Fréttablaðið - 17.04.2008, Side 2

Fréttablaðið - 17.04.2008, Side 2
2 17. apríl 2008 FIMMTUDAGUR flugfelag.is Netið Þú færð alltaf hagstæðasta verðið á www.flugfelag.is ÞORLÁKSHÖFN Lögfræðingur Lýsis hf. krefst þess að Guðmundur Oddgeirsson, talsmaður hóps íbúa í Þorlákshöfn, sem mótmælt hefur fiskþurrkun í bænum, dragi til baka ummæli sín um fyrirtækið í fjölmiðlum ellegar fari fyrirtækið í mál. Í yfirlýsingu frá Lýsi segir að í blaðaviðtölum hafi Guðmundur haft uppi gífuryrði um Lýsi og að lögfræðingur félagsins kanni nú réttarstöðu þess með málshöfðun í huga. „Hann kallar fyrirtækið umhverfissóða og síbrotafyrir- tæki,“ segir Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis. „Við sitjum ekki undir svona áburði.“ Á mánudag barst Guðmundi bréf frá lögfræðingi Lýsis. Þar er ummælum hans mótmælt og þau sögð til þess fallin að skaða ímynd Lýsis og valda því fjárhagslegu tjóni. Er þess krafist að Guðmund- ur dragi ummæli sín til baka í öllum helstu fjölmiðlum landsins og birti afsökunarbeiðni. Að öðrum kosti áskilur Lýsi sér rétt til að höfða mál gegn honum til ómerkingar ummælanna sem og til heimtu skaðabóta og eða miska- bóta. „Ég er að skoða mín mál með mínum lögfræðingi,“ segir Guð- mundur. „Ég er að verja heimili mitt fyrir þeirri mengun sem berst frá hausaþurrkun Lýsis. Ég er talsmaður 527 íbúa Þorláks- hafnar og hef talað í anda þess.“ Í yfirlýsingu frá Lýsi segir að fyrirtækið harmi það ástand sem skapast hefur um atvinnurekstur fyrirtækisins í Þorlákshöfn þar sem íbúar hafa kvartað yfir lykt- armengun frá fiskþurrkun þess. Mengunarbúnaður hafi verið til- búinn í eitt og hálft ár en leyfi ekki fengist frá bæjaryfirvöldum til að setja hann upp. „Erfitt sé að draga aðrar álykt- anir af þessari synjun en þær að bæjaryfirvöld vilji viðhalda óánægju íbúa Þorlákshafnar með starfsemi fiskþurrkunarinnar. „Bæjaryfirvöld skýla sér bak við að það stríði gegn skipulagi eða einhverju slíku,“ segir Katrín. Um tvo turna sé að ræða sem bæjaryf- irvöld telji of háa. „Við synjuðum þessum turnum ekki,“ segir Ólafur Áki Ragnars- son, bæjarstjóri í Ölfusi. Skipu- lagslög segi til um að svo háir turnar þurfi að fara í deiliskipulag sem sé Lýsis að gera. „Tillagan hefur ekki borist okkur enn þá,“ segir Ólafur sem telur Lýsi ekki hafa unnið sína vinnu eins og þeim beri að gera. Segir hann ekkert lát á viðvarandi lyktarmengun frá verksmiðjunni. „Okkur finnast þetta ekki merkileg vinnubrögð hjá aðila eins og Lýsi sem gefur sig út fyrir að vera fyrirtæki með hreina og heilsusamlega vöru.“ Ólafur gagnrýnir einnig Heil- brigðiseftirlit Suðurlands. „Við höfum margoft mótmælt þessu við heilbrigðiseftirlitið en það hefur ekkert tillit verið tekið til þess og fyrirtækið ekki einu sinni krafið um að fara eftir skilyrðum starfsleyfis.“ „Það getur komið fyrir, sérstak- lega í norðanátt, að það sé lykt frá verksmiðjunni,“ segir Katrín. Það segi sig sjálft að alltaf berist lykt frá fiskþurrkun. „En það er fisk- þurrkunarlykt, ekki ýldufýla.“ olav@frettabladid.is Lýsi hótar talsmanni íbúa málshöfðun Mengunarbúnaður liggur við hlið fiskþurrkunarverksmiðju Lýsis í Þorlákshöfn. Leyfi til uppsetningar fæst ekki hjá bæjaryfirvöldum þar sem búnaðurinn þarf að fara í deiliskipulag sem Lýsi hefur ekki unnið. Viðvarandi lyktarmengun. FRÁ ÞORLÁKSHÖFN Forráðamenn Lýsis saka bæjaryfirvöld í Ölfusi um að standa í vegi fyrir uppsetningu á mengunarbúnaði og viðhalda þannig óánægju íbúa með fiskþurrkunarverksmiðju. FRÉTTABLAÐIÐ/EINAR ELÍASSON Bjarni, býður þú upp á sam- göngusvið? „Já, en þetta geta líka verið leiksvið, aðallega eru þetta þó átsvið.“ Ný samgöngumiðstöð mun rísa í Vatns- mýrinni. Bjarni Alfreðsson, veitingamaður á BSÍ, vonar að hann geti áfram boðið upp á kjamma og kók í samgöngumið- stöðinni og hefur gefið sig út fyrir að vera verndari sviðakjammans. LÖGREGLA Tölur ríkislögreglu- stjóra sýna að um 73 prósentum fleiri tilkynningar um líkams- meiðingar bárust lögreglu nú í mars miðað við sama mánuð fyrir tveimur árum. Aukningin er um 29 prósent frá því í mars í fyrra. „Það er ekki hægt að draga neinar víðtækar ályktanir af samanburði á svona stuttum tímabilum, aðeins einum mánuði, en að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því ef ofbeldisbrotum er almennt að fjölga,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæð- isins. Stefán bendir á að fyrstu tvo mánuði þessa árs hafi fjöldi hegningarlagabrota verið svipaður og sömu mánuði í fyrra. Þá hafi apríl enn sem komið er verið í rólegri kantinum. - gar Tölur frá ríkislögreglustjóra: Ofbeldisverk- um fjölgar STEFÁN EIRÍKSSON DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs- aldri neitar að hafa banað manni sem fannst látinn á heimili sínu í fjölbýlishúsi við Hringbraut í okt- óber síðastliðnum. Maðurinn hefur verið ákærð- ur fyrir manndráp en ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjavík- ur í gær. Í ákæru er hann sagð- ur hafa barið húsráðanda þrisvar sinnum með slökkvitæki í hausinn með þeim afleiðingum að hann hlaut heilablæðingu og dó. Maðurinn sem ákærður er var sá hinn sami og tilkynnti lögreglu um að maður lægi rænulaus í rúmi sínu. Aðalmeðferð fer fram þrítug- asta þessa mánaðar. - mh Manndráp á Hringbraut: Ákærði neitar sök í dómsal DANMÖRK Tveir grímuklæddir menn rændu í gær fimm ára dreng úr bíl móður hans í Virum í Danmörku. Var móðirin að sækja drenginn á leikskóla og hafði sett hann í barnabílstól þegar mennirnir réðust á hana. Rifu þeir drenginn út úr bílnum, fleygðu honum inn í svartan skutbíl og óku á brott. Hóf lögreglan á Norður-Sjálandi þegar í stað leit að mönnunum og drengnum og tók mikið lið lögreglu þátt í leitinni. Drengur- inn, sem er af kínverskum uppruna, heitir Oliver. Hefur móðirin sagt lögreglunni að hún hafi ekki þekkt ræningjana. - ovd Hrifsuðu dreng af móður: Barnsrán í Danmörku DANMÖRK Nærri 100.000 starfs- menn í umönnunarstörfum í Dan- mörku fóru í verkfall í gær í kjöl- far þess að kjaraviðræður strönduðu. Þetta er umfangsmesta verkfall í landinu síðan árið 1998. Hjúkrunarfólk, starfsfólk í félagsþjónustu og á barnaheimil- um er meðal þeirra sem taka þátt í verkfallinu. Bráðadeildum sjúkrahúsa er þó haldið opnum. Verkalýðsfélögin krefjast 15 prósenta launahækkunar en samninganefndir hafa boðið 12,8 prósenta hækkun og sumir opinberir starfsmenn hafa þegið hana. Ríkisstjórnin hyggst ekki grípa inn í verkfallið. - aa Kjaradeila í Danmörku: Nærri 100.000 manns í verkfall TÓMIR GANGAR Danskt hjúkrunarstarfs- fólk gekk út af sjúkrahúsunum. EINKALÍF Lög um persónuvernd voru brotin á starfsstúlku á elli- heimilinu Grund með skráningu upplýsinga um veikindi hennar í gagnagrunn. Vegna ungs aldurs var stúlkan ekki lögráða þegar hún starfaði á Grund. Forráðamaður hennar leit- aði til Persónuverndar í nóvember síðastliðinn vegna þess sem hann taldi vera óþarfa skylduskráningu og söfnun heilsufarsupplýsinga um stúlkuna án samþykkis hans sem forráðamanns. Grund hafði falið einkafyrir- tæki sem nú heitir Heilsuverndar- stöðin að annast veikindaskrán- ingu starfsmanna elliheimilisins. Áttu starfsmenn að tilkynna því fyrirtæki um veikindi og eðli þeirra. Um þetta var síðan haldin skrá. Fulltrúar Persónuverndar heim- sóttu Heilsuverndarstöðina í lok janúar síðastliðinn til að kanna gögn fyrirtækisins um ungu stúlk- una: „Kom í ljós að þar voru skráðar upplýsingar um fjarvistir hennar frá vinnu vegna veikinda og í sumum tilvikum einnig um eðli veikindanna,“ segir í úrskurði Persónuverndar. Niðurstaða Persónuverndar var að Grund hefði ekki gert stúlkunni næga grein fyrir því að henni væri ekki skylt að veita viðkvæmar persónuupplýsingar um sjálfa sig. - gar Ekki farið að lögum um persónuvernd gagnvart ólögráða starfsstúlku á Grund: Skráðu veikindasögu án leyfis GRUND Starfsfólki elliheimilisins var gert að tilkynna veikindi til einkafyrirtækis út í bæ. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA LÖGREGLUMÁL Stefnt er að auknu og bættu samstarfi pólskra og íslenskra lögregluyfirvalda. Er það eitt af því sem rætt var á fundi Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra höfuðborgarsvæð- isins, og Michal Síkorskí, ræðismanns Póllands, í gær. Var fundur þeirra haldinn í framhaldi af máli Premyslaw Plank, sem grunaður er um morð í Póllandi en hefur verið búsettur hér á landi. - ovd Samskipti Íslands og Póllands: Aukið samstarf lögregluliðanna ORKUMÁL Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsókn- arflokksins, telur augljóst ósamræmi vera í yfirlýsingum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins varðandi verkefni Reykjavík Engergy Invest í Afríku. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafi sagt á borgarstjórnarfundi á þriðjudag að Kjartan Magnússon hefði fullt umboð borgarstjórnarflokks- ins til að undirrita samninga í Djíbútí, sem skuld- bindur REI til að leggja 300 milljónir króna í hagkvæmnisathugun vegna fyrirhugaðrar jarð- varmavirkjunar, ef erlendir sjóðir koma upp með aðrar 1.200 milljónir sem verkefnið kostar. „Síðan segir Gísli Marteinn Baldursson í viðtali við RÚV að hann treysti Kjartani til að draga fyrirtækið út úr verkefnum og lágmarka alla áhættu og einhugur sé innan borgarstjórnarflokks- ins um að skattpeningar borgarbúa sé ekki notaður í áhætturekstur í Afríku eða annars staðar.“ Óskar telur að á meðan ekki fæst skýr lína í málflutningi pólitískrar yfirstjórnar Orkuveitunn- ar og REI skaðist bæði fyrirtækin og íslenska orkuútrásin í heild. „Orkuútrásin hefur hingað til notið virðingar og trausts úti um allan heim. En vandræðagangurinn í yfirstjórn fyrirtækjanna er stórskaðlegur fyrir orkuútrásina,“ segir Óskar. - shá Borgarfulltrúi segir ósamræmi í málflutningi sjálfstæðismanna um málefni REI: Stórskaðlegt fyrir orkuútrás ÓSKAR BERGSSON Pólítísk yfirstjórn REI og OR skaðar fyrir- tækin, að hans mati. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.