Fréttablaðið - 08.03.2008, Qupperneq 101
LAUGARDAGUR 8. mars 2008
Tónlist er notuð í amerískum fang-
elsum í Írak og Guantanamo til
halda föngum vakandi dögum
saman, til að rugla þá í ríminu
fyrir yfirheyrslur – og líka til að
yfirgnæfa öskrin í þeim. Nú hefur
bandaríska netsíðan Mother
Jones (motherjones.com)
birt einhvern ófrýnilegasta
vinsældarlisti sögunnar,
lista yfir „vinsælustu“ lögin
í amerískum fangelsum í
„stríðinu gegn hryðju-
verkum“. Listinn er
byggður á yfirheyrslu-
skýrslum, fréttaskeyt-
um og frásögnum her-
manna og fanga.
Þungarokkslög eins
og „Enter Sandman“
með Metallica eru ásamt
kántrílögum mest notuð
til pyntinga. Þá þykja kyn-
æsandi lög með stelpum eins og
Christinu Aguilera og lög hlaðin
föðurlandsást eins og „America“
með Neil Diamond og „Born in the
USA“ með Bruce Springsteen góð
til þessa andstyggilega brúks.
Óvæntasta lagið á listanum
er titillagið í barnaþætti
bleiku risaeðlunnar Bjarna
(e. Barney). Vinsældir lags-
ins við þessar „snerti-
lausu pyntingar“, eins
og það er kallað á fag-
máli, byggjast á því að
lagið er einstaklega pirr-
andi, hvað þá þegar það
hefur gengið stanslaust
tímum, eða jafnvel dögum
saman. - glh
Bjarni og Metallica
notuð við pyntingar
BLEIKA RISAEÐLAN BJARNI
Tekur þátt í „stríðinu gegn
hryðjuverkum“.
Leikarinn Patrick
Swayze er með krabba-
mein í brisi. Þetta stað-
festi læknir hans í vik-
unni. Fréttir þess efnis
að Swayze væri alvar-
lega veikur og ætti
aðeins örfáar vikur
eftir ólifaðar höfðu þá
þegar skotið upp kollin-
um, en læknirinn sagði
enga ástæðu til að vera
svo svartsýnn. „Sjúk-
dómur Patricks er mjög
takmarkaður og hingað
til virðist hann bregð-
ast mjög vel við með-
ferðinni,“ sagði Dr.
George Fisher og vísaði öllum til-
gátum um áætlaðan
lífstíma Swayze alfarið
á bug. „Við erum mun
jákvæðari en svo,“
sagði hann.
Talsmaður leikarans
staðfesti að Swayze
gengist nú undir með-
ferð. „Patrick heldur
sínu striki eins og alltaf
og það felur einnig í sér
vinnu við framtíðar-
verkefni. Patrick og
fjölskylda hans eru
mjög þakklát fyrir allan
þann stuðning og þá
umhyggju sem hann
hefur þegar fengið frá
almenningi,“ sagði hann.
Swayze með krabba
BREGST VEL VIÐ MEÐ-
FERÐ Patrick Swayze
fær nú meðferð gegn
krabbameini í brisi.
öku tækifæri
„Það er líka sjaldgæft að verða vitni að jafn kraftmikilli sýningu og þessari, jafn miklum galsa, jafn fumlausum tökum
á forminu, jafn afdráttarlausri túlkun, jafn tilgerðarlausri en jafnframt útpældri sviðsmynd ... Hvað Baltasar Kormák
leikstjóra varðar er enn einn sigurinn í höfn.“
- Þröstur Helgason Lesbók MBL 29/12
Þjóðleikhúsið
Á öllum sviðum lífsins
Miðasala í síma 551 1200 og á
www.leikhusid.is
Ívanov e. Anton Tsjekhov
leikgerð og leikstjórn Baltasar Kormákur
Sýningum lýkur fyrir páska
sun. 9/3 örfá sæti laus
mið. 12/3 örfá sæti laus
fim. 13/3 örfá sæti laus
sun. 16/3 örfá sæti laus
- allra síðasta sýn.