Fréttablaðið - 03.04.2008, Side 4
4 3. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
LÖGGÆSLA „Ég tel rétt að fjárlaganefnd fái fulltrúa
dómsmálaráðuneytisins, svo og Stefán Eiríksson
lögreglustjóra á sinn fund til að fara yfir málin sem
hlýtur þá að tengjast vinnu okkar við framkvæmd
fjárlaga fyrir 2008 og undirbúning fjárlagagerðar
fyrir 2009.“
Þetta segir Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaga-
nefndar Alþingis, í kjölfar ummæla lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu í Fréttablaðinu í gær. Þar sagði
Stefán Eiríksson að þeim árangri væri stefnt í hættu
sem náðst hefðí í öryggis- og löggæslu í landinu komi
ekki frekari fjárveitingar til málaflokksins.
„Það hlýtur að kalla fram spurningar þegar jafn
ábyrgðafullur maður og lögreglustjórinn á höfuðborg-
arsvæðinu er með afdráttarlausar ábendingar eins og
þessar,“ segir formaður fjárlaganefndar enn fremur.
„Í ljósi þeirra tel ég ástæðu til þess að fjárlaganefndin
fái lögreglustjórann og fulltrúa ráðuneytisins á sinn
fund til að fara yfir þessi mál og sjá hvar ber á milli.“
Formaður allsherjarnefndar Alþingis, Birgir
Ár mannsson, segir það hafa verið stefnu bæði
núverandi ríkisstjórnar og þeirrar síðustu að bregðast
við breyttum aðstæðum, meðal annars með lagabreyt-
ingum á sviði löggæslumála.
„Ég er sammála lögreglustjóranum í Reykjavík um
það að það er líka þörf á að skoða fjárhagsramma
embætta hans, svo og lögreglustjórans á Suðurnesjum
út frá breyttum aðstæðum og breyttum verkefnum.
Mér finnst mikilvægt að það verði gert í undirbúningi
fjárlagatillagna fyrir næsta ár.“
Birgir segir þá skyldu vitaskuld hvíla á forstöðu-
mönnum embætta að haga útgjöldum þeirra í
samræmi við fjárlög á hverjum tíma.
„En þar sem breyttar aðstæður kalla á auknar
fjárveitingar verður auðvitað að bæta úr slíkum
þörfum,“ segir formaður allsherjarnefndar. Hann
telur ekki rétt að byggja fárveitingar til löggæslumála
á samanburði við aðra fjárlagaliði, svo sem mennta-
og heilbrigðismál.
„Það sem máli skiptir er að fjárveitingar séu
ákveðnar með tilliti til þeirra þarfa sem fyrir hendi
eru á hverju sviði. Ég tel mikilvægt að þess sé getið
að hvaða leyti auknar kröfur til lögreglunnar kalla á
aukin fjárframlög.“ jss@frettabladid.is
LÖGREGLAN Formaður allsherjarnefndar segir mikilvægt að þess sé getið að hvaða leyti auknar kröfur til lögreglunnar kalli á
aukin fjárframlög. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Vill lögreglustjóra á
fund fjárlaganefndar
Formaður fjárlaganefndar Alþingis telur nauðsynlegt að fá lögreglustjóra
höfuðborgarsvæðisins og fulltrúa dómsmálaráðuneytis á fund nefndarinnar.
Ástæðan er ummæli lögreglustjórans um brýna þörf á auknum fjárveitingum.
NEYTENDUR Eldsneytisverð lækkaði
í gær eftir að N1 reið á vaðið og
gaf 25 krónu afslátt af eldsneytis-
lítranum frá sjö í gærmorgun til
sjö síðdegis. Eldsneytisverð
lækkaði einnig hjá Ego. Önnur fyr-
irtæki fylgdu öll eftir og lækkuðu
eldsneytisverð nema Skeljungur.
Mikil örtröð var á bensínstöðv-
um og langar biðraðir mynduðust.
„Við höfum verið með þrefaldar
vaktir á bensínstöðvum og dælum
fyrir alla til að sýna þjónustulund í
verki,“ segir Ingunn Sveinsdóttir,
sviðstjóri hjá N1. Hún segir N1
munu selja eldsneyti með afslætti í
dag á öllum þjónustustöðvum til að
sýna samstöðu með neytendum og
atvinnubílstjórum. - ghs
N1 lækkar bensínverð:
Biðraðir á bens-
ínstöðvum
DÆLT Á BÍLINN Langar biðraðir mynduð-
ust við bensínstöðvar N1 í gær.
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
9°
10°
8°
7°
9°
17°
15°
11°
7°
10°
22°
20°
12°
12°
25°
13°
29°
17°
2Á MORGUN
10-15 m/s allra austast
annars 3-8.
8
LAUGARDAGUR
Stíf norðanlæátt allra
austast annars hægari.
2
2
1
1
2
4
3
4
4
2
1
13
12
10
8
10
3
10
6
10
6
-3 -3
-3
3
3
-4 -4
-4
2
FLOTTAR HELGAR-
HORFUR
Um helgina lítur afar
vel út með veður
síst þó reyndar allra
austast á landinu.
Má búast við að
annars staðar en þar
verði hæg breytileg
átt og bjartviðri.
Frostlaust verður að
deginum sunnan til
annars frost. Austast
verður á hinn bóg-
inn hvöss norðan átt
með stöku éljum.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
SKIPULAGSMÁL Borgarfulltrúar telja
ekki ástæðu til að breyta áformum
um að leggja Sundabraut í jarð-
göngum, þrátt fyrir viðvörunarorð
Ísleifs Jónssonar, fyrrverandi for-
stöðumanns Jarðborana ríkisins.
„Við skoðum allar athugasemd-
ir, það er gott að borgararnir tjái
sig um þetta, en okkar sérfræðing-
ar hafa aðra skoðun,“ segir Gísli
Marteinn Baldursson, formaður
umhverfis- og samgönguráðs
Reykjavíkurborgar.
Ísleifur segir mikinn vafa leika á
því að hægt sé að leggja göng á
þessu svæði, bergið geti verið of
lekt, og jarðskjálftar geti rofið
göngin.
„Áhyggjur af því tagi sem
Ísleifur setur fram voru ástæða
þess að farið var í umfangsmiklar
jarðfræðirannsóknir á berglög-
um, og gerðar tilraunaboranir,“
segir Dagur B. Eggertsson, odd-
viti Samfylkingarinnar í borgar-
stjórn.
Hann bendir á að Árni Hjartar-
son, jarðfræðingur hjá Íslenskum
orkurannsóknum, hafi svarað full-
yrðingum Ísleifs ágætlega. „Ég
mun keyra rólegur í gegnum
Sundagöng.“
Ísleifur gagnrýnir að aðeins ein
tilraunahola hafi verið boruð í Ell-
iðavogi en auk hennar voru tvær
skáholur boraðar frá landi. Dagur
segir sjálfsagt að koma ábending-
um á borð við þessa á framfæri
við sérfræðinga. Ef þeir taki undir
þurfi einfaldlega að bora fleiri
tilraunaholur. - bj
Borgarfulltrúar segja að ekki þurfi að breyta áformum um legu Sundabrautar:
Keyra rólegir um Sundagöng
GÍSLI MARTEINN
BALDURSSON
DAGUR B.
EGGERTSSON
RÚSSLAND, AP Þrír meðlimir
dómsdagssöfnuðar, sem lokuðu
sig inni í neðanjarðarhelli langt
frá byggð í miðju Rússlandi í
fyrrahaust, komu út úr honum í
gær, að sögn talsmanns héraðs-
yfirvalda í Penza-héraði.
Samningamenn yfirvalda eru
enn að reyna að telja þá ellefu sem
enn eru inni í hellinum á að hætta
að minnsta kosti í bili biðinni eftir
heimsendi og koma aftur undir
bert loft. Í fyrradag kom fjórtán
manna hópur út úr hellinum eftir
að vorleysingar ollu því að hluti
hellisins hrundi. Forsprakkar
söfnuðarins hafa hótað að sprengja
hann í loft upp ef reynt verði að
sækja fólkið með valdi. - aa
Dómsdagssöfnuður:
Hluti hópsins
út úr hellinum
UTANRÍKISMÁL Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, harmar að utanríkisráð-
herra hafi ekki séð sér fært að
mæta á fund utanríkismálanefnd-
ar í gær til að ræða afstöðuna til
þeirra álitaefna sem upp munu
koma á fundi aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins (NATO).
„Það eru vonbrigði að haldið
skuli óbreyttum hætti: að
utanríkismálanefnd fái fyrst
fréttir af því eftir á og yfirleitt
erlendis frá hvaða afstöðu
fulltrúar Íslands hafa til
umdeildra og stórpólitískra
deilumála á vettvangi NATO,“
segir í bókun Steingríms í
nefndinni. - bj
VG harma ráðherraleysi:
Fá fréttir eftir á
og að utan
GENGIÐ 2.4.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
151,16
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
74,98 75,34
148,66 149,38
117,23 117,89
15,717 15,809
14,514 14,6
12,506 12,58
0,7336 0,7378
122,34 123,06
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
DÓMSMÁL Svokallaður sprautu-
nálaræningi hefur verið úrskurð-
aður í Hæstarétti til vistunar á
viðeigandi stofnun til 18. apríl, í
stað þess að sæta gæsluvarðhaldi.
Maðurinn ræmdi peningaklassa
á þremur stöðum og ógnaði fólki
með sprautunál léti það ekki
fjármuni af hendi. Hann er
fíkniefnaneytandi og á langa sögu
um geðrofssjúkdóm, samkvæmt
rannsókn geðlæknis.
Brotaferill mannsins, er hann
beitti sprautunálinni, var
samfelldur, og var það mat
lögregluyfirvalda að hann myndi
halda brotunum áfram gengi
hann laus. - jss
Sprautunálaræninginn:
Er nú vistaður
á stofnun
ANDLÁT Maður á níræðisaldri varð
bráðkvaddur í gufubaði Breið-
holtslaugar rétt eftir klukkan átta
í gærmorgun. Ekki er vitað hver
dánarorsökin var en starfsfólk
hóf lífgunartilraunir um leið og
maðurinn fannst. Sjúkraflutninga-
menn komu á staðinn innan fimm
mínútna frá útkalli en endurlífg-
unartilraunir þeirra báru ekki
árangur. Ljóst er að viðbragðsá-
ætlun sundlaugarinnar gekk vel
en því miður varð ekkert að gert.
Starfsfólk sem gestir voru
eðlilega slegin yfir atburðinum.
- kp
Andlát í Breiðholtslaug:
Fannst látinn
í eimbaðinu
Ranglega var sagt frá því á síðum
Markaðarins í gær að utanþingsvið-
skipti hafi verið með bréf í Existu upp á
21,6 milljarð króna í Kauphöll Íslands á
þriðjudag. Hið rétt er að viðskiptin voru
með bréf Skipta, móðurfélags Símans.
LEIÐRÉTTING