Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.03.2008, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 28.03.2008, Qupperneq 28
28 28. mars 2008 FÖSTUDAGUR UMRÆÐAN Landspítalinn Jón Kaldal skrifar leiðara 17. mars sl. í Fréttablaðið undir yfirskriftinni: Versti vinnu- staður landsins. Ég vinn sem sagt á versta vinnustað lands- ins, það var og. Máli sínu til stuðnings telur Jón til fréttir af málefnum Landspítalans. Þær eru nei- kvæðar. Fréttir eru í eðli sínu neikvæðar. Jón tiltekur tvö dæmi um aðgerðir stjórnenda spítalans til að spara. Það er aldrei vinsælt og veldur ólgu. Síðan lætur Jón í það skína að þess vegna hafi Magnúsi Péturssyni verið sparkað, vegna ólgu í starfsmönnum vegna sparnaðar og stjórnsemi. Að lokum hvetur Jón nýja stjórnendur spítalans til dáða, dýrt sé kerfið og nú þurfi að nýta fjármunina enn betur. Ekki auðvelt að spara Gömlu stjórnendurnir reyndu að stjórna og spara. Fyrir vikið sköpuðu þeir sér óvin- sældir bæði hjá hluta starfsmanna og yfir- manna. Þrátt fyrir það má almennt segja að engin sérstök óánægja hafi ríkt með gömlu stjórnendurna. Að fullyrða að sífelldar skærur hafi átt sér stað er orðum aukið. Nýir stjórnendur eiga að gera enn betur. Sjálfsagt geta þeir lent í sömu klemmu og forverar þeirra. Það er ekki auðvelt að spara. Ég tel að vandamálið sé flókn- ara en að einhverjir kommún- istar séu að spreða peningunum okkar innan báknsins. Íslendingurinn er að nota kerfið og það ekki lítið. Fólki finnst það eiga rétt á því. Fólk kemur stundum með vandamál- in á ranga staði á röngum tíma. Slysadeildin hefur stundum þurft að kljást við vandamál sem eiga heima í heilsugæslunni. Fólk hefur ótakmarkaðan aðgang að sérfræð- ingum. Flestar nágrannaþjóðir okkar hafa tilvísunarkerfi í einhverri mynd. Síðustu sex mánuðirnir í lífi hvers einstaklings eru oft þeir kostnaðarmestu. Við getum stöðugt gert meira en er það til góðs? Að minnsta kosti er það mjög dýrt. Tilgangur heilbrigðiskerfisins Ég tel mjög mikilvægt að við ræðum til hvers við ætlumst af heilbrigðiskerfinu af fullri alvöru. Eru öll þessi sjúkrahús nauð- synleg? Eiga konur að geta fætt í hverju húsi? Hversu langt eigum við að ganga við að halda lífi í okkur? Hver er ábyrgð ein- staklingsins fyrir eigin heilsu? Hvað skortir til þess? Hvernig er forgangs- röðunin? Er ekki þörf á tiltekt í hugum nýríkra Íslendinga? Er hugsanlegt að versti vinnustaður landsins endurspegli það þjóðfélag sem hann er staddur í? Mótast hann ekki af íslenskri þjóðarsál? Er sparnaður og ráð- deildarsemi aðalsmerki Íslendingsins? Landspítalinn er eins og húsmóðir sem á alltaf að vera til taks en á ekki að kosta neitt. Þess vegna er Landspítalinn svo fjarri því að eiga sér einhverja virðingu og mönnum leyfist að kalla hann versta vinnu- stað landsins. Saga Landspítalans er sam- hnýtt sögu íslenskra kvenna. Það voru þær sem börðust fyrir honum, söfnuðu pening- um og nánast neyddu íslenska ráðamenn til að byggja hann. Síðan byggðu íslenskir karlmenn hann í atvinnubótavinnu þegar atvinnuleysi var mikið hjá karlmönnum í kreppunni. Stundum hefur maður á tilfinn- ingunni að Landspítalinn og konur hafi sömu stöðu í þjóðfélaginu. Flatur sparnaður virkar ekki Það er kannski lausn spítalans að einka- væða hann allan. Þá sendir hann reikninga og ef þeir eru ekki greiddir fær kaupand- inn ekki frekari þjónustu. Þá fara menn kannski að bera einhverja virðingu fyrir honum. Við þá breytingu myndu menn gera sér betur grein fyrir því að umræða um heilbrigðismál sem alltaf snýst um kostnað og eyðslu er niðurdrepandi og engum til gagns. Ef til vill munu menn þá kannast við að heilbrigðiskerfið framleiðir mikla og góða vöru. Að minnsta kosti myndu þeir kunna að meta vöruna ef þeir þyrftu að greiða hana fullu verði. Ég vinn á Landspítalanum og þar finnst mér gott að vinna. Tel mig alls ekki vinna á versta vinnustað landsins. Landspítalinn er að sjálfsögðu hvorki gallalaus né hafinn yfir gagnrýni. Ég tel að virkja verði þá þekkingu og færni sem er til staðar hjá almennum starfsmönnum. Við vitum nokk- urn veginn hvernig á að spara, bara ef við erum spurð og fáum einhverja gulrót. Flatur sparnaður að ofan hefur aldrei virkað, hvorki hér né annars staðar. Ég tel það mjög mikilvægt að auka sjálfstjórn hinna minnstu eininga innan spítalans og láta þær kljást við sparnað í návígi. Með sameiginlegu átaki allra mun okkur Íslendingum takast að skapa hér besta heil- brigðiskerfi í heimi á viðráðanlegu verði. Neikvæð umræða mun einungis tefja för. Höfundur er læknir. Versti vinnustaður landsins? GUNNAR S. ÁRMANNSSON Það er kannski lausn spítalans að einkavæða hann allan. Þá sendir hann reikninga og ef þeir eru ekki greiddir þá fær kaupandinn ekki frekari þjónustu. Þá fara menn kannski að bera ein- hverja virðingu fyrir honum. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið, EES-samn- ingurinn svokallaði, hefur verið Íslendingum afar mikilvægur. Segja má að með samningnum hafi mörgum þeim framfaramál- um, sem verulegur pólitískur ágreiningur hafði verið um svo árum skipti, verið komið í höfn. Sem dæmi má nefna grundvall- arbreytingar á umhverfi íslensks viðskiptalífs í átt til frjálsræðis, m.a. með löggjöf um verðbréfa- viðskipti og kauphallarstarf- semi, alls konar áherslur á sviði neytendaverndar og fleiri atriði má telja. Við Íslendingar vorum sannar- lega á leið í átt að frjálsari við- skiptaháttum, en vafalaust hefur gerð samningsins hraðað öllu regluverki verulega. Ekki má gleyma því að grunnurinn að til- urð Evrópska efnahagssvæðis- ins var EFTA-samningurinn sem hafði á sínum tíma mikla þýð- ingu fyrir þjóðina. Kannski er það rétt, sem sumir hafa haldið fram, að Ísland hefði átt að fylgja Danmörku inn í ESB í upphafi 8. áratugarins. Sennilega munu Danir ávallt njóta þess í völdum innan ESB að hafa verið snemma á ferðinni. Skarpt fram gengið Meirihluti þeirra þjóða sem átti aðild að EES- samningnum í upp- hafi, gekk fljótlega í ESB og sennilega hafa samningavið- ræðurnar við ESB um samninginn valdið því hve flest- um gekk greiðlega að fá aðild að ESB samþykkta í heimalöndun- um, þótt Noreg- ur sé undan- tekning þar frá. Í mínum huga er alveg nauð- synlegt að huga vel að fortíðinni og þeim aðstæðum og umræðum sem uppi voru í þjóðfé- laginu þegar EES- samningurinn var lögfestur, þegar við núna ræðum hugsan- lega aðild Íslands að ESB. Við skulum flýta okkur hægt, vinna heimavinnuna þannig að ef við teljum rétt að ganga í ESB sé undirbúningurinn klár. Í þessu efni eru nokkur grund- vallaratriði fyrir hendi sem ekki verður horft framhjá. Við gerð EES-samningsins átti að ganga frá ákvæðum stjórnar- skrárinnar, t.d. hefði verið rétt að semja ákvæði um þjóðar- atkvæðagreiðslur við vissar aðstæður, m.a. þegar kemur að valdaframsali í þá veru sem EES-samningurinn hefur í för með sér. Í mínum huga var gengið skarpt fram við gerð EES-samningsins og vel má vera að það hafi verið nauðsynlegt á þeim tíma. Hins vegar er stað- reyndin sú, að áhrif samningsins inn í íslenska löggjöf hafa verið meiri en þorri manna gerði sér grein fyrir. Stjórnarskrárbreytingar Íslendingar eiga ekki að sækja um aðild að ESB fyrr en fram hafa farið nauðsynlegar breyt- ingar á stjórnarskránni. Mikið hefur verið sagt og skrifað um ESB og í raun engin ástæða til að setja af stað enn eina nefndina um atriði sem þegar liggja fyrir, eins og t.d. kosti og galla sam- bandsaðildar. Á endanum er um að ræða ákvörðun sem íslenska þjóðin á að taka út frá hagsmun- um landsins til lengri tíma. Hins vegar hefur skort á frekari umræðu um þau undirbúnings- skref sem þarf að taka ÁÐUR en hægt er að taka afstöðu til kosta og galla ESB-aðildar. Það kann vel að vera að innleiðing löggjafar Evrópu- sambandsins yrði með vandaðri hætti með aðild en ekki, þótt það sé alls ekki útilokað að nýta samninginn um EES betur, sérstaklega hvað eftir- fylgni Alþingis varðar. Þegar horft er til hags- muna Íslands skal á það minnt að Ísland hefur alla tíð notið þess að vera lítið land. Við höfum náð góðum samningum við stórveldi beggja vegna Atl- antsála og þeir fríverslunar- samningar sem við höfum náð, við þjóðir hvaðanæva hafa reynst heilladrjúgir. Við verðum að horfa til þess hvort hægt sé að halda sjálfstæði okkar að þessu leyti frekar en að rogast með öllum þeim þjóðum sem eru í ESB. Íslenska krónan er lítill gjald- miðill og veikleikar lítillar myntar koma hvað skýrast í ljós þegar þrengir að á alþjóðavísu. Hættan er alltaf sú að hægt sé að spila á smáan gjaldmiðil og fyrir fyrirtæki í alþjóðarekstri getur hún reynst fyrirstaða. En það er afar óskynsamlegt að kasta krón- unni þegar harðnar á dalnum og leita að fljótlegustu lausninni sem í huga margra er upptaka evru. Það getur vel verið að við munum sjá hag í því að taka upp evru en það verður að vera um leið og horft er á inngöngu í Evr- ópusambandið með öllu sem því fylgir. Slíka ákvörðun verða menn að taka þegar jafnvægi er komið á þjóðarbúskapinn. Tímaspursmál Aðild að ESB tekur langan tíma. Það er ágætt að nota komandi misseri til að fara í gegnum þá þætti sem þarf þannig að ef ástæða þykir til að skoða aðild að ESB strandi það ekki á skorti á undirbúningi heima fyrir. Það dettur engum í hug að útiloka aðild að sambandinu til langs tíma og satt að segja held ég að það sé frekar tímaspursmál en hitt hvenær við stöndum frammi fyrir þessari ákvörðun. En ef umræðan um Ísland og Evrópusambandið á að vera á skynsamlegum nótum, verður að byrja á réttum enda og þar skiptir undirbúningur hér heima fyrir, og þá ekki síst ákvæði stjórnarskrárinnar, miklu máli. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Byrjum á réttum enda EVRÓPUSAMBANDIÐ - Hvað er til ráða? 1. Hverjir eru helstu kostir við Evrópusambandsaðild? 2. Hverjir eru helstu gallar við Evrópusambandsaðild? 3. Hvað er til ráða? 3.1. Á að hafna aðild umsvifalaust? 3.2. Á að bíða og sjá til? 3.3. Á að sækja um aðild umsvifalaust? 3.4. Á að gera efnahagslegar og stjórnskipulegar ráðstafanir með það að markmiði að taka ákvörðun af eða á um aðildarumsókn eftir tiltekinn tíma t.d. innan þriggja ára. Eftir Ólöfu Nordal
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.