Fréttablaðið - 03.04.2008, Síða 31
FIMMTUDAGUR 3. apríl 2008 5
Þrátt fyrir kuldann sem ríkt hefur hér í París undanfarið er ekki hægt að
komast hjá því að skrifa um tísku komandi sumars. Nú þegar hefur sú
tíska fyrir löngu fengið sitt pláss, jafnt í fínustu tískuhúsum sem í öðrum
verslunum með viðráðanlegra verði.
Hvort það tengist eitthvað fjörutíu ára afmæli maí ́ 68, sem er söguleg-
ur viðburður hér í landi, skal ósagt látið en tískan er upptekin af ákveðnu
afturhvarfi og horfir helst til áranna í kringum 1970 og fram til 1980. Lík-
lega þó örlítið stílhreinni tíska í dag en var á þessum árum og ekki aðeins
ein tískulína í gangi.
Nýjung sumarsins er samfestingar, bæði með stuttum og síðum
skálmum, yfirleitt ermalausir. Rykfrakkinn er sömuleiðis á uppleið, til
dæmis gamli góði Burberrys-„trenchinn“ sem er upplagt að draga fram
aftur. Sömuleiðis sést frakkinn í kjólútgáfu, með breiðum herðum eins og
hjá Pinko. Einnig má sjá hjá mörgum tískuhúsum herralega jakka sem
minna á hinn gamla góða smóking sem Yves Saint-Laurent endurhannaði
fyrir konur upp úr herrasmóking. Þetta á til dæmis við um Dior svo
aðeins eitt tískuhús sé nefnt.
Í sumar eru það sterkir litir frá upphafi diskósins sem gleðja augað,
jafnvel svo sumum þykir nóg um. Auðvitað er hvítt inni í myndinni eins
og alltaf í sumartískunni en er blandað saman við sterkan grænan lit eða
sólgulan og á þetta við um allan klæðnað, líka sokkabuxur og gallabuxur.
Einnig verður fuchsia-bleikt ómissandi litur í sumar á kjólum og blússum
og mikið af beis, sérstaklega í frakkakjólum og samfestingum.
Kjólar til daglegrar notkunar eru annað hvort mjög stuttir eða skósíðir,
kannski gott á gamla Fróni þegar sumarhitinn rétt slagar yfir tíu gráður.
Þar má aftur sjá sterk áhrif frá ´70 -´80. Ekki er verra að kjólarnir séu
með blómamunstri og í sumar eru blómin af öllum stærðum, bæði risa-
stór og þá örfá og dreift yfir neðrihluta efnisins, eða smærri og á öllu
efninu. Ekki má heldur gleyma munstri í anda málara sem kenndir eru
við kúbisma og fleiri listastefnur og er listi hönnuða á þeim nótum langur
(Emilio Pucci, Cavalli, Gaultier, Fendi og fl.) Kjólar eru líka einlitir í
sterkum litum líkt og áður var nefnt, eins og belgskjóll Lacroix.
Útvíðar gallabuxur sjást nú að nýju, til dæmis hjá Gérard Darel. Við
þær eru gjarnan notaðar útvíðar mussur í hippastíl og eru alveg upplagðar
til að breiða yfir frjálsleg form þeirra sem ekki hafa vöxt brasilískra
fyrirsæta er oft vega 40 kíló með farða. Það eru reyndar góðu fréttirnar
í sumartískunni í ár að hún hentar ýmsum líkamsgerðum en ekki aðeins
fyrirsætum. bergb75@free.fr
Sumartíska í vorkulda
Tískuvikan í Kiev stóð yfir í
mars en þar vakti úkraínskur
hönnuður athygli.
Oleksiy Zalevsky, tískuhönnuður
frá Úkraínu, vekur jafnan eftir-
tekt á tískuvikunni í Kiev og var
sýningin í ár engin undantekning.
Hann sótti áhrif til fylgihluta
hundsins eins og ólar, svart leður
og munnkörfur en módelin gengu
jafnan fram með hunda í bandi og
sjálf með hundakraga eða bein í
munninum. Svart, hvítt og silfrað
var áberandi í litavali á stutta
kjóla og hettupeysur, munstraðar
hundabeinum. Hvítir og svartir
loðfeldir stálu senunni. Oleksiy
Zalevsky er þekktur fyrir ögrandi
fatnað og var þessi sýning engin
undantekning. - rat
Kragar og
bein í Kiev
Módelin gengu fram með hunda í bandi
og kraga um hálsinn.
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
sendum í póstkröfu
4.995.- 4.995.-
8.995.-7.995.-
Stærðir: 36-41
Opnunartími:
mán- til föst. 8:00 til 16:00
fi mmtud. 8:00-19:00
Ný sending af frá