Fréttablaðið - 28.03.2008, Síða 71
FÖSTUDAGUR 28. mars 2008 39
Iceland Airwaves er sjötta besta
tónlistarhátíð heims samkvæmt
nýlegri úttekt breska dagblaðsins
Daily Mirror. Í efsta sæti er
belgíska hátíðin Pukkelpop og á
meðal fleiri hátíða sem komust á
listann eru Fuji Rocks í Japan,
Benicassim á Spáni og The Big
Day Out í Ástralíu, þar sem Björk
spilaði í janúar.
Fjöldi tónlistarhátíða er
haldinn víða um heim á ári hverju
og hlýtur þetta því að teljast
mikil viðurkenning fyrir aðstand-
endur Iceland Airwaves. Næsta
hátíð fer fram í október 15. til 19.
október og verður tilkynnt um
fyrstu listamenn hátíðarinnar á
næstu vikum samhliða því að
miðasala hefst á alþjóðavett-
vangi.
Airwaves í
sjötta sæti
JULIETTE & THE LICKS Hljómsveitin
Juliette & The Licks, sem skartar leikkon-
unni Juliette Lewis, spilaði á Airwaves
fyrir þremur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Lag bresku söngkonunnar Leonu
Lewis, Bleeding Love, fór á topp
bandaríska Billboard-vinsælda-
listans á dögunum. Þar með varð
Lewis fyrsta breska söngkonan
sem kemst á topppinn í Banda-
ríkjunum í rúm tuttugu ár.
Síðust til að ná toppsætinu var
Kim Wilde með lagið You Keep
Me Hangin´ On árið 1987. „Ég
hlakka mikið til að ferðast um
Bandaríkin og syngja tónlistina
mína fyrir almenning,“ sagði
Lewis, sem sló í gegn í X-Factor í
Bretlandi. „Þetta hefur verið
draumur síðan ég var lítil stelpa
og ég get ekki beðið.“
Sú fyrsta í
tuttugu ár
LEONA LEWIS Leona Lewis er fyrsta
breska konan til að ná toppnum í
Bandaríkjunum í tuttugu ár.
Breski óskarsverðlaunaleikstjór-
inn Anthony Minghella var með til-
boð frá Snorra Þórissyni og kvik-
myndafyrirtækinu Pegasus um að
leikstýra Sjálfstæðu fólki eftir bók
Halldórs Laxness. Þetta staðfesti
Snorri í samtali við Fréttablaðið.
Að sögn Snorra var Minghella
mjög áhugasamur um að leik-
stýra myndinni en skyndi-
legt fráfall breska leikstjór-
ans kom mörgum í opna
skjöldu. „Ég hafði í það
minnsta ekki hugmynd um
að hann væri svona veikur,“
segir Snorri, sem hyggst þó
ekki leggja í árar í bát
og ætlar að halda áfram leit sinni
að hentugum leikstjóra fyrir
verkið. „Ég þarf að stokka spilin
upp á nýtt og það þarf að endur-
skoða málið, maður getur ekki
verið að tala við marga í einu,“
segir Snorri en hann hefur enn í
hyggju að leita út fyrir land-
steinana að réttum manni.
„Draumurinn er auðvitað
að þetta verði alþjóðleg
mynd,“ bætir Snorri við.
Minghella lést skömmu
fyrir páska eftir að hafa
háð harða baráttu við
krabbamein í hálsi. Hann
vakti fyrst athygli fyrir
kvikmyndina The Eng-
lish Patient sem hann
fékk Óskarinn fyrir og
The Talented Mr. Rip-
ley en hún fékk fimm Óskars-
tilnefningar. Þá var kvikmynd hans
Cold Mountain einnig hlaðin tilnefn-
ingum en síðasta mynd hans var
Breaking and Enter ing með Jude
Law og Juliette Binoche.
Minghella vildi leikstýra Laxness
MINGHELLA Lést langt fyrir aldur fram
eftir erfiða baráttu við krabbamein.
SNORRI Vildi fá Ming-
hella til að leikstýra
Sjálfstæðu fólki.
NÝDÖNSK
LAUGARD 29. MARS
STÓRTÓNLEIKAR
HÚSIÐ OPNAR KL. 23
MIÐAVERÐ KR. 1900
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
30. mars - uppselt
3. april
4. april
10. april
11. april
17. april
18. april
23. april
24. april