Fréttablaðið - 28.03.2008, Síða 10

Fréttablaðið - 28.03.2008, Síða 10
10 28. mars 2008 FÖSTUDAGUR DAGUR HERSINS Than Shwe, æðsti maður hershöfðingjastjórnarinnar í Búrma, heilsar hermönnum og öðrum viðstöddum á hátíð í tilefni af „Degi hersins“ í borginni Naypyitaw. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BRETLAND, AP Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti lauk tveggja daga opinberri heimsókn sinni til Bretlands í gær með því að heita því að hann myndi ráðfæra sig við aðra evrópska ráðamenn áður en hann tæki ákvörðun um það hvort hann sniðgengi opnunar- hátíð Ólympíuleikanna í Peking í sumar til að mótmæla því hvern- ig kínversk stjórnvöld hafa tekið á uppþotum í Tíbet. Sarkozy sagði að þar sem Frakkar myndu gegna for- mennskunni í Evrópusambandinu á þessum tíma, í ágúst næstkom- andi, myndi hann ráðfæra sig við leiðtoga hinna ESB-ríkjanna. Breski forsætisráðherrann Gordon Brown sagði að Bretar myndu ekki sniðganga leikana í Peking. Sarkozy sagði, standandi við hlið Browns á fundarstað þeirra á knattspyrnuleikvangi í Lundúnum, að þar sem Bretar myndu halda Ólympíuleikana árið 2012 væri eðlilegt að þeir tækju fullan þátt í öllum athöfnum í kringum leikana í Peking. Hann áskildi sér aftur á móti rétt til að ákveða hvort hann sniðgengi opn- unarhátíðina eður ei. „Það hefur fengið mjög á okkur að sjá hvað er að gerast í Tíbet,“ sagði hann. Í fylgd með Sarkozy voru nokkrir ráðherrar úr frönsku stjórninni og skrifað var undir nokkra samninga um fransk- breskt samstarf. Einn þeirra snýr að hernaðarsamstarfi, annar að breytingum á öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna og sá þriðji að stuðningi við menntun í Afríku- löndum. Þá hyggjast ríkin tvö taka höndum saman um að styðja við útbreiðslu kjarnorkutækni til raforkuframleiðslu í heiminum en jafnframt beita sér gegn útbreiðslu tækni sem nýta má til kjarnorkuvígvæðingar. Er þetta gert í nafni aðgerða gegn lofts- lagsbreytingum. Franski forsetinn vísaði á bug aðdróttunum sem fram hafa komið í fjölmiðlum um að í heim- sókn hans hafi meira borið á smjaðri en handföstu innihaldi. „Við trúum því að með öflugra samstarfi geti Frakkland og Bret- land verið enn áhrifameira afl til góðs,“ sagði Brown á blaðamanna- fundi. audunn@frettabladid.is Fransk-breskt samstarf eflt Leiðtogar Frakklands og Bretlands sömdu um eflt samstarf landanna á ýmsum sviðum á fundi í Lund- únum. Frakklandsforseti segist áskilja sér rétt til að sniðganga opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Peking. SAMSTAÐA Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, fyrir utan Downing-stræti 10 í London. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HJÁ VILDARFYRIRTÆKJUM VISA OG ICELANDAIR Handhafar Vildarkorts VISA og Icelandair safna Vildarpunktum hraðar með því að beina viðskiptum sínum til Vildarfyrirtækja Vildarklúbbsins. Frá 17. mars til 1. apríl fá þeir tvöfaldan afslátt í formi Vildarpunkta þegar þeir greiða með kortinu sínu. Meðal Vildarfyrirtækjanna eru: FOSSHÓTEL LIND, um allt land HÓTEL FRÓN, Laugavegi 22b HÓTEL HÉRAÐ, Egilsstöðum TVÖFALDIR VILDAR- PUNKTAR TIL 1. APRÍL Vildarklúbbur WWW.VILDARKLUBBUR .IS ÍS L E N S K A S IA .IS IC E 41526 03 /08 RV Unique örtrefjaræstikerfið - hagkvæmt, vistvænt og mannvænt Nánari upplýsingar veita sölumenn og ráðgjafar RV Bodil Fur, sölumaður hjá RV Unique í Danmörku UniFlex II H Fiber ræstivagn RV U N IQ U E 02 08 02 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is VIÐSKIPTI Stjórn SPRON var ekki tilbúin að tjá sig um álit Fjármála- eftirlitsins (FME) á því hvort stjórnarmönnum hefði verið heim- ilt að segja frá því að þeir hefðu selt stofnfjárbréf fyrir rúmlega 196 milljónir að nafnvirði. Jóna Ann Pétursdóttir, almennatengsla- fulltrúi SPRON, sagði í tölvubréfi til Fréttablaðsins í gær að stjórnin myndi vonandi fljótlega geta tjáð sig um álit FME. Eins og greint var frá í Frétta- blaðinu í gær telur FME að stjórnar- mönnunum Ásgeiri Baldurs, Gunn- ari Þór Gíslasyni og Hildi Petersen hafi verið heimilt að upplýsa um sölu á stofnfjárbréfum, skömmu áður en SPRON var skráð á mark- að. Það er andstætt fullyrðingu stjórnar SPRON í fréttatilkynningu 7. febrúar en þar sagði hún FME ekki hafa heimilað að segja frá söl- unni. Virði stofnfjárbréfanna að raunvirði þegar þau voru seld var tveir til þrír milljarðar. Gunnar Þór seldi megnið af bréf- unum, fyrir rúmlega 187 milljónir að nafnvirði. Í viðtali við Frétta- blaðið hefur hann greint frá því að salan á bréfunum hafi farið fram eftir að regluvörður SPRON gaf til þess heimild þar sem salan var ekki talin vera brot á lögum um inn- herjaviðskipti. Hildur og Gunnar Þór eru hætt í stjórninni. Hildur var stjórnarformaður en Erlendur Hjaltason gegnir nú þeirri stöðu. Rannveig Rist og Margrét Guð- mundsdóttir tóku sæti Hildar og Gunnars Þórs í stjórninni. - mh Sala stjórnarmanna SPRON á bréfum áður en félagið var skráð á markað: Stjórn SPRON ekki tjáð sig AÐALFUNDUR Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, Hildur Petersen, fyrr- verandi stjórnarformaður, og Erlendur Hjaltason, núverandi stjórnarformaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ATVINNUMÁL „Það er eins og margir sem til okkar leita haldi að það sé vonlaust að finna vinnu um þessar mundir en sú er alls ekki raunin,“ segir María Jónasdóttir, framkvæmdastjóri Ráðningarþjónustunnar. Hún segir að í sínum huga sé ástandið að komast í eðlilegt horf. „Staðan hefur einfaldlega verið sú að atvinnurekendur hafa þurft að ráða allt það starfsfólk sem til þess leitar nær samdægurs. Fyrirtæki þarfnast enn fólks í fjölmörg störf. Það getur tekið um það bil tvær vikur að finna starf og starfsfólk við hæfi en það hlýtur að teljast eðlilegt.“ - kdk Atvinnuástand eðlilegt: Fólk megi ekki fyllast vonleysi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.