Fréttablaðið - 18.03.2008, Blaðsíða 24
● fréttablaðið ● íslensku tónlistarverðlaunin 18. MARS 2008 ÞRIÐJUDAGUR2
íslensku tónlistarverðlaunin
Stjórn
Þorgeir Tryggvason stjórnarformaður
Eiður Arnarsson
Pétur Grétarsson framkvæmdastjóri
pegre@simnet.is
Dómnefndir
Sígild og samtímatónlist: Elísabet Indra Ragnarsdóttir, formaður, Helgi
Jónsson, Hildigunnur Halldórsdóttir. /Djass: Vernharður Linnet, formað-
ur, Benedikt Garðarsson, Hildur Guðný Þórhallsdóttir. /Fjölbreytt tón-
list: Andrea Jónsdóttir, formaður, Bjarni Bragi Kjartansson, Elsa María
Jakobsdóttir, Ívar Guðmundsson, Trausti Júlíusson. / Bjartasta vonin:
Steinþór Helgi Arnsteinsson, Unnsteinn Stefánsson. / Myndband, um-
slag, kvikmynda- sjónvarpstónlist ársins: Sigríður Pétursdóttir, for-
maður, Jakob Jóhannsson, Hilmar Oddsson.
Samtónn er ábyrgðaraðili Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Í kvöld verða íslensku tónlistar-
verðlaunin afhent í fjórtánda sinn
við hátíðlega athöfn í Borgarleik-
húsinu sem send verður beint út í
Sjónvarpinu eins og tíðkast hefur
undanfarin ár. Þannig gegnir við-
burðurinn fjölþættu hlutverki;
sem uppskeruhátíð þeirra sem fást
við sköpun, flutning og útgáfu tón-
listar á Íslandi, ánægjuleg kvöld-
stund á heimilum landsmanna og
síðast en ekki síst áminning til
okkar allra um hve fjölbreyttu og
blómlegu tónlistarlífi við lifum
þessi árin.
Þessi staðhæfing um stöðu ís-
lenskrar tónlistar getur virkað
eins og tugga, enda ófáir tekið sér
hana í munn. En þegar litið er yfir
tónlistarsvið síðasta árs, útgefn-
ar plötur, samin tónverk, tónlistar-
hátíðir og tónleika af öllu tagi,
blasir við að klisjan er svo sannar-
lega raunrétt lýsing á veruleikan-
um. Tilnefningar til verðlaunanna
í ár staðfesta það svo um munar.
Listrænt hugrekki, fagmennska
og sköpunargleði í alls kyns mynd-
um og ólíkum hlutföllum blasa
alls staðar við, frá einörðustu af-
þreyingu til harðsvíruðustu til-
raunamennsku. Það er gaman að
halda hátíð og fagna þegar ástand-
ið er svona gott og ekkert bendir
til annars en að það verði þannig
áfram. Fyrir áframhaldandi góð-
æri er reyndar engin trygg-
ing eins og dæmin sanna, enda
kærum við okkur líklega ekki um
hana. Til þess er of spennandi að
fylgjast með þróuninni gleðjast
yfir nýsköpuninni og þræða með
tónlistar mönnunum alla þá kráku-
stíga sem eyrun leiða þá.
Að ári hittumst við svo aftur,
prúðbúin í sal eða í notalegheitum í
sófanum, og sjáum hvernig gekk.
Þorgeir Tryggvason
Formaður stjórnar íslensku tónlistarverð-
launanna
Árlegt stefnumót
Kraumur er nýr sjálf-
stætt starfandi sjóður
sem settur var á laggirn-
ar í upphafi árs af Aur-
ora velgerðasjóði. Sjóð-
urinn og starfsemi hans
hefur það meginhlutverk
að efla íslenskt tónlistar-
líf, fyrst og fremst með
stuðningi við unga lista-
menn, auðvelda þeim að
vinna að listsköpun sinni
og koma verkum sínum
á framfæri innanlands
sem utan.
Tónlist skipar mikil-
vægan sess í íslensku
menningarlífi og íslensk-
ir tónlistarmenn eru öfl-
ugir sendiherrar okkar
á erlendri grundu. Þótt
unnið hafið verið frá-
bært starf fyrir íslenska
tónlist á síðustu árum er
engu síður þörf á aukn-
um stuðningi við tónlist-
arfólk okkar og þeirra
mikilvæga framlag.
Kraumur mun vinna
ötullega að beinum stuðningi við listamenn og
listsköpun þeirra, sem og að auka möguleika
þeirra á að koma list sinni á framfæri. Stefnt er
á samstarf við ýmsa þá aðila sem vinna að sömu
markmiðum og sjóðurinn.
Markmiðið er að
styrkja stöðu ungra tón-
listarmanna á Íslandi
með styrkjum, faglegri
aðstoð og samstarfi af
ýmsu tagi. Starfsem-
in miðar jafnframt að
því að miðla þekkingu,
meðal annars með nám-
skeiðahaldi og ráðgjöf.
Ætlunin er að Kraum-
ur styrki tiltölulega
fá verkefni/listamenn
en geri það þannig að
stuðningurinn sé afger-
andi. Hvert verkefni
skal í upphafi skilgreint
í tilheyrandi samningi
með fjárhags- og tíma-
áætlun. Framkvæmda-
stjóri Kraums er lista-
mönnum til halds og
trausts og annast tengsl
sjóðsins við samstarfs-
aðila og fylgir því eftir
að markmiðum sam-
starfs og stuðnings sé
náð.
Kraumur – tónlistar-
sjóður er þriggja ára tilraunaverkefni sem sam-
kvæmt núverandi áætlun lýkur í lok árs 2010.
Heimasíða: www.aurorafund.is
Eldar Ástþórsson
Kraumur til aðstoðar
Þorgeir Tryggvason
Myndlistarmaðurinn Inga Elín
hannar verðlaunagrip íslensku
tónlistarverðlaunanna, Ístóninn,
og er þetta fimmta árið í röð sem
sami gripurinn er afhentur. Alls
þurfti hún að búa til nítján verð-
launagripi, sem er vitaskuld ekki
auðvelt verkefni.
„Þetta er rosalega mikil vinna.
Ég notast við gler og síðan er
neðri hlutinn unninn úr steypu
sem ég móta. Það verður enginn
gripur nákvæmlega eins því þetta
er allt saman handgert,“ segir
Inga Elín.
Gripurinn vísar til bæði íss og
jökla landsins sem og tónlistar-
innar því hann er í laginu eins og
nóta. Eru línurnar á annarri hlið-
inni tilvísun í strengi og mjúku
hliðarnar á hinni hliðinni merkja
tónlistina, auk þess sem steypan
sem gripurinn stendur á er tilvís-
un í íslenska steininn. Segist Inga
Elín jafnframt hafa haft íslenska
stuðlabergið í huga þegar hún
ákvað hönnunina.
Inga Elín ætlar að sjálfsögðu
að mæta á verðlaunaafhending-
una í kvöld eins og undanfarin ár.
„Mér finnst þetta mjög skemmti-
leg athöfn,“ segir hún og játar að
hún fyllist stolti í hvert skipti sem
gripirnir hennar eru afhentir.
Nánari upplýsingar um lista-
manninn má finna á heimasíðunni
www.ingaelin.com.
Fyllist stolti á
hverju ári
Inga Elín hannar verðlaunagrip íslensku
tónlistarverðlaunanna.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra, Björgvin Halldórsson,
Raggi Bjarna, Ágústa Eva Er-
lendsdóttir, Valgeir Guðjónsson
og sjálfur Eiríkur Fjalar verða
á meðal þeirra sem afhenda Ís-
lensku tónlistarverðlaunin í Borg-
arleikhúsinu í kvöld.
Sex tónlistaratriði verða flutt
og á meðal þeirra sem stíga á
svið verða Sprengjuhöllin, Einar
Scheving, Hjaltalín og Páll Óskar
Hjálmtýsson, sem kemur fram
ásamt 25 dönsurum.
Kynnir
verður Felix
Bergsson
og honum
til halds og
trausts verð-
ur bít-
boxar-
inn ungi,
Bjartur.
Eiríkur Fjalar
afhendir í kvöld
Eiríkur Fjalar verður á meðal þeirra sem
afhenda verðlaun í Borgarleikhúsinu í
kvöld.
Felix
Bergsson
ÍSLENSKU
TÓNLISTARVERÐLAUNIN