Fréttablaðið - 18.01.2008, Síða 70
38 18. janúar 2008 FÖSTUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
DAGSKRÁ OG MIÐASALA Á MIÐI.IS - ALLT UM MYNDIRNAR Á GRAENALJOSID.IS OG AF.IS - ALLAR MYNDIR MEÐ ENSKUM TEXTA
SÍMI 462 3500
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
16
10
16
7
10
7
BRÚÐGUMINN kl. 6 - 8 - 10
ALIEN VS PREDATOR 2 kl. 8 - 10*
THE GOLDEN COMPASS kl. 6
*kraftsýning
16
10
16
12
16
BRÚÐGUMINN kl. 6.30 - 8.30 - 10.30
LUST CAUTION kl.6 - 9
ÍM NOT THERE kl.6 - 9 ótextuð
WE OWN THE NIGHT kl. 8 - 10.30
RUN FAT BOY RUN kl.5.30
BRÚÐGUMINN kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
BRÚÐGUMINNLÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
ALIEN VS PREDATOR 2 kl. 6 - 8 - 10.10
THE MIST kl. 8 - 10.40
THE GOLDEN COMPASS kl. 5.30 - 8 - 10.30
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 4 ÍSLENSKT TAL
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 4 - 6 ENSKT TAL
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 3.45
BRÚÐGUMINN kl. 6 - 8 - 10
THE NANNY DIARIES kl. 8 - 10.20
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 6
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
MOLIERE kl. 10
VONBRIGÐI kl. 10
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ 11.-24. JANÚAR
LÖGMAÐUR HRYÐJUVERKANNA kl. 5.30
LOFAÐU MÉR kl. 6
SÍÐASTI GEÐSJÚKLINGURINN kl. 8
TVEIR DAGAR Í PARÍS kl. 8
11.-24. janúar í Háskólabíói
NÚ M ÆTAST ÞAU AFTUR!
TVÖ HÆTTULEGUSTU SKRÍMSLI
KVIKMYNDASÖGUNNAR Í TVÖFALT BETRI MYND!
FRÁBÆR NÝ GAMANMYND EFTIR
BALTASAR KORMÁK!
TÖFRAPRINSESSAN mögnuð spennumynd
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
fyndnasta breska gamanmynd síðan
„FOUR WEDDINGS AND A FUNERAL“
FRÁ LEIKSTJÓRA „WHAT ABOUT BOB“
ÁLFABAKKA KEFLAVÍK
KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSS
THE GAME PLAN kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 L
NAT. TREASURE 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
NAT. TREASURE 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 VIP
DEATH AT A FUNERAL kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 7
I AM LEGEND kl. 6 - 8 - 10:10 14
TÖFRAPRINSESSAN M/- ÍSL TAL kl. 3:20 L
ENCHANTED M/- ENSK TAL kl. 5:50 - 8 L
AMERICAN GANGSTER Síð. sýn kl. 10:20 16
BÝFLUGUMYNDIN M/- ÍSL TAL kl. 4 L
DIGITAL
THE GAME PLAN kl. 3:40 - 6 - 8 - 10:20 L
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 - 8:20 - 10:20 7
I AM LEGEND kl. 6 14
NAT. TREASURE 2 kl. 8 - 10:30 12
TÖFRAPRINSESSAN ÍSL TAL kl. 3:40 L
BÝFLUGUMYNDIN M/- ÍSL TAL kl. 4D LDIGITAL
BRÚÐGUMINN kl. 8 - 10 L
GAME PLAN kl.5:45-8-10:20 L
ALVIN OG ÍKOR... ÍSL TAL kl. 6 L
BRÚÐGUMINN kl. 8 - 10:10 7
SIDNEY WHITE kl. 8 7
NAT. TREASURE 2 kl. 10:10 12
THE GAME PLAN kl. 6 - 8 - 10 L
TÖFRAPRINSESSAN ÍSL TAL kl. 6 L
NATIONAL TREASURE kl. 8 12
I AM LEGEND kl. 10:20 16
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
BRÚÐGUMINN 4, 6, 8 og 10 7
ALIENS VS PREDATOR 2 kl. 8 og 10 16
THE GOLDEN COMPASS kl. 5, 8 og 10.15 10
ALVIN OG ÍKORNARNIR - ÍSL TAL kl. 4 og 6 L
Sá veruleiki sem birtist okkur hér
er víðs fjarri krúttunum í Amélie
eða Parísarpóstkortum með mynd-
um af Eiffelturni og alpahúfum.
Joseph rekur kickboxing-klúbb þar
sem dóttir hans og stjúpdóttir berja
aðrar unglingsstúlkur til óbóta eða
eru sjálfar barðar sundur og saman.
Þess á milli heldur hann framhjá,
eins og venja er í frönskum kvik-
myndum, og á í mestu erfiðleikum
með að borga rafmagnsreikninginn.
Keppni er að lokum haldin þar sem
bardagi við höfuðandstæðinginn er
endurtekinn og örlög klúbbsins eru í
húfi. Ættu nú leikslok að vera ljós,
þar sem önnur hvor stúlkan mun
sigrast á ofureflinu eins og kven-
kyns Rocky og bjarga málunum. En
svo er þó ekki. Aðalatriðið hér er
ekki að sigra eða tapa, heldur er því
velt fyrir sér hvers virði íþróttin er.
Hefur Joseph kannski sóað lífi sínu,
orðinn of gamall til að keppa sjálfur,
á lítið annað eftir en minningarnar
og veltir draumunum yfir á börnin?
Þrátt fyrir að stúlkur séu hér að
berja hvor aðra til blóðs er myndin
hvorki sérstaklega feminísk (stelp-
ur geta lamið hvor aðra alveg eins
og strákar) né klámfengin (leðju-
glíma án leðjunnar). Samband
stúlknanna er hér í forgrunni, og
eitt og annað sem gerðist í fortíð
foreldranna sem kemur upp á yfir-
borðið. En því miður er ekki kafað
nógu djúpt ofan í neina af hinum
þremur aðalpersónum. Og líklega
er það rétt að það að sigra í hnefa-
leikakeppni er ekki það mikilvæg-
asta í lífinu. En það er heldur ekki
gefið í skyn hvað það er sem skiptir
meira máli. Valur Gunnarsson
Hin hliðin á Frakklandi
KVIKMYNDIR
Í köðlunum (Dans les Cordes)
Leikstjóri: Magaly Richard-Serrano
Sýnd á Franskri kvikmyndahátíð í
Háskólabíói.
★★★
Í köðlunum er kærkomin tilbreyting
frá bandarískum íþróttamyndum jafnt
sem kvikmyndum sem sýna aðeins
fegurri hluta Frakklands. Hún forðast
flestar klisjur, en markar sér ekki alveg
nógu skýra braut sjálf til að geta talist
fyrsta flokks.
Þeir Atli Rúnar Hermannsson,
oftar en ekki kallaður skemmt-
analögga, og Erpur Eyvindarson,
rappari með meiru, skemmta
gestum á Hverfisbarnum í kvöld.
Þessi ólíklegi dúett hefur spilað
saman í þrjú ár, en þetta verður í
fyrsta sinn sem þeir koma opin-
berlega fram saman í höfuðborg-
inni.
„Við erum vinir, eins ótrúlega
og það hljómar,“ segir Atli og
hlær. Þeir aðhyllast ansi ólíkar
tónlistarstefnur, enda er Atli
ekki þekktur fyrir að vera harð-
ur hipphoppari. „Við tókum eitt
flippkvöld fyrir slysni fyrir
þremur árum og það heppnaðist
svo vel að við höfum haldið þessu
áfram,“ segir hann.
Atli og Erpur munu þeyta
saman skífum í kvöld en auk þess
mun Erpur stökkva inn og rappa
í nokkur skipti yfir kvöldið. „Ég
er bókstaflega að bjarga mann-
orðinu hjá þessum annars ágæta
dreng. Hann hefur í allan vetur
gert lítið annað en að kommenta í
söngvakeppni samkynhneigðra í
þætti sem kallast laugardagslág-
kúran, eða eitthvað álíka. Nú fær
hann tækifæri til að sýna hinn
rétta Erp og garga í mæk,“ segir
Atli ábúðarfullur.
Atli kemur Erpi til bjargar
ÓLÍKLEGUR DÚETT Atli skemmtanalögga
og Erpur Eyvindarson koma hvor úr
sinni áttinni. Þeir skemmta gestum
Hverfisbarsins í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Uppistandarinn Rökkvi Vésteinsson hefur
tekið við stjórn síðunnar Uppistand.is og
rekur hana nú í góðgerðaskyni. Hann telur
að forsvarsmenn keppninnar Fyndnasti
maður Íslands hafi skaðað uppistandsferil
sinn. Einn þeirra, Oddur Eysteinn Friðriks-
son, vísar gagnrýninni á bug.
Rökkvi, sem á lénið Uppistand.is, segist hafa tekið við
stjórn síðunnar vegna þess hversu illa hún var rekin.
Auk þess telur hann að forsvarsmenn Fyndnasta
manns Íslands hafi skaðað uppistandsferil sinn. „Ég er
mjög óánægður með hvernig þeir stóðu sig sem
umboðsmenn fyrir mig,“ segir Rökkvi, sem var lítið
sem ekkert bókaður eftir keppnina í fyrra. Fékk hann
þær skýringar að hann ætti sjálfur að sjá um sinn
uppistandsferil en ekki þeir.
Leit út eins og asni
Rökkvi er einnig ósáttur við sýningu Fyndnasta manns
Íslands á Skjá einum. „Fyrsti þátturinn sem ég var í
var mjög illa framleiddur. Það heyrðist ekki hlátur í
áhorfendunum og ég leit út eins og asni uppi á sviði,“
segir hann. „Auk þess voru undanúrslitin þannig að
sigurvegararnir voru mældir með desibil-mæli eftir
keppni,“ útskýrir Rökkvi og telur að það hafi gefið
mjög villandi niðurstöðu. Lenti hann í síðasta sæti í
sínum riðli á eftir óreyndum andstæðingum en sjálfur
vann hann uppistandskeppni í Kanada árið 2006.
Milljón til góðgerðamála
Rökkvi, sem starfar sem forritari, ætlar að safna einni
milljón til ýmissa góðgerðamála með uppistandi sínu á
næstunni. Segist hann ekki þurfa á peningunum að
halda enda sé uppistand eingöngu áhugamál hjá sér.
„Ég er í raun bara mjög heppinn að vera ekki fatlaður
að neinu leyti eða með sjúkdóm og ég þakka fyrir að
hafa ekki lent í neinni meiri háttar ógæfu í lífinu. Það
þarf að borga peninga til að ráða mig og þetta er bara
umsemjanlegur taxti sem rennur allur til góðgerða-
mála.“ Einnig stefnir Rökkvi að því að halda eitt stórt
góðgerðauppistand þar sem allur aðgangseyrir rennur
til ákveðinna góðgerðasamtaka.
Sár að komast ekki áfram
Uppistandarinn Oddur Eysteinn Friðriksson, einn af
forsvarsmönnum Fyndnasta manns Íslands, vísar
gagnrýni Rökkva til föðurhúsanna. „Hann er bara sár
að komast ekki áfram fram yfir einhverja sem höfðu
enga reynslu. Það vissu allir hvernig yrði ráðið í sætin
áður en keppnin fór fram,“ segir Oddur Eysteinn og
bætir því að Rökkvi hafi lent í útistöðum við marga
grínista, þar á meðal Þórhall Þórhallsson, fyndnasta
mann Íslands. „Þekktir grínistar neituðu að vinna með
okkur af þeirri ástæðu að Rökkvi væri með okkur,
þannig að þetta er eiginlega bara ágætt fyrir okkur að
hann er hættur hjá okkur,“ segir Oddur.
Kvartað yfir Rökkva
Hvað varðar lélega umboðsmennsku fyrir Rökkva
hefur Oddur þetta að segja: „Það er erfitt að selja
skemmda vöru. Það kom fyrir að það var kvartað
undan honum og það var engin eftirspurn eftir honum
hjá okkur.“
Oddur segir það gott hjá Rökkva að gefa ágóða sinn
til góðgerðamála, enda var það sama gert á uppistands-
kvöldunum í fyrra. „Mér finnst þetta samt komið út í
svolitlar öfgar hjá honum því
hann er að selja sig ódýrt.
Hann er bara að gera þetta
til að koma sjálfum sér á
framfæri og reyna að fá
einhverja vinnu.“
Að sögn Odds stendur
undirbúningur yfir vegna
Fyndnasta manns Íslands
2008 og leitar fyrirtækið sem
sér um keppnina, Netmiðlar
hf., að nýrri heimasíðu til að
kynna hana.
freyr@frettabladid.is
Uppistandarar í uppnámi
RÖKKVI VÉSTEINSSON Uppistandarinn Rökkvi Vésteinsson
hefur tekið við stjórnartaumunum á síðunni Uppistand.is.
ODDUR EYSTEINN FRIÐ-
RIKSSON Oddur vísar
gagnrýni Rökkva til föður-
húsanna.