Fréttablaðið - 08.03.2008, Síða 56

Fréttablaðið - 08.03.2008, Síða 56
 8. MARS 2008 LAUGARDAGUR14 ● fréttablaðið ● farið á fjöll Jeppaeigendur urðu að fara með breytingar á bifreiðum sínum eins og mannsmorð. Ein af höfuðástæðunum fyrir stofnun Ferðaklúbbsins 4x4 var að breyttir jeppar voru þyrnir í augum lögreglu og bifreiða- eftirlits. Upphækkaðir jeppar á stórum hjólum þóttu ógnvekjandi og yfirvöld áttu í vandræðum með að samþykkja breytingar á jeppum þar sem engin gögn eða reglur voru til að styðjast við. Lögreglan klippti númer af breyttum jeppum og kyrrsetti á staðnum. Menn drógu þá bíla sína heim, settu „lögleg“ dekk undir og fóru svo í skoðun. Að þessu loknu voru stóru dekkin sett undir aftur. Við þessu ófremdarástandi vildu eigendur breyttra jeppa bregðast. Reyndar höfðu breytingar á bílum viðgengist áratugum saman og án vandræða. Það var ekki fyrr en með tilkomu stærri og áberandi hjóla að þær þóttu vandamál. Strax eftir stofnun Ferðaklúbbsins 4x4 var dekkjanefnd skipuð og hennar hlutverk var að setja sig í samband við yfirvöld og hefja kynningu á málstað jeppamanna. Nefndin tók strax til óspilltra málanna og setti sig í samband við Bifreiðaeftirlit ríkisins. Þá var Guðni Karlsson þar forstöðumaður og Lárus Sveinsson yfirverkstjóri skoðunarmála kom einnig mikið að þessu máli. Guðni og hans menn tóku nefndinni strax vel, enda höfðu þeir áttað sig á því að upp var komið ófremdarástand sem þurfti að leysa. Fundað var nokkrum sinnum og dekkjanefndin skrifaði bréf til Bifreiðaeftirlitsins í október 1983 sem rökstuðning í málinu. Þetta bréf er birt hér orðrétt og sýnir skemmtilega hvaða atriði voru helst til umræðu. Þessar viðræður leiddu til þess að Ferðaklúbburinn 4x4 tók að sér að skrifa greinargerð um breytingar á jeppum sem þá voru þekktar og höfðu gefist vel. Þessi greinargerð var lögð fram í byrjun september 1985. Bifreiðaeftirlit ríkisins réð svo ráðgjafa, Pétur Haraldsson véltæknifræðing, til að semja reglur um breyttar torfærubifreiðar og var greinargerð Ferðaklúbbsins 4x4 notuð til grundvallar við samningu þeirra. Varð samvinna Péturs og Ferðaklúbbsins með miklum ágætum og þann 2. febrúar 1986 tóku þessar reglur gildi. Fullyrða má að sérlega vel hafi tekist til með þær og mikillar framsýni hafi gætt við gerð þeirra. Þessar reglur eru nú hluti af reglugerð um gerð og búnað ökutækja. Til marks um það hve vel tókst til má nefna að þær eru í öllum grundvallaratriðum óbreyttar nú 22 árum eftir gildistöku. Sem dæmi um gott samstarf við Bifreiðaeftirlitið má nefna að Ferðaklúbburinn 4x4 var fenginn til að halda þriggja tíma dagskrá á Landsþingi bifreiðaeftirlitsmanna í nóvember 1985 um jeppabreytingar og notkun breyttra jeppa. Í fyrstu dekkjanefndinni voru Guðni Ingimarsson, Hjalti Magnússon, Kolbeinn Pálsson, Sigfús Gunnarsson og Snorri Ingimarsson. Síðar var nafni dekkjanefndarinnar breytt í tækninefnd og starfi hennar haldið áfram af krafti næstu árin. Fleiri unnu mikið með nefndinni, má þar helst nefna Birgi Sigurðsson, Jónas G. Jónasson, Þorgrím St. Árnason, Frey Jónsson og Örn Jónsson. Þrátt fyrir að reglur væru komnar um jeppabreytingar var eftir að ganga frá ýmsum málum eins og til dæmis mestu leyfilegu dekkjastærð. Þá var Jón Baldur Þorbjörnsson bíltækni- fræðingur tekinn við sem ráðgjafi yfirvalda. Eftir langan feril tókst tækninefndinni með mikilli vinnu og harðfylgi að koma meginmarkmiðum sínum að, það er að leyfilegt yrði að aka á 44 tommu hjólum ef hjólabil jeppanna væri nægilegt til að tryggja stöðugleika bílanna. Hjól máttu ekki vera með þvermál stærra en sem nam 44% af hjólhafi bílanna. Þá voru 44 tommu hjólin þau stærstu sem voru alþjóðlega viðurkennd til aksturs í umferð og nægilega mjúk til að nýtast í snjó. Tækninefndinni tókst þó að koma málum þannig fyrir að ekki var sett þak á hjólastærðina ef fram kæmu heppileg stærri hjól. Á þetta reyndi ekki fyrr en næstum tuttugu árum síðar þegar 46 og 49 tommu hjólin komu og ollu nýrri byltingu í getu jeppanna. Nú eru 54 tommu hjól komin í notkun og lofa góðu. Guðni Karlsson og starfsmenn hans hjá Bifreiðaeftirlitinu eiga mikinn heiður skilinn fyrir aðkomu sína að þessu framfaramáli. Framsýni þeirra og jákvæðni skipti sköpum fyrir framgang jeppabreytinga og reynslan hefur margsýnt síðan að þetta var hárrétt skref. Breyttir jeppar hafa reynst öruggir í umferð og notkun breyttra jeppa á stórum hjólum eru af mörgum talin með stórkostlegustu framförum í samgöngutækni hér á seinni hluta 20 aldarinnar. Snorri Ingimarsson og Hjalti Magnússon Stórir jeppar vöktu ugg Samkvæmt lögum félagsins er hlutverk tækninefndar tvíþætt, annars vegar að fylgjast með og miðla upplýsingum um tæknimál til félagsmanna og hins vegar að hafa samstarf við yfirvöld um gerð reglna um fjórhjóladrifs- bifreiðar. Á fyrstu árum félagsins náðist einstakur árangur varðandi seinni þáttinn, þá voru settar þær reglur sem farið hefur verið eftir síðan við breytingar á jeppum. Þegar reglurnar voru mótaðar þá voru stærstu dekkin sem notuð voru við akstur á snjó 44 tommur í þvermál, en það dugði vel fyrir breytingar þar sem sett eru stærri hjól, allt upp í 54 tommur í þvermál. Mjög ítarlegar rannsóknir sem gerðar hafa verið á umferðarslysum á Íslandi undanfarna áratugi, hafa leitt í ljós að breyttir jeppar valda síður slysum en óbreyttir jeppar. Eitt helsta vandmálið við breytingar á jeppum nú, er að ósamræmi á því hvernig þyngd breyttra og óbreyttra bifreiða er mæld og skilgreind. Ennfremur vantar reglur og leiðbeiningar um það hvernig hægt er að auka burðargetu bíla, þegar þess gerist þörf við breytingar. Verulegur hluti af starfi Tækninefndar hefur tengst þessu viðfangsefni, og enn hefur ekki fengist viðunandi lausn. Á síðustu árum hefur miðlun upplýsinga til félagsmanna farið fram með erindum á mánaðarlegum félagsfundum og með á spjallþráðum á vefsíðu félagsins. Þar er samankominn mikil fróðleikur um tæknimál. Það er oft erfitt að finna upplýsingar sem leynast á stórum spjallkerfum, því hafa verið lögð drög að Wiki- vefsiðu um jeppabreytingar og önnur tæknimál sem tengjast fjórhjóladrifsbifreiðum og notkun þeirra. Einar Kjartansson TÆKNINEFND Bremsuhlutir í alla jeppa og pickupa Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 Diskar Klossar Dælur Borðar Ísetningarþjónusta P R E N T S N IÐ E H F . Nú er Suzuki veður á Bílfang, eigum fyrirliggjandi nokkra Suzuki Vitara XL7 Limited3.2 V6 árg 2007, vel búnir bílar, sjálfskiptir með leðri ofl , komið og reynsluakið um helgina, opið laugardag 11-16.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.