Fréttablaðið - 07.03.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Margrét Ósk Marinósdóttir er hrifin af sterkum
mat. Hún hræðist ekki að nota sterk krydd og
það er ástæðan fyrir því að uppáhaldsrétturinn
hennar er mexíkósk súpa með kjúklingi sem hún
smakkaði fyrst hjá vinkonu.
„Súpan er mjög hressandi og vinnur vel á k
eru margir kvefaði
cestershire-sósu, tvær dósir af niðursoðnum tómöt-
um og fjórar til sex kjúklingabringur. „Ef fólk vill
hafa súpuna sterkari þá bætir það við magnið á
kryddinu sem er gefið upp. Ég hef stundum bætt við
tómatpúrru,“ segir Margrét Ósk.Aðferðin er þannig að tveier sett í
Kusmi-te er framleitt af Kusmi-fyrirtækinu sem var stofnað í Pétursborg árið 1867 undir nafn-inu P.M. Kousmichoff. Fyrirtækið var síðan flutt til Frakklands árið 1917 og nafnið stytt í Kusmi. Teið er nú fáanlegt á Íslandi og fæst í versluninni Snúðar og snældur á Selfossi.
Súkkulaðiegg má vel búa til heima hjá sér þó að þau verði kannski ekki jafn glæsileg og þau búð-arkeyptu. Ef börn eru á heimilinu er tilval-ið að gefa sér tíma með fjölskyldunni um helgina og prófa sig áfram í eggjaframleiðslu.
Samloka er ekki það sama og samloka. Þeim sem taka oft með sér nesti er nauðsynlegt að skipta reglulega um brauðtegundir og prófa sig áfram með álegg. Þetta á líka við um börnin og óþarfi að senda þau alltaf með sömu samlokuna í skólann.
Bragðgóð og sterk
Margrét segir að auk þess að vera bragðgóð sé súpan mjög góð við kvefi
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
VEISLUBAKKARMEÐ LITLUMFYRIRVARA
554 6999 | www.jumbo.is
TORTILLA
& PÓLARBRAUÐ
3.480 kr.
36BITAR
útivera & heilsaFÖSTUDAGUR 7. MARS 2008
Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
7. mars 2008 — 66. tölublað — 8. árgangur
MARGRÉT ÓSK MARINÓSDÓTTIR
Sterk mexíkósk súpa
góð í flensutíðinni
matur
Í MIÐJU BLAÐSINS
ÚTIVERA OG HEILSA
Landið séð í
gegnum linsuna
Sérblað um útiveru og heilsu
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Merzedes
Club er pönk
Ceres 4 hefur í
nógu að snúast.
FYLGIR FRÉTTA-
BLAÐINU Í DAG
FÖSTUDAGUR7. MARS 2008
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
Ceres
Vöðvar, brúnkukrem
& sérkennsla
BORGHILDUR ÍNA
SÖLVADÓTTIR
hannar jákvæð föt
RÍKU KONURNAR
FLYKKJAST Í
FIÐRILDAVEISLU
Miðinn kostar 70 þúsund
VERA
WANG
á leið til Íslands
4
VEÐRIÐ Í DAG
28. febrúar
til 9. mars
Opið 10–18
alla daga
Spurt er um lið
MR borðar bakkelsi en Borgar-
holtsskóli spilar ólsen-ólsen til að
búa sig undir seinni hluta undan-
úrslita í Gettu betur.
FÓLK 42
Þið munið
hann Jörund
Ungmennafélag
Reykdæla 100 ára.
Frumsýnir í Loga-
landi í kvöld.
TÍMAMÓT 32
VIÐSKIPTI „Ef ég lít til baka á fjárfestingar
Kaupþings á ég erfitt með að sjá að við
höfum almennt farið of geyst í fjárfesting-
um okkar,“ segir Sigurður Einarsson,
stjórnarformaður Kaupþings, í grein í
Fréttablaðinu í dag.
Hann segir að hafa verði í huga hversu
miklu fjárfestingar bankans hafi skilað.
„Ég leyfi mér að efast um að staða Kap-
þings væri betri nú ef við hefðum ekki
keypt þessi fyrirtæki.“ Sigurður segir að
bankarnir hafi vaxið hratt á liðnum árum
og það hafi skilað miklum verðmætum inn í
íslenskt samfélag með góðri þjónustu,
miklum skatttekjum og vel launuðum
störfum.
„Ekkert bendir til þess að sú þróun sé á
enda, þótt það kunni að hægja á henni um
stundarsakir og jafvel þótt komi tíma-
bundið bakslag.“ - bg / sjá síðu 24
Stjórnarformaður Kaupþings segir mikið kynningarstarf bankanna fyrir höndum:
Kaupþing ekki farið of geyst
SIGURÐUR
EINARSSON
MENNING Leikhús Helga Björns-
sonar tónlistarmanns, Admirals-
palast, hefur verið tilnefnt til Der
Deutsche Live Entertainment-
Preis – eða þýsku menningarverð-
launanna. Afhending fer fram á
þriðjudag.
Admiralspalast er mikið hús í
hjarta Berlínar þar sem fer fram
fjölþætt menningarstarfsemi.
Húsið er á fimm hæðum og er
2.500 fermetrar. Helgi ætlar að
mánaðarlega komi um 50 þúsund
gestir í húsið. „Þjóðverjar eru
duglegir að fara í leikhús og
sækja skemmtanir,“ segir Helgi,
sem lætur afar vel af sér í Berlín.
- jbg / sjá síðu 50
Gott gengi í Berlín:
Leikhús Helga
Björns tilnefnt
ORKA Meirihluti stjórnar Orkuveitu
Reykjavíkur hefur hug á því að
kaupa lóð og hús Osta- og smjörsöl-
unnar að Bitruhálsi 2.
Lóðin er 33.092 fermetrar að
stærð og húsið 4.723 fermetrar.
Fasteignamat ríkisins metur lóðina
á 181.750.000 en húsið á 756.300.000.
Samtals á 938.050.000 krónur.
Raunverulegt markaðsverð er
væntanlega eitthvað hærra.
Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri
Orkuveitunnar, segir að þáverandi
meirihluti sjálfstæðismanna og
Framsóknarflokks hafi gert þetta
að tillögu á sínum tíma.
„Og nú er málið komið á ákvörð-
unarstig stjórnar og það er hjá
henni,“ segir hann.
Kjartan Magnússon, stjórnarfor-
maður Orkuveitunnar, vill ekki tjá
sig um málið en staðfestir að það
sé í skoðun.
Með kaupum á lóðinni er fyrst og
fremst hugsað til framtíðar, að
sögn forstjórans. Þar fá vinnu-
flokkar fyrirtækisins rými fyrir
áhaldahús undir tól og tæki. Að
auki skortir fleiri bílastæði fyrir
starfsmenn Orkuveitunnar, þrátt
fyrir þriggja hæða bílastæðahús
fyrir austan Orkuveituhúsið.
Einnig er gert ráð fyrir að Orku-
veitan hýsi orkuskólann REYST
þegar fram líða stundir. Til greina
mun koma að sameina lóðir Smjör-
sölu og Orkuveitu í framtíðinni og
ekki er loku fyrir það skotið að
byggt verði.
Orkuveituhúsið kostaði á sínum
tíma eina 5,8 milljarða króna en
átti að kosta jafnmikið og húsnæði
þeirra fyrirtækja sem sameinuð-
ust í Orkuveitunni. Söluandvirði
þeirra var 1,8 milljarðar og fór því
Orkuveituhúsið fjóra milljarða
fram úr áætlun.
Mikill kostnaður við byggingu
hússins var gagnrýndur mjög, sér-
staklega af þáverandi minnihluta
sjálfstæðismanna. - kóþ
Orkuveitan vill kaupa
lóð og hús á milljarð
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur hug á að kaupa 33.000 fermetra lóð Osta-
og smjörsölunnar að Bitruhálsi og 4.700 fermetra hús. Lóðin og húsið eru metin
samtals á 938 milljónir í fasteignamati. Markaðsverð er væntanlega hærra.
BREYTILEG ÁTT Í dag verður
norðaustan strekkingur á Vestfjörð-
um, annars hæg breytileg átt. Víða
snjó- eða slydduél en þurrt fyrir
austan. Léttir til norðaustanlands
eftir hádegi.
VEÐUR 4
1
0 0
2
1
ORKUMÁL Heildarkostnaður við
Kárahnjúkavirkjun verður að
líkindum um 133,3 milljarðar
króna, 17,7 milljörðum hærri en
uppreiknuð kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á.
Álfheiður Ingadóttir, þing-
maður Vinstri grænna, segir að í
skýrslu iðnaðarráðherra sem lögð
var fyrir Alþingi í gær komi í
fyrsta skipti fram að áætlanir um
ófyrirséðan kostnað hafi ekki
dugað til að mæta kostnaði. Í
skýrslunni er verið að bera
saman epli og appelsínur með því
að bera saman upphaflega áætlun
og endanlegan kostnað, segir
Álfheiður. Réttara væri að bera
saman verksamninga og kostnað.
- bj / sjá síðu 2
Kostnaður við Kárahnjúka:
Framúrkeyrslan
17,7 milljarðar
VINNA Á KÁRAHNJÚKUM Ráðgert er að
heildarkostnaður við virkjunina verði
133,3 milljarðar króna.
Stjarnan felldi
tvö lið
Hamar og Fjölnir
féllu bæði úr Iceland
Express-deildinni í
körfubolta eftir sigur
Stjörnumanna á ÍR.
ÍÞRÓTTIR 46
FLÝTTI SÉR OF MIKIÐ OG HAFNAÐI OFAN Á TJÖRNINNI Karlmaðurinn ungi sem ók allt of geyst miðað við aðstæður á Skothúsvegi
í gær slapp ómeiddur eftir að hafa misst stjórn á bíl sínum þegar hann ætlaði að taka fram úr á brúnni. Lögregla telur að bíll hans
hafi að minnsta kosti farið eina veltu áður en hann hafnaði ofan á ísilagðri tjörninni skammt vestan við brúna. Ökumanninum
tókst sjálfum að komast úr bíl sínum og upp á tjarnarbakkann. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÖSTUDAGUR