Fréttablaðið - 03.04.2008, Page 10

Fréttablaðið - 03.04.2008, Page 10
10 3. apríl 2008 FIMMTUDAGUR A Ð A L F U N D U R C C P H F . Aðalfundur CCP hf. verður haldinn föstudaginn 4. apríl 2008 á skrifstofu félagsins að Grandagarði 8, Reykjavík og hefst kl. 17:00. Dagskrá: Skýrsla stjórnar félagsins um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður fram til samþykktar. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á reikningsárinu. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna. Tillaga stjórnar CCP hf. um að veita stjórn félagsins heimild í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um allt að kr. 400.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta. Heimildin gildi í 5 ár og má einungis nota í tengslum við efndir kaupréttarsamninga við starfsmenn félagsins, dótturfyrirtækja eða fyrirtækja innan sömu fyrirtækjasamstæðu. Hluthafar skulu ekki hafa forgangsrétt til áskriftar að þessum nýju hlutum. Tillaga stjórnar CCP hf. um að veita stjórn félagsins heimild í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um allt að kr. 1.000.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta. Heimildin gildi í 2 ár og skulu hluthafar ekki hafa forgangsrétt til áskriftar að þessum nýju hlutum. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins. Kosning stjórnar. Kosning endurskoðanda. Önnur mál, sem löglega eru upp borin. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn CCP hf. skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en 5 sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, sbr. 63. gr. (a) hlutafélagalaga nr. 2/1995. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund. Aðalfundarstörf munu fara fram á ensku. Reykjavík, 20. mars 2008 Stjórn CCP hf. I. II. III. IV. V. VI. VII. VIII. IX. X. A T A R N A Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is BÚKAREST, FRÉTTABLAÐIÐ Óvíst var, við upphaf leiðtogafundar Atl- antshafsbandalagsins [Nató] í Búkarest í gær, hvort Georgíu og Úkraínu verði boðið að hefja formlegt ferli til aðildar að banda- laginu. Bandaríkjamenn vilja eindreg- ið að tillaga þess efnis verði sam- þykkt en nokkur ríki vestur Evr- ópu – með Þýskaland í fararbroddi – leggjast gegn því. Opinber skýr- ing þeirra er sú að þau telja ríkin tvö ekki í stakk búin til að verða aðilar að Nató en að baki býr ótti við að aðild þeirra raski valda- jafnvægi í Evrópu. Rússar eru alfarið andvígir því að þessum tveimur fyrrverandi Sovétríkjum verði veitt aðild að Nató. Á kvöldverðarfundum leiðtoga og utanríkisráðherra bandalags- ríkja í gærkvöldi var reynt að miðla málum í deilunni og ættu niðurstöður að fást í dag. Jafnframt er búist við sam- þykkt tillögu um að tveimur ríkj- um Balkanskaga; Albaníu og Króatíu verði veitt aðild að Nató en ríkin hafa undanfarin misseri fylgt formlegri aðildaráætlun. Það hafa Makedóníumenn líka gert en óvissa ríkir um aðild þeirra þar sem Grikkir eru henni mótfallnir. Ríkin hafa deilt allar götur síðan þetta fyrrverandi hérað í Júgóslavíu varð sjálfstætt og tók upp nafn sitt en hluti Grikk- lands nefnist Makedónía. Líta Grikkir á ákvörðun Makedóníu- manna sem ögrun. Íslensk stjórnvöld hafa ekki tekið formlega afstöðu til aðildar- ferlis Georgíu og Úkraínu. Ingi- björg Sólrún Gísladóttir utanrík- isráðherra sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að rétt væri að bíða og sjá hvort ekki takist að sætta ólík sjónarmið. „Við skip- um okkur ekki í aðra hvora fylk- inguna heldur bíðum og sjáum hvort ekki náist samkomulag.“ Á kvöldverðarfundi í gærkvöldi skýrði utanríkisráðherra Georgíu sjónarmið sín fyrir Ingibjörgu Sólrúnu í tvíhliðaviðræðum. Blaðamaður Fréttablaðsins ferðast til og frá Búkarest með íslensku sendinefndinni, í boði stjórnvalda. bjorn@frettabladid.is Óvíst um stækk- un við upphaf Nató-fundar Málamiðlanir um fjölgun Nató-ríkja voru reyndar í Búkarest í gærkvöld. Íslensk stjórnvöld halda sig til hlés í deilum um stækkun. Langt er síðan jafn mikil óvissa ríkir við upphaf leiðtogafundar Nató og nú. Aðgerðir Nató, í umboði Sameinuðu þjóðanna, í Afganistan verða ræddar á sérstökum fundi í Búkarest í dag. Auk fulltrúa Nató-ríkja og samstarfs- þjóða sitja hann forseti Afganistans og framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir utanríkisráðherra segir brýnt að sameinast verði um skýra yfir- lýsingu um að fjölþjóðastofnanirnar tvær standi þétt að baki afgönskum stjórnvöldum. „Það þarf að veita skuldbindingu til framtíðar, sam- ræma betur aðgerðir undir forystu Sameinuðu þjóðanna og ná um þær breiðri sátt.“ Á fundinum verður tilkynnt um þriggja ára áætlun Íslands um þátttöku í þróunar- störfum og uppbyggingu í Afgan- istan. „Það felur í sér þriggja ára skuldbindingu af okkar hálfu,“ segir Ingibjörg Sólrún sem kynnti sér nýverið ástandið í Afganistan. Segist hún hafa séð með eigin augum hve miklu máli aðstoð við uppbyggingu og þróunarstörf skipti. SKULDBINDING ÍSLANDS VIÐ AFGANISTAN VIÐ UPPHAF FUNDAR Traian Basescu, forseti Rúmeníu, heilsar Geir H. Haarde for- sætisráðherra og eignkonu hans, Ingu Jónu Þórðardóttur, við upphaf leiðtogafundar Nató sem fram fer í Búkarest í Rúmeníu. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Tveir karlmenn, annar um þrítugt en hinn nokkru yngri, voru handteknir í miðborg- inni síðdegis í fyrradag en báðir voru með ætluð fíkniefni í fórum sínum. Mennirnir tóku afskiptum lögreglu mjög illa og höfðu í hót- unum. Kom til átaka og fór svo að beita þurfti varnarúða til að hemja annan þeirra en hann hafði slegið lögreglumann í höfuðið. Aðfaranótt þriðjudagsins hafði lögreglan afskipti af tveimur öðrum mönnum í miðborginni. Annar var með ætluð fíkniefni í fórum sínum en hinn var með blóðugan hníf meðferðis. Menn- irnir, annar á fertugsaldri en hinn um tvítugt, voru báðir færðir á lögreglustöð. Þrír karlmenn komu svo við sögu hjá lögreglu í jafn- mörgum fíkniefnamálum á þriðju- dagskvöld. Tveir þeirra, sautján og tuttugu ára, voru með marijú- ana í fórum sínum. Þriðji maður- inn, sem er á fimmtugsaldri, er einnig grunaður um fíkniefnamis- ferli. Sá var meðal annars nokkur greiðslukort sem hann gat ekki gert grein fyrir. - jss Fíkniefnalögreglan tók sjö manns í miðborginni: Lögreglumaður sleginn í höfuðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.