
Ölstofunni en
skynsemin tók
öll völd og
haldið var heim
á leið eftir mjög
skemmtilegt og
hressandi kvöld.
■ Hverjir voru hvar?
AFMÆLISBARN KVÖLDSINS María Guðrún
Rúnarsdóttir var ævintýralega fögur með
rauða spöng eftir Thelmu í hárinu.
GLÆSILEGAR Birta Ísólfsdóttir og Laufey
Lúðvíksdóttir, nemar í fatahönnun, voru
flottar.
AFMÆLISGLEÐI Myrra Rós Þrastardóttir, Katla Maríudóttir og Anna Rakel Róbertsdóttir
voru í miklu stuði.
BROSTU SÍNU BLÍÐASTA Björgvin Óli Friðgeirsson
og Katla Rós Völudóttir nemar í grafískri hönnun.
BRUGÐIÐ Á LEIK Guðmundur Vestmann og Benjamín
Mark Stacey nemi í grafískri hönnun sýndi í sér
tennurnar.
GLANSANDI GLAMÚR Ýr Þrastardóttir nemi í fatahönnun og Ásgrímur Már
fatahönnuður tóku sig vel út í bronslituðum buxum.
Litrík afmælisgleði á Prikinu
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/A
UÐ
UN
N
Það var
margt um
manninn á Prikinu á
föstudagskvöldið en þar hélt
María Guðrún Rúnarsdóttir, nemi
á fyrsta ári í grafískri hönnun í
Listaháskólanum, upp á afmælið
sitt. María ákvað að taka afmælis-
haldið með trompi þetta árið og
bauð öllum fyrsta árs nemum í
hönnunardeild listaháskól-
ans í afmælið sitt.
Kvikmyndin Brúðguminn í leikstjórn Baltasars Kormáks var frumsýnd á
miðvikudagskvöld í Háskólabíói við góðar undirtektir. Myndin byggir á
leikverkinu Ivanov eftir Tsjekov en leikverkið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu um
jólin af sama leikhópi og kemur fram í myndinni. Leikstjórinn Baltasar
Kormákur og leikarinn Ólafur Egill Egilsson unnu handritið út frá leikverkinu.
Það var margt um manninn á frumsýningunni og eftirvænting frumsýningar-
gesta leyndi sér ekki en fyrir frumsýninguna var móttaka í Háskólabíói.
■ Brúðguminn frumsýndur Frumsýningargestir flykktust í Háskólabíó
BROSMILD Bakari Íslands, Jói Fel, og
eiginkona hans, Unnur Gunnarsdóttir,
ljómuðu enda sólbrún og sæl.
EFTIRVÆNTINGIN LÁ Í LOFTINU Guðrún
Sesselja Arnardóttir og Bergljót Rist
brostu út að eyrum.
FLOTTIR
Ragnar Davíð
Baldvinsson
og Stjörnu-
leikarinn
Kjartan
Guðjónsson
voru reffilegir.
RÁÐHERRANN OG FRÚIN Ágústa Johnson og Guðlaugur
Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra.
Í BLÍÐU OG STRÍÐU Batasar Kormákur og eiginkona hans, Lilja Pálmadóttir,
eru samhent hjón, en Lilja er meðframleiðandi Brúðgumans,