Fréttablaðið - 03.04.2008, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 03.04.2008, Blaðsíða 34
 3. APRÍL 2008 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● bílar Á bílasýningunni í Genf kynnti Ford nýjan og endurhannaðan Fiesta, sem nú er fullyrt að verði söluhæsti bíllinn á breskum markaði á næsta ári, en Brimborg hefur sölu á nýju Fiestunni í byrjun næsta árs. Í Genf dró nýi bíllinn til sín fjölda gesta, enda endurspeglar afger- andi hönnun hans yfirlýsinguna: „Ég er mættur!“ Talið er að Ford Fiesta komi til með að keppa um hylli bílkaup- enda við hina lipru og sparneytnu Renault Clio og Opel Corsa. Framleiðendur bjóða Fiestu með ýmsum vélagerðum sem einstök markaðs svæði geta valið úr, en þær eru meðal annarra þessar: 1,4 lítra Duratec-bensínvél 1,6 lítra Ti-VCT-bensínvél 1,4 lítra dísilvél 1,6 lítra TDCi-dísilvél 1,6 lítra ECOnetic-dísilvél Nýja ECOnetic-dísilvélin byggir að grunni til á fyrirliggjandi dísilvélum Ford sem fengið hafa nýja og sérvalda vélarhluti sem draga úr eyðslu og mengun án þess að hestöflum fækki. Fyrsti bíllinn með nýju dísilvélinni verður Ford Focus, en hún sleppir aðeins um 115 grömmum af koltvísýringi út í andrúmsloftið á hvern ekinn kílómetra. Nýr Ford Fiesta mun aðeins sleppa um 100 grömmum af CO2 á hvern ekinn kílómetra. - þlg Ég er mættur! Nýr og endurhannaður Ford Fiesta er talinn verða sigurvegari sölutalna í Bretlandi á næsta ári. REYNSLUAKSTUR Volkswagen Tiguan-sportjepp- inn hefur mikla dráttargetu, er þægilegur í akstri og leggur meira að segja sjálfur í stæði. Sportjeppinn Volkswagen Tiguan er til í þremur útgáfum; Trend & Fun, Sport & Style og Track & Field. Fyrri gerðirnar tvær eru sportlegar í útliti en Track & Field, sem hér var reynslu ekið, er ætlað að sameina þægindi lúxus- fólksbíls og getu torfærubílsins. Þetta er gert á kostnað útlit bíls- ins en Track & Field hefur bratt- ari framenda en hinar tvær gerð- irnar til að skapa meiri veghæð. Þetta gerir bílinn hæfari til að takast á við ófærur á borð við snjó og drullu en hann verður heldur óásjálegri fyrir vikið. Að þessu sinni var reynsluekið VW Tiguan Track & Field TDI með 140 hestafla dísilvél. Bíllinn er sá dýrasti af þeim sem í boði eru hér á landi, kostar rúmar 4,6 milljónir, en Tiguan má fá frá 3,9 milljónum króna. Verðið skýrist af vélarstærð en einnig þeim mikla aukahlutapakka sem fylgir. Meðal nýjunga í bílnum má telja „park assist“-búnaðinn sem hjálpar ökumanni að finna ákjósanlegt stæði fyrir bílinn og aðstoðar hann síðan við að leggja bílnum. Ökumaður þarf þá aðeins að stjórna bensíngjöf og bremsu. Einnig er fyrir aukagjald mögu- leiki að fá bakkmyndavél í bílinn, sem er skemmtileg viðbót og til mikilla þæginda. Á fjölaðgerðaskjánum sem fylgir bílnum birtast ekki aðeins upplýsingar sem snerta akstur- inn eins og meðalhraði og elds- neytisnotkun heldur er þar einnig hægt að sjá í hvaða átt er ekið, þökk sé innbyggðum áttavita sem er í bílnum, auk margra ann- arra skemmtilegra staðreynda. Aksturstölvan er reyndar svo há- þróuð að hægt er að gleyma sér við hinar ýmsu stillingar í lengri tíma. Aksturseiginleikar Tiguan Track & Field eru mjög góðir. Sex þrepa sjálfskipting er mjúk og góð en bæði er hægt að stilla yfir í sportstillingu auk þess sem breyta má úr sjálfskiptingu yfir í beinskiptingu. Krafturinn er meiri en nægur og nær kraftmikil dísilvélin að vinna vel úr hestöfl- unum 140. Þá er varla hægt að greina að hér sé dísilvél á ferð- inni enda ekki vottur af traktors- hljóði í henni og bíllinn almennt mjög hljóðlátur. Tiguan er búinn tæknivæddu sítengdu aldrifi sem flytur afl vélarinnar til allra veghjóla bíls- ins í samræmi við þá viðspyrnu sem hvert þeirra hefur hverju sinni. Bíllinn er því ágætur í tor- færum auk þess sem fjöðrun er fín á malarvegum. Togið í vélinni er gott, 320 Nm, og því má bíllinn draga um 2,5 tonn. Má því segja að sportjepp- inn sé góður kostur fyrir hjól- hýsa- og fellihýsaeigendur. Auk þess má fá á bílinn nýjan dráttar- búnað, dráttartengi á liðamótum sem með einu handtaki er sett í notkunarstöðu og síðan fellt inn undir stuðarann þegar ekki er verið að nota það. Þægindin eru í algjöru fyrir- rúmi í VW Tiguan, hvort sem um ræðir ökumann eða farþega. Sætin eru bæði falleg og þægi- lega hönnuð, fótarými er nægt og lítil hólf um allan bíl þar sem geyma má hluti af ýmsum stærð- um og gerðum. Þá má nefna borð í baki framsæta sem farþegar í aftursæti geta notað til að geyma drykki, lestrarefni eða leikföng. Þrátt fyrir að vera mun „ójeppalegri“ í útliti en stóri bróðir Touareg er rýmið mjög gott í Tiguan. Vel fer um öku- mann og farþega en auk þess er skottið rúmgott, 470 lítrar, og því einkar hentugt fyrir ferðaglaðar fjölskyldur. solveig@frettabladid.is Sportbíll og jeppi Volkswagen Tiguan-sportjeppinn er búinn ýmsum nýjungum, meðal annars búnaði sem hjálpar ökumanni að finna ákjósanleg bílastæði og aðstoðar hann við að leggja bílnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Vel fer um ökumann og farþega í Tiguan Track & Field en auk þess er skottið rúmgott. Á fjölaðgerðaskjá sem fylgir bílnum birtast upplýsingar um meðalhraða og eldsneytis notkun, auk þess sem hægt er að sjá í hvaða átt er ekið. VOLKSWAGEN TIGUAN TRACK & FIELD TDI Hö: 140 Tog: 320 Nm Skipting: 6 þrepa sjálfskipting Þyngd 1604/2260 kg Hröðun 0-100 km/klst: 10,7 sek Eyðsla bl. akstur: 7,5 l/100 km Veghæð: 20 cm Farangursrými: 470/1510 lítrar. Umboð: Hekla Verð: 4.650.000 krónur. Euro NCAP hefur nú endurtekið áreksturspróf á pallbílnum Nissan Navara eftir úrbót og uppfærslu á hugbúnaði sem stjórnar loftpúðunum í bílnum. Eftir breytingarnar nær bíllinn nú þremur stjörnum fyrir vernd fullorðinna í árekstri en fyrir þær hlaut hann einungis eina gegnum strikaða stjörnu. Meginástæða þess hve illa bíllinn kom út úr fyrra prófinu var hversu seint loftpúðarnir fyrir ökumann og framsætisfarþega sprungu út í árekstri framan á bílinn. Af þeim sökum veittu púð- arnir ekki þá vörn sem ætlast er til. Eftir fyrra árekstursprófið brást Nissan við og breytti umrædd- um hugbúnaði í framleiðslunni og innkallaði alla Navara-pallbíla aftur til ársins 2005 til að gera breytingar á hugbúnaðinum. Hér á Íslandi sendi Ingvar Helgason hf., umboðsfyrirtæki Nissan, öllum eigendum þessara umræddu bíla ábyrgðarbréf um málið ásamt því að tæknimenn fyrirtækisins lögðu upp í hringferð um landið til að breyta bílunum. Nýir Nissan Navara-bílar eru nú allir með endurbætta hugbún- aðinum. - ve Endurbættur Nissan fær þrjár stjörnur Nissan Navara nær þremur stjörnum fyrir vernd eftir breytingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.