Fréttablaðið - 07.03.2008, Síða 88

Fréttablaðið - 07.03.2008, Síða 88
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðssonar 8.13 13.38 19.05 8.01 13.23 18.48 Í dag er föstudagurinn 7. mars, 67. dagur ársins. Úrvalsfólk Ferðalög og frábær félagsskapur. Verð frá 83.900,- Verð frá 74.608,- m.v. tvo í íbúð á La Colina í 22 nætur Skemmtanastjóri: Ásdís Árnadóttir m.v. tvo í stúdíó á Paraiso de Albuferia Skemmtanastjórar: Sigríður Hannesdóttir og Ottó Péturs. m.v. tvo í íbúð á Forum Skemmtanastjóri: Hjördís Geirsdóttir m.v. tvo í „deluxe“ klefa með svölum Skemmtanastjórar: Kjartan Sigurðsson og Lilja Jónsdóttir m.v. tvo í herb. á hótel Fanabe með hálfu fæði Skemmtanastjóri: Sigvaldi Þorgilsson m.v. tvo í herbergi með hálfu fæði Fararstjórar: Inga Geirsdóttir og Snorri Guðmundsson Verð frá 118.645,- Verð frá 137.900,- Verð frá 89.900,- Verð frá 219.776,- ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ S. 585 4000 ~ F. 585 4065 ~ INFO@UU.IS ~ WWW.UU.IS Albir Portúgal Tenerife Skosku hálöndin Marmaris Lúxussiglingar í Karíbahafi Úrvalsfólki fjölgar stöðugt og telur ferðafélagið nú um 10 þúsund manns. Af því tilefni bjóðum við upp á spennandi sólstrandaferðir víðsvegar um Evrópu og lúxussiglingar í Karíbahafinu með glæsilegum skemmtiferðaskipum. Skemmtanastjórar í sólarlandaferðunum skipuleggja fjölbreytta dægradvöl, t.d. leikfimi, spilavist og skemmtikvöld. Farið er saman út að borða, í dans og danskennslu, golf og mínígolf ásamt fjölmörgum öðrum skemmtilegum uppákomum. Úrvalsfólk er lífsglatt og nýtur þess að skemmta sér saman í góðum hópi jafnaldra, vina og kunningja. 15. apríl í 22 eða 25 nætur 3. maí í 17 nætur 23. apríl í 27 nætur og 30. apríl í 20 nætur 31. júlí í 7 nætur9. og 16. september í 11 nætur 28. apríl í 22 daga Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu Af aðdáunarverðri yfirvegun var sagt frá því í fréttum að kostnaður vegna nýrra áhorfenda- bekkja við Laugardalsvöll hefði farið 400 milljón krónur fram úr áætlun. Og að mati Geirs Þor- steinssonar og félaga hjá KSÍ eiga borgarbúar að borga brúsann. 400 milljónir. Fyrir áhorfendabekki. ÉG er með svokallað síhringikort, það er debetkort sem hringir eftir heimild í hvert sinn sem það er notað. Þannig kem ég í veg fyrir að fara yfir á reikningum og greiða svimandi háar upphæðir í FIT- kostnað. Þessarar spaklegu ráð- stöfunar greip ég til fyrir nokkrum árum eftir að hafa greitt meiri pening en ég kærði mig um í FIT- gjöld. Stundum sætti ég reyndar lagi og lét renna kortinu í gegn, þótt ég vissi að ég væri orðinn dálítið tæpur, og vonaði að greiðsl- an færi athugasemdalaust í gegn. Sem stundum gerðist, mér til óblandinnar ánægju. Þar til kom að skuldadögum, því ólíkt KSÍ þurfti ég sjálfur að endurgreiða peningana sem ég eyddi þótt ég ætti þá ekki til. ÉG skil sem sagt hvernig það getur komið fyrir að fólk fer nokkra þús- undkalla yfir á reikningnum; ég skil líka hvernig með einbeittum vilja og úrræðasemi er hægt að fara allmarga þúsundkalla yfir á kortinu. En 400 milljónir, það er allt önnur deild. Landsbankadeild karla að því er virðist vera. Hvað kom fyrir? Gáði enginn á heima- bankann? Er þetta meira eða minna allt FIT-kostnaður? Var Intrum komið í málið? SANNLEIKURINN er því miður sá að það er regla en ekki undan- tekning á Íslandi að menn fari fram úr fjárheimildum. Með öðrum orðum eyði peningum sem þeir hafa ekkert leyfi til að ráð- stafa. Þetta eru menn reyndar farnir að gera af svo mikilli list að það er spurning hvort við ættum ekki að flytja þessa þekkingu út. Þegar harðnar á dalnum munu mörg fyrirtæki ekki eiga neina peninga. Við eigum menn sem geta samt eytt þeim. Í fullkomnum heimi myndu synda- selirnir endurgreiða þessar 400 milljónir með því að selja vandar- högg á afturendann á sér. KSÍ rukkar okkur um 5.000 krónur að fá að skella rassinum á harða brík á fótboltalandsleik, og því rökrétt að við þurfum að greiða jafn mikið fyrir að skella bríkinni á rassinn á þeim. Það þyrfti þá ekki nema rétt um 80 þúsund rassskelli til að endur greiða skuldina, fyrir utan vexti auðvitað. En engar áhyggjur Geir, við bjóðum upp á rað- greiðslur. Bekkjafyllerí
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.