Fréttablaðið - 28.03.2008, Page 36
MORGUNMATURINN: Það býr einn ágætis maður í Ár-
ósum sem heitir Helgi, hann býr til frábæran morgun-
mat, alveg fullkomlega samkeppnishæfan.
SKYNDIBITINN: Ég man ekki hvað staðurinn heit-
ir, en hann er í krúttlegu húsi í krúttlegri götu og selur
mjög góðan shawarma. Húsið er gult held ég.
UPPÁHALDSVERSLUN: Man ekki hvað nein-
ar búðir heita en það er mikið af flottum „gen-
brugs“-búðum þarna. Síðan er ótrúlega næs
að setjast inn á Riz Raz í einn kaldan og hvíla
lúin bein og verslunarvarninginn.
LÍKAMSRÆKTIN: Ég ímynda mér að ef
maður byggi í svona krúttlegri borg myndi
maður kaupa sér eitt krúttlegt hjól og hjóla
og hjóla.
RÓMÓ ÚT AÐ BORÐA: Ég mæli með pylsu
og kókómjólk í Seven Eleven. Það getur ör-
ugglega verið mjög rómó með réttu hugarfari.
BEST VIÐ BORGINA: Helgi besti vinur minn,
hann er klárlega það besta við Árósa. Allar
borgir væru góðar borgir ef þær ættu eitt
stykki Helga Steinar.
borgin mín ÁRÓSAR
SIGRÍÐUR THORLACIUS söngkona hljómsveitarinnar
Hjaltalín
Frískandi kokkteill nú þegar vorið
svífur yfir vötnum og verður án efa
drykkur sumarins.
Drykkur vikunnar
VANILLA
CITRUS KICK
Á 101
Í
slendingar þekkja næring-
arþerapistann Þorbjörgu
Hafsteinsdóttur en hún
hefur hjálpað mörgum Ís-
lendingum að komast í kjör-
þyngd og öðlast betra líf með
því að breyta um mataræði.
Nú er hún búin að gefa út
bókina „10 år yngre på 10
uger“ í Danmörku en Þor-
björg hefur verið búsett
þar síðustu 20 árin. Bókin
kom út 12. mars síðastlið-
inn og hefur gert allt vit-
laust í Danmörku, seldist
upp á fyrstu dögunum en
nú var þriðja upplag að
koma úr prentun. „Bókin
er samantekt á reynslu
minni og vitneskju. Mér
finnst ég þekkja konur
mjög vel eftir að hafa
unnið með þeim í tæp
20 ár enda eru konurnar
sem ég hef hjálpað mörg
þúsund. Í bókinni fer ég
yfir hvernig maður getur snúið vörn í sókn,
breytt um lífsstíl og yngt sig upp. Það má líka segja
að það sé rauður þráður í gegnum það sem konur
vilja. Flestar vilja meiri orku, meiri lífskraft, vera já-
kvæðari og halda sér í kjörþyngd,“ segir Þorbjörg og
bætir því við að það þurfi oft að ýta við konum svo
þær breyti um lífsstíl. „Það er nauðsynlegt að stunda
líkamsrækt, vera jákvæður í viðmóti og bjartsýnn
og trúa á eitthvað annað
en sykur.“ Bókarkápan
hefur vakið mikla athygli
en þar situr Þorbjörg
sjálf fyrir á nærklæð-
unum. Hún segir að það
skipti miklu máli að vera
góð fyrirmynd. „Ég er 48
ára og hef unnið að því að
halda mér í formi og það
hefur auðvitað ekki verið
átakalaust en þetta er þó
miklu minna mál en marga
grunar. Auðvitað verð ég að
sýna fram á að það sem ég
er að predika virki,“ segir
Þorbjörg sem getur ekki
verið annað en stolt af lík-
ama sínum. Þegar hún er
spurð að því hvort myndirn-
ar í bókinni hafi verið fótós-
joppaðar þvertekur hún fyrir
það. Í hittifyrra voru þætt-
ir Þorbjargar, 10 grunnreglur,
sýndir á Skjá einum. Í þáttun-
um kenndi hún Íslendingum að
sneiða hjá sykri, mjólkurvörum
og einföldum kolvetnum. Hún hefur haldið námskeið
og fyrirlestra í Danmörku og þann 14. apríl næstkom-
andi mun önnur bók úr viskubrunni Þorbjargar líta
dagsins ljós. „Það er uppskriftabók sem ég vann með
vinkonu minni. Þetta er algerlega rétti tíminn núna
fyrir svona bækur,“ segir Þorbjörg sem er rétt að
byrja. martamaria@365.is
Þorbjörg Hafsteinsdóttir, næringarþerapisti og hjúkrunarfræðingur, gerir allt
vitlaust í Danmörku
48 ára og flott
4 • FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008