Fréttablaðið - 07.03.2008, Side 38
É
g vil leggja áherslu á það
að hljómsveitin Mercedez
Club er ekkert hnakkaband.
Hljómsveitin er eitt það
mesta pönk sem ég hef komist í
kynni við fram til þessa,“ segir
Hlynur Áskelsson, betur þekktur
sem tónlistarmaðurinn CERES4.
Þátttaka hans í atriðinu kom mörg-
um á óvart þar sem appelsínugult
litarhaft, dúndrandi teknótakt-
ur og glimmersprengingar hafa
ekki einkennt tónlistarflutning
hans hingað til. „Hugmyndafræði
pönksins er að raska og rugga
ríkjandi gildum og viðmiðum en
það var nákvæmlega það sem við
gerðum með Ho ho ho we say hey
hey hey. En að mínu mati breytti
það innlegg Laugardagslögunum
til hins betra þar sem keppnin var
frekar flöt áður en við komum að
henni,“ segir CERES4 en það má
með sanni segja að brúnkusmurð-
ir kroppar hljómsveitarinnar hafi
unnið hug og hjörtu landsmanna
miðað við þær frábæru viðtök-
ur sem lagið fékk. Brúnkuna fékk
þó CERES4 ekki í vöggugjöf enda
kríthvítur Íslendingur í húð og
hár. „Eftir fyrstu upptöku á æf-
ingu í sjónvarpssal var deginum
ljósara að það þyrfti að gera eitt-
hvað við mig. Ég féll ekki alveg
inn í hópinn og var eins og rækja
á litinn við hliðina á hinum með-
limum bandsins. Mér var með það
sama skellt í hendurnar á sjálf-
um Gaz Man sem tókst að breyta
mér í Indverja enda með BA-próf í
brúnkufræðum,“ segir CERES4 og
tekur það fram að brúnkukremið
hafi verið nauðsynlegt til að full-
komna heildarútlitið á bandinu.
„Ég er mjög týndur í öllum skil-
greiningum á fólki og veit varla
hvað fellur undir það að vera kall-
aður hnakki,“ segir CERES4 sem
átti þó ekki sín jómfrúarkynni af
hnökkum Íslands nú í forkeppni
Eurovision en hann og Ásgeir Kol-
beinsson, oft kallaður yfirhnakki
Íslands, unnu saman á sínum tíma.
„Mér líður vel með þessum strák-
um enda er varla hægt að hugsa
sér skemmtilegri félagsskap.
Gillz, Gaz Man og Party Hanz eru
harðduglegir, heilbrigðir og upp-
átækjasamir og að mörgu leyti
ekkert ólíkir mér hvað það varð-
ar en eins og sagt er þá sækir
líkur líkan heim,“ segir CERES4
og bætir því við að hann sjái ekk-
ert athugavert við það að lita á sér
hárið eða smyrja sig með brún-
kukremi ef tilgangurinn helgar
meðalið.
Tekinn?
„Ég fékk símtal frá Valla Sport,
umboðsmanni Mercedez Club, á
þriðjudagskvöldi, fjórum dögum
fyrir sjálfa undankeppnina, þar
sem hann spurði mig einfaldlega
hvort ég væri til í að vera með í
lagi Barða Jóhannssonar,“ upp-
lýsir CERES4 um aðdragandann
að þátttöku sinni í keppninni en
á þeim tímapunkti var lagið ekki
fullklárað. „Ég spurði hvort hann
væri að grínast í mér. Grafalvar-
legur svaraði hann nei og boðað-
aði mig í upptökuver í Kópavogi
kvöldið eftir klukkan átta. Rétt
áður en ég lagði af stað fékk ég
símtal frá Barða þar sem hann
seinkaði upptökunum til klukk-
an tíu og síðan aftur til tólf á
miðnætti. Á þeirri stundu var ég
sannfærður um það væri verið að
fíflast með mig,“ segir CERES4
sem mætti þar af leiðandi frekar
afslappaður í upptökuna og bjóst
við að vera enn eitt fórnarlambið í
þætti Auðuns Blöndal, Tekinn. „Til
að byrja með var ég látinn telja
upp að tíu á þýsku, öskra Pump
up the base, Move og hardcore. Ég
var allan tímann að reyna að finna
út hvar falda myndavélin væri og
beið eftir að heyra æpt TEKINN!
En allt kom fyrir ekki.“ Tveimur
dögum seinna fékk hann að heyra
útkomuna á laginu sem var svo
sannarlega ekkert plat og hvað þá
viðtökurnar sem lagið og hjóm-
sveitin Mercedez Club fékk. „Í
síðustu viku spiluðum við í Digra-
nesskóla, gamla skólanum hans
Gillz, þar sem 130 unglingar öskr-
uðu næstum rúðurnar úr húsinu
af æsingi. Daginn eftir spiluðum
við uppi í Öskjuhlíðarskóla og þar
var hamagangurinn engu minni,
ég bara roðnaði í gegnum brúnku-
kremið,“ segir CERES4 en öðrum
eins móttökum hefur hann ekki
kynnst áður. „Það er óneitanlega
gaman að sjá og upplifa hvað við
höfum hreyft við mörgum en það
er einmitt það sem listin gengur
út á,“ bætir CERES4 við en í burð-
arliðnum er plata með Mercedez
Club þar sem Barði mun sjá um
listræna stjórnun og lagasmíðar.
Eins og fjórtán hjóla trukkur
Hlynur viðurkennir að það hafi
verið vonbrigði að lenda í öðru
sæti. „En þegar horft er á heild-
armyndina verður það að teljast
frábær árangur að hafa lent í öðru
sæti. Við erum komin með plötu-
samning og bókuð fram í tímann
og það verða að teljast forrétt-
indi,“ segir Hlynur sem er keppn-
ismaður fram í fingurgóma. „Ég
hef sjálfur gefið út þrjá geisla-
diska og hef þurft að berjast fyrir
því að koma þeim á koppinn. Allt
frá því að fjármagna þá, halda
tónleika, fá hillupláss í plötubúð-
um og útvarpsspilun. Ég er því
afar þakklátur fyrir stöðuna sem
við erum í í dag,“ bætir hann við
og þakkar það m.a. kraftmiklum
anda hljómsveitarinnar enda er
þar valinn maður í hverri stöðu.
„Þetta er hópur sem er tilbúinn
að leggja á sig mikla vinnu. Oft á
tíðum virkar hljómsveitarbrans-
inn þannig að einhver einn dreg-
ur vagninn en Mercedez Club er
aftur eins og fjórtán hjóla trukk-
ur með drif á öllum.“
Hreysti og vöðvamassi hljóm-
sveitarmeðlima hefur ekki farið
framhjá neinum og þar gefur
CERES4 ekkert eftir en frá því
hann man eftir sér hefur hann
alltaf viljað vera léttur, sterkur
og frár á fæti. „Ég var alinn upp
við hollt mataræði og heilbrigði
og það hefur fylgt mér alla tíð. Ég
er kominn af mjög sterku og dug-
miklu fólki sem dáið hefur í hárri
elli á tíræðisaldri og þannig er
ég sjálfur. Ég er harður við sjálf-
an mig, ósérhlífinn og hef komist
þangað sem ég er í dag á sjálfs-
hörkunni í bland við skynsemi,“
segir CERES4 og ítrekar að þegar
á móti blási þá fyrst fari hann að
njóta sín fyrir alvöru.
Foreldrar Hlyns áttu hann ung
að árum en þau eru einungis 20
árum eldri en hann. „Á sínum
tíma voru þau ung og blönk eins
og annað fólk á leið út í lífið en
gerðu gott úr því sem þau höfðu
úr að moða og hafa verið mér góð
fyrirmynd í lífinu,“ segir Hlynur
og er þakklátur fyrir að hafa verið
alinn upp við nýtni og nægjusemi.
„Ég þurfti að hafa fyrir öllu í upp-
vextinum og gera gott úr því sem
ég hafði en það hefur gert líf mitt
jafn gott og það er í dag. Ég þarf
ekki að eiga það nýjasta og flott-
asta hverju sinni til að vera ham-
Hlynur Áskelsson, eða CERES4, er meðlimur
í Mercedez Club. Líf hans er eins og þéttsetin
stundaskrá og hann á auðvelt með að fara úr
einu hlutverki í annað. Fyrir utan það að vera í
hljómsveitinni er hann sérkennari í Öskjuhlíðar-
skóla og fótboltaþjálfari. Í viðtali við Bergþóru
Magnúsdóttur ræðir hann um bernskuna, bóka-
skrif og brúnkusmurningar.
Skammast
sín ekki
fyrir neitt
Morgunmatur: Ég byrja morgun-
inn alltaf á einu hráu eggi, einni
matskeið af lýsi og tveimur ávöxt-
um.
Maturinn: Lambakjöt og harðfisk-
ur með smjöri.
Besta líkamsræktin: Að fara út að
hlaupa, helst í rigningu og mót-
vindi.
Áhugamál: Fótbolti, skriftir, heil-
brigt líferni, uppeldi, tónlist og
sagnfræði.
Skemmtun: Ég elska að æfa og
dansa.
Borgin: Berlín er geðveik, suðu-
pottur 20. aldarinnar og fæðing-
arstaður kalda stríðsins. Ég fór
þangað fyrir tveimur árum og fílaði
mig í botn. Hef pottþétt verið þar
áður.
Lífsmóttó: Farðu vel með þig.
Gefðu af þér og gefðu þér og
þínum tíma.
Eftir tíu ár: Ég verð að spila með
Mercedez Club á öllum stærstu
teknó-hátíðum Þýskalands og
víðar í Austur-Evrópu.
Biotta Trönuberjasafi
Frábær fyrir þvagrásina
og blöðruna!
8 • FÖSTUDAGUR 7. MARS 2008