Fréttablaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 8
8 28. mars 2008 FÖSTUDAGUR
1 Hvað boðaði byggingar-
nefndin sem hafði eftirlit með
framkvæmdum við Laugardals-
völl til margra funda meðan á
framkvæmdum stóð?
2 Fyrir hvað hefur kaþólskur
maður kært prest Þjóðkirkj-
unnar til lögreglunnar?
3 Hvaða ljósmyndari opnar
sýningu í húsi Orkuveitunnar á
laugardag?
SVÖR ERU Á SÍÐU 54
SAMFÉLAGSMÁL Mun meiri ásókn er
í umönnunarstörf nú en oft áður
og segja viðmælendur Frétta-
blaðsins að ástandið í efnahagslíf-
inu hafi mikil áhrif þar á. Síðast-
liðið haust vantaði í tæp tvö
hundruð stöðugildi á leikskólum
Reykjavíkurborgar en nú vantar
einungis í sextíu stöðugildi. „Þetta
hefur verið að gerast á síðustu
vikum en í janúar vantaði okkur
enn í um 130 stöðugildi,“ segir
Ingunn Gísladóttir, starfsmanna-
stjóri leikskólasviðs Reykjavíkur-
borgar. „Við höfum orðið vör við
aukinn áhuga upp á síðkastið
þannig að ég tel að við eigum eftir
að fá mikið af fólki til okkar á
næstunni.“
Lucía Lund, starfsmannastjóri á
Hrafnistu, segir að nú vanti í fjór-
tán stöðugildi á heimilum Hrafn-
istu en það sé aðeins helmingur af
því sem á skorti í byrjun ársins.
„Við erum núna að fá fleiri
umsóknir frá sjúkraliðum og öðru
fólki sem virkilega hefur áhuga á
að starfa við þetta og við getum
því farið að vanda
okkur betur við
mannavalið,“
segir hún.
Sigríður Kristj-
ánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra
á Reykjanesi,
segir að mun
fleiri Íslendingar
sækist nú eftir
störfum þar en
áður.
Helga J. Karls-
dóttir, starfs-
mannastjóri á
Elliheimilinu
Grund, segir það
áberandi að nú
þurfi að vísa mun
fleiri umsóknum
frá útlendingum
frá. „Áður voru
venjulega laus fyrir þá störf þar
sem íslenskukunnáttu er ekki
krafist eins og við ræstingar en
þegar þeir voru komnir með nægi-
lega kunnáttu gátu þeir hafið störf
við umönnun,“ segir hún. „Nú er
svo komið að það er ekkert pláss
fyrir þá sem ekki hafa nægilega
íslenskukunnáttu til að sinna
umönnunarstörfum.“ Hún segir
einnig að starfsmannavelta meðal
útlendinga sé mun minni en áður.
„Það er eins og þessi markaður sé
orðinn mettur,“ bætir hún við.
jse@frettabladid.is
Betur gengur
að ráða í leik-
skólastörf
Aðeins vantar í 60 stöðugildi hjá leikskólum Reykja-
víkur miðað við tæp tvö hundruð á haust mánuðum.
Erfiðara reynist fyrir útlendinga að fá vinnu og segir
starfsmannastjóri þann markað vera mettan.
BÖRN AÐ LEIK Efnahagsþrengingar sem látið hafa á sér kræla í atvinnulífinu virðast
hafa þau áhrif að fólk sæki í auknum mæli í öryggið og aðra kosti sem umönnunar-
störfin bjóða upp á.
SIGRÍÐUR KRISTJ-
ÁNSDÓTTIR
INGUNN
GÍSLADÓTTIR
Við höfum orðið vör
við aukinn áhuga upp á
síðkastið þannig að ég tel að við
eigum eftir að fá mikið af fólki til
okkar á næstunni.
INGUNN GÍSLADÓTTIR
STARFSMANNASTJÓRI LEIKSKÓLASVIÐS
REYKJAVÍKURBORGAR
KÍNA, AP Hópur tíbetskra búddamunka hrópaði
ýmis baráttuorð að erlendum fréttamönnum,
sem kínversk yfirvöld fóru með í þaulskipu-
lagða ferð til Lhasa í gær. Þessi truflun á fyrir
fram ákveðinni dagskrá heimsóknarinnar var
neyðarleg fyrir Kínastjórn, sem með henni var
að reyna að sýna og sanna að allt væri með
kyrrum kjörum í tíbetsku höfuðborginni eftir
átökin þar að undanförnu.
„Tíbet er ekki frjálst, Tíbet er ekki frjálst!“
hrópaði ungur munkur sem var í um þrjátíu
munka hópi sem varð á vegi fréttamannanna er
farið var með þá í sýningarferð um Jokhang-
hofið í Lhasa, en það er eitt helgasta hof Tíbeta.
Munkarnir kölluðu einnig að andlegur
leiðtogi þeirra, Dalai Lama, hefði ekki haft neitt
með and-kínversku óeirðirnar að gera sem
brutust út í Lhasa fyrr í mánuðinum. Talsmenn
Kínastjórnar hafa ítrekað sagt „Dalai-klíkuna“
eins og þeir tíðka að kalla útlagastjórn Dalai
Lama, bera ábyrgð á upptökum uppþotanna.
Munkarnir, sem fyrst töluðu á tíbetsku en
skiptu svo yfir í mandarín-kínversku til þess að
fréttamennirnir skildu þá, sögðust vita að þeir
yrðu handteknir fyrir vikið en væru tilbúnir að
una því.
Kínverska utanríkisráðuneytið varaði í gær
ráðherra Evrópusambandsins við því að senda
einhver „óráðleg skilaboð“ til Dalai Lama, en
utanríkisráðherrar ESB-ríkjanna tuttugu og sjö
koma saman í dag til tveggja daga fundar í
Slóveníu. - aa
BRAST Í GRÁT Tíbetskur munkur sem brast í grát er
honum gafst færi á að ávarpa erlenda fréttamenn í
búddahofi í Lhasa í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Valinn hópur erlendra fréttamanna fékk að fara í skipulagða heimsókn til Lhasa í Tíbet í gær:
Munkar hrópuðu „Tíbet er ekki frjálst“
EFNAHAGSMÁL Samdráttur í efna-
hagslífinu gerir atvinnurekendum
kleift að gera meiri kröfur til þess
fólks sem það ræður til starfa.
„Hin hliðin á peningnum er þó sú
að hér hafa starfsmenn sem eru að
leggja fyrir í heimalandi sínu verið
að lækka í launum um tuttugu til
þrjátíu prósent vegna gengislækk-
unar krónunnar og verðhækkanir
eru svo hér á landi í ofanálag,“
segir Einar Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðahússins.
Hann bendir á að atvinnuástand
í Póllandi hafi farið batnandi og
þar sé nú mikill uppgangur. „Fyrir-
tæki eru að reyna að velja meira
úr og taka ekki næsta mann. Það
er í raun eðlilegra ástand en verið
hefur en það er spurning hvað
íslensk fyrirtæki gera ef þau
missa góða starfsmenn úr landi,“
segir hann. - kdk
Gengislækkun og verðhækkun:
Gætum misst gott
fólk úr landi
EINAR SKÚLA-
SON Segir að
spurning sé hvað
íslensk fyrirtæki
geri ef góðir
starfsmenn fari
úr landi.
FÉLAGSMÁL Breyta á 22 hjúkrunar-
rýmum á Seljahlíð í þjónustuíbúð-
ir. Eftir breytingarnar verða þar
64 þjónustuíbúðir með rýmum
fyrir 72 íbúa. Þeir sem þurfa
munu fá nauðsynlega hjúkrun í
íbúðunum en ekki á sérstakri
deild.
Velferðarráð samþykkti á fundi
á dögunum að fara í formlegar
viðræður við ráðuneyti heil-
brigðis- og félagsmála um
þátttöku ríkisins í greiðslu
kostnaðar við breytingarnar. - bþs
Breytingar gerðar á Seljahlíð:
Sjúkrarýmum
breytt í íbúðir
SELJAHLÍÐ Eftir breytingar verða 64
þjónustuíbúðir í Seljahlíð.
VEISTU SVARIÐ?