Fréttablaðið - 08.03.2008, Blaðsíða 84
44 8. mars 2008 LAUGARDAGUR
B
arnaefni var frá
upphafi mikilvægur
þáttur í innlendri
framleiðslu
Sjónvarpsins að sögn
Sigríðar Rögnu
Sigurðardóttur, fulltrúa barnaefnis
hjá innlendri dagskrárdeild
Sjónvarpsins. Hún hefur gengt
starfinu frá árinu 1985 og þekkir
því manna best sögu íslensks
barnaefnis. „Barnaefni hefur þó
lengi þótt skipta minna máli en efni
fyrir fullorðna. Þegar ég hóf störf
sem fulltrúi barnaefnis hér þá þótti
ekkert sérstaklega spennandi að
vinna við framleiðslu þessa efnis.
En smám saman jókst áhuginn,
sérstaklega eftir að Sjónvarpið hóf
samstarf við erlendar
sjónvarpsstöðvar um framleiðslu
barnaefnis. Nú er svo komið að það
þykir afar eftirsóknarvert að búa
til barnaefni, enda skemmtilegt og
skapandi starf sem býður upp á
mikla möguleika.“
Á fyrstu árum Sjónvarpsins var
þegar lagt mikið upp úr gæðum
barnaefnisins. „Hinrik Bjarnason
var fyrstur með Stundina okkar, en
í þá daga var þátturinn blanda af
íslenskum atriðum og erlendum
innslögum. Síðan tóku Rannveig og
Krummi við sem þáttastjórnendur,
en þá var Hinrik orðinn pródúsent
að þættinum. Frá upphafi var
ætlast til þess að efnið væri vandað
og unnið af metnaði. Það var ekki
mikið annað barnaefni í boði á
þessum árum og því var fengur
fyrir íslensk börn og menningu
þeirra að fá aðgang að svona
þætti,“ segir Sigríður Ragna.
Framleiðsla dregist saman
Framleiðsla á barnaefni hefur
dregist nokkuð saman hjá
Sjónvarpinu undanfarin ár. Á árum
áður framleiddi Sjónvarpið nokkra
þætti í viku fyrir börn og unglinga,
en í dag er Stundin okkar eini
vikulegi barnaþátturinn sem
framleiddur er frá grunni
innanhúss. Að auki framleiðir
Sjónvarpið sjálfstæðar stuttmyndir
fyrir börn sem er liður í samstarfi
evrópskra sjónvarpsstöðva.
Myndirnar hafa flestar gengið afar
vel og vakið athygli innanlands
sem utan. En þrátt fyrir að dregið
hafi úr framleiðslu barnaefnis
segir Sigríður Ragna Sjónvarpið
þó alltaf leggja mikinn metnað í að
bjóða upp á vandað efni fyrir
yngstu áhorfendurnar. „Við vinnum
út frá því að allt barnaefni eigi að
vera skemmtilegt og fræðandi í
senn. Við viljum í raun bjóða upp á
efni sem passar í senn fyrir
fullorðna og börn. Ef barnaefnið er
virkilega gott þá horfir fullorðna
fólkið líka á það.“
Vinna við gerð barnaefnis er
fjölbreytt og skemmtilegt starf að
sögn Sigríðar Rögnu. „Það er
enginn dagur eins í þessu starfi og
þetta er tvímælalaust afar gefandi
vettvangur enda vilja allir bjóða
fram góðar hugmyndir og koma
sínu á framfæri. Ég finn mikið
fyrir því að fólk vill hafa gott og
vandað barnaefni; áhorfendur,
foreldrar og börn, hika ekki við að
hafa samband og kvarta ef þeim
finnst við ekki standa okkur nógu
vel. En því miður er með þessa
framleiðslu eins og aðra að það
vantar peninga til verksins. Það er
þó nokkur von í því að
menntamálaráðherra hefur sagst
vilja leggja aukna áherslu á
framleiðslu barnaefnis; slík
fyrirheit skipta okkur sem störfum
við þetta miklu máli.“
Afi var aufúsugestur
Stundin okkar er óumdeilanlega
langlífasti íslenski barnaþátturinn,
en fast á hæla hans kemur þátturinn
Með Afa sem var vikulega á
dagskrá stöðvar 2 í nítján ár.
Leikarinn góðkunni Örn Árnason
fór með hlutverk Afa frá upphafi.
„Stöð 2 leitaði til mín á sínum tíma
varðandi það að framleiða
barnaþátt. Ég hafði lengi látið mig
dreyma um að leika gamlan mann
sem býr í stóru bókaherbergi,
einskonar allsnægtarbrunni
fróðleiks. Út frá þessarri hugmynd
minni varð Afi til. Hann byggir
lauslega á sambandinu sem ég átti
við minn eigin afa því það var
aldrei hægt að reka hann á gat. Afi
vissi allt.“
Afi hafði tækifæri til að taka sér
ýmislegt fyrir hendur þau nítján ár
sem hann var á skjánum. Örn segir
Afa þó ávallt hafa unnið að því að
fræða börnin og skemmta þeim í
senn. „Fastur liður í þáttunum var
sögustund með Afa þar sem hann
las fyrir börnin. Í tengslum við
þann dagskrárlið átti ég í góðu
samstarfi við marga
barnabókahöfunda sem létu mér í
té efni til upplestrar, enda mætti
Afi aldrei öðru en velvild. Í seinni
tíð, þegar komnar voru til sögunnar
litlar og léttar myndbandstöku-
vélar, þá ferðaðist Afi um landið og
kynnti þannig börnin fyrir ýmsu
forvitnilegu. Þá gilti það sama; Afi
var aufúsugestur hvert sem hann
fór.“
Örn var meðvitaður um að Afi
gengdi vissu uppeldishlutverki
fyrir áhorfendur sína. Því var
nauðsynlegt að fara varlega í
umfjöllun um efni sem gætu reynst
umdeild. „Ég passaði upp á
viðfangsefnin í þáttunum. Afi
fjallaði til að mynda aldrei af neinni
alvöru um trúmál né um kynferði,
enda ætti slík fræðsla fremur að
vera í verkahring foreldra en
fjölmiðla. Afi veitti börnunum fyrst
og fremst fróðleik en hann prédikaði
ekki og innrætti ekki eitt né neitt,
nema hugsanlega góða siði. Afi
sagði börnunum að vera góð við allt
og alla því þá gengur allt miklu
betur; þessi speki heitir lífsleikni í
dag og er kennd í skólunum. Ég var
svosem aldrei skammaður fyrir
hana,“ segir Örn kíminn.
Bíður færis í þjónustuíbúð
Sökum þess hve lengi þátturinn var
framleiddur náði Afi til margra
kynslóða íslenskra barna. Örn
verður reglulega var við að Afi er
ekki gleymdur þó hann sé horfinn
af skjánum. „Ég var að skemmta
fyrir nokkrum árum á Þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum ásamt Karli
Ágústi Úlfssyni. Þegar við vorum
kynntir á sviðið þá byrjaði öll
brekkan að kalla eftir Afalaginu og
við gátum ekki byrjað með okkar
dagskrá fyrr en ég lét undan. Ég
byrjaði að spila og syngja og svo tók
brekkan við og kyrjaði Afalagið á
meðan ég lék undir. Mér þótti
afskaplega vænt um þetta.“
Afi hvarf af skjám landsmanna
árið 2006 og lauk þar með tæplega
tveggja áratuga sigurgöngu einnar
ástsælustu persónu íslensks
sjónvarps. Þó lítið hafi farið fyrir
Afa síðan segir Örn hann ekki
endanlega horfinn. „Nei, Afi er ekki
alfarinn. Ég á lén sem heitir afi.is
og mig langar til að gefa út dvd-
disk. Ég tel að Afi hafi, líkt og aðrir
afar og ömmur, boðið börnum upp á
vissa tengingu við hið liðna. Mér
finnst mikilvægt að þessi tenging
fari ekki forgörðum vegna þess að
það býr svo mikil reynsla og viska í
gamla fólkinu. Mig langar til að
bjóða öllum íslenskum börnum upp
á þessa tengingu, því er Afi ekki
kominn á elliheimili heldur fékk
hann sér þjónustuíbúð og bíður
færis.“
Opnir fyrir nýjum hugmyndum
Bergljót Arnalds var umsjónar-
maður þáttarins 2001 nótt sem var
vikulega á dagskrá Skjás Eins á
árunum 1999-2001. „Ég fékk á
sínum tíma mjög frjálsar hendur
við þróun og hugmyndavinnu
þáttarins, sem var að sjálfsögðu í
góðu samstarfi við stöðina.
Yfirmenn þar voru afskaplega
opnir fyrir öllum hugmyndum
mínum, sem var mikilvægt til að
geta verið með nýtt og spennandi
efni. Á stundum hrikti reyndar í, til
dæmis þegar ég vildi láta mála
gólfið í stúdíóinu þar sem þátturinn
var tekinn upp, því mig langaði í
líflegri lit en svart myndverið fyrir
barnaþáttinn.“
Ýmsar skemmtilegar persónur
komu fyrir í þáttunum; til að mynda
var reglulega farið í heimsókn til
ömmu sem bjó á Árbæjarsafninu
og sagði börnunum sögur. Einnig
brá fyrir Talnapúkanum sem
Bergljót hafði skapað fyrir
samnefndan tölvuleik. Persónur
þáttanna þjónuðu hver sínum
tilgangi að sögn Bergljótar.
„Amman átti heima í gamla
tímanum og því voru myndskeiðin
með henni í svart-hvítu. Hún sagði
börnunum íslenskar þjóðsögur og
ævintýri og myndaði þannig
tengingu við þjóðlegan fróðleik og
liðna tíma sem mér þykir ákaflega
mikilvæg.“ Bergljót fór sjálf með
hlutverk ömmunnar. „Talnapúkinn
kenndi börnunum svo tölurnar og
einfaldan reikning á skemmtilegan
hátt. Hann kom fram sem
teiknimyndapersóna í þáttunum,
en Bergur Þór leikari sat fyrir
aftan einn kubbinn og talsetti á
móti mér þegar við lékum í
stúdíóinu.“ segir Bergljót og hlær.
„Þannig var keppt að því að hafa
efni sem myndi fræða unga
áhorfendur.“
Heimsótti Ástrík
Bergljót ferðaðist töluvert og tók
upp efni fyrir þættina. Hún fór
meðal annars til útlanda, en það var
nýlunda að íslenskir barnaþættir
gerðu slíkt. „Markmiðið með
ferðalögunum var að kynna heiminn
fyrir börnum,“ segir Bergljót. „Til
að mynda fór ég í heimsóknir á söfn
og aðra staði sem fólk gerir ekki ráð
fyrir að börn hafi áhuga á. Ég vildi
aftur á móti sýna börnunum að
heimur fullorðinna getur verið
áhugaverður með því að segja þeim
sögurnar á bak við verkin á
söfnunum. En svo heimsótti ég líka
staði sem hafa augljóst aðdráttarafl
fyrir börnin, til að mynda
Ástríksgarðinn í Frakklandi.“
Þátturinn rann sitt skeið árið 2001
þegar Skjár Einn tók hann af
dagskrá. „Skjár Einn er
sjónvarpsstöð sem lifir af
auglýsingatekjum. Þær auglýsingar
sem seldar eru á undan og eftir
barnaefni eru ódýrari en
auglýsingar sem birtar eru á öðrum
tímum. Það gefur því auga leið að
það er erfitt fyrir litla sjónvarpsstöð
sem lifir á auglýsingatekjum að
standa í framleiðslu barnaefnis.
Mér fannst þeir í raun standa sig
ótrúlega vel. Þeir héldu úti tveggja
tíma barnaþætti í hverri viku í heil
tvö ár, en framleiddir voru tæplega
hundrað þættir í allt.“
Bergljót telur íslenska fjölmiðla
hafa ótvíræða skyldu til þess að
sinna yngsta aldurshópnum. „Það
skiptir börnin okkar máli að sjá að
við Íslendingar getum framleitt
okkar eigið sjónvarpsefni.
Sjálfsmynd þeirra verður sterkari
ef þau sjá að þjóðfélagið sem þau
búa í er skapandi. Það veikir
sjálfsmyndina ef allt barnaefni
kemur erlendis frá. Börnin eru
fullorðið fólk framtíðarinnar.
Íslenskt barnaefni skiptir því miklu
máli fyrir íslenska menningu og er
mikilvægur þáttur fyrir sjálfsmynd
þjóðarinnar.”
Stundin okkar hóf göngu sína
hjá Sjónvarpinu á jóladag árið
1966. Þátturinn hefur því gengið
sleitulaust í 42 ár og er, ásamt
fréttum, lífseigasti íslenski
sjónvarpsþátturinn. Sjónvarpið
hefur að auki framleitt ótal aðra
þætti fyrir börn og unglinga.
Stöð 2 hóf framleiðslu á þáttunum
Með Afa árið 1987, ári eftir að
stöðin fór fyrst í loftið. Þátturinn
var framleiddur allt til ársins 2006.
Haustið 2007 hóf Stöð 2 að fram-
leiða barnaþættina Algjör Sveppi.
Skjár Einn framleiddi þættina
2001 nótt á árunum 1999-2001.
Þættirnir eru enn sem komið er
eina framlag Skjás Eins til íslensks
barnaefnis.
➜ HNOTSKURN
Leikur og lærdómur
Íslenskt barnaefni hefur verið á sjónvarpsskjám landsmanna í rúma fjóra áratugi. Vigdís Þormóðsdóttir skoðar nokkur framlög
innlendra sjónvarpsstöðva til þessarar mikilvægu sjónvarpsgreinar og ræðir við málsmetandi fólk um fortíð, nútíð og framtíð
innlends barnaefnis.
STUNDIN OKKAR Langlífasti íslenski barnaþátturinn.
2001 NÓTT Skemmtilegur og uppfinningasamur barnaþáttur á Skjá Einum.
MEÐ AFA Afi á enn stað í hjörtum þjóðarinnar þó hann sé horfinn af skjánum.