Fréttablaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 79
FIMMTUDAGUR 17. apríl 2008
G
O
T
T
F
Ó
LK
/Ö
LG
E
R
Ð
IN
ANDAKÍLSÁ Í BORGARFIRÐI - SILUNGASVÆÐI
Rúmgott veiðihús. Veitt á 3 stangir.
Dagverð á stöng aðeins 3.500 kr.
HÍTARÁ II
Sérlega fallegt og vinsælt svæði. 4 stangir í júní.
Tímabil 23. júní – 28. júní. Dagverð á stöng 7.900 kr.
TUNGUFLJÓT Í SKAFTÁRTUNGU
Eftirsótt veiðisvæði með stórgóðri og ný-endurbættri aðstöðu.
Veitt á 4 stangir í maí, dagverð á stöng aðeins 4.900 kr.
Vika frá föstudegi til föstudags í júní á 44.900 kr.
STEINSMÝRARVÖTN
Stutt frá Kirkjubæjarklaustri. Vinsælt og skemmtilegt svæði
með góðu veiðihúsi m/heitum potti. Í allt sumar er dagverð
á stöng 6.100 kr. og seldar eru 4 stangir.
SOG – VORVEIÐI
Í Soginu er hægt að fá sumarhús með veiði á mjög hagstæðu
verði. Á silungasvæðunum í Bíldsfelli, Ásgarði og Alviðru er
boðið upp á veiði með húsi á mjög lágu verði í apríl og maí.
Allar upplýsingar á heimasíðu okkar www.svfr.is og í síma 568 6050.
Sumarhús
með veiði
Heimildarmyndin The King of
Kong segir frá nútíma keppend-
um gamla spilakassaleiksins
Donkey Kong, fólki sem á það
sameiginlegt að vera komið langt
fram á fullorðinsaldurinn. Lífið
hjá þeim virðist hafa stöðvast á
níunda áratugnum og metnaður
þeirra liggur í ná sem flestum
stigum í spilakassaleikjum, þá
helst Donkey Kong, sem talinn er
sá erfiðasti.
The King of Kong kynnir til
sögunnar ótrúlegan hóp karakt-
era; þar á meðal Billy Mitchell,
sjálfumglaða stórstjörnu í tölvu-
leikjaheiminum og heimsmethafa
í Donkey Kong, og Walter Day,
dómara í heimsmetum spilakassa-
leikja, sem sér um að atlögur við
metin fari fram á réttmætan hátt.
Veröld Billys hrynur hins vegar
þegar Steve Wiebe, grunnskóla-
kennari sem hefur mistekist
margt í lífinu, tekur sig til og slær
heimsmet hans. Við það fer
atburðarás myndarinnar af stað,
og Billy gerir hvað hann getur til
að sverta mannorð Steve og slá
honum við í leiknum.
Leikstjórinn Seth Gordon fylg-
ir ótrúlegri atburðarásinni eftir
með afskaplega vel völdum mynd-
skeiðum og nær að hnýta saman
heildstæða frásögn. Persónurnar
og atburðarásin er óvænt að því
leyti að hvaða handritshöfundur
sem er væri stoltur af því að finna
það upp. Kostulegheitin geta jafn-
vel minnt á gerviheimildarmynd-
ir (e. mockumentary) Christop-
hers Guest, án þess auðvitað að
vera leikið.
Gordon gerir ekki lítið þessu úr
viðfangsefni sínu heldur sýnir
þessa iðkun líkt og hvert annað
keppnisáhugamál. Myndin höfðar
þannig til allra, sama hver þekk-
ing þeirra á tölvuleikjum sem
slíkum sé.
Loftur Ingi Bjarnason - Topp5.is
Átök í Donkey Kong
KVIKMYNDIR
The King of Kong
Leikstjóri: Seth Gordon.
Sýnd á Bíódögum Græna ljóssins.
★★★★
Ein skemmtilegasta heimildarmynd
sem gerð hefur verið um nokkurt
skeið.
Emilio Diaz, faðir leikkonunnar
Cameron Diaz, er látinn úr
lungnabólgu. Emilio, sem var 58
ára, hafði verið með flensu sem
þróaðist síðan út í lungnabólgu.
Hann hafði alla tíð verið heilsu-
hraustur og því kom dauði hans
öllum í opna skjöldu. Hann lék á
móti dóttur sinni í litlu hlutverki í
myndinni There´s Something
about Mary.
Framleiðslu á nýjustu mynd
Cameron, My Sister‘s Keeper
hefur verið frestað vegna
atburðarins. Hún sést næst á
hvíta tjaldinu í myndinni What
Happens in Vegas á móti Ashton
Kutcher en óvíst er hvort hún
tekur þátt í að kynna hana.
Faðir Diaz
lést óvæntHljómsveitin Hjaltalín hitar upp
fyrir Múm á tvennum tónleikum í
New York dagana 22. og 23. apríl.
Einnig spilar sveitin í útvarpsþætti
hjá East Village Radio 19. apríl, eða
næstkomandi laugardag.
„Þetta á eftir að verða gaman. Ég
hef aldrei komið til New York þannig
að þetta verður bara mikið fjör fyrir
mig og okkur öll,“ segir Högni Egils-
son úr Hjaltalín. „Við spilum á
einum tónleikum í Brooklyn og
öðrum á Manhattan á áhugaverðum
stöðum. Staðurinn í Brooklyn heitir
Brooklyn Masonic Temple og er stór
staður í eigu frímúrarareglunnar.“
Í lok maí spilar Hjaltalín síðan í
London, París, á tveimur tónlistar-
hátíðum í Danmörku og í Svíþjóð. Er
tónleikaferðin liður í að kynna
fyrstu plötu Hjaltalín sem verður
dreift í Skandinavíu á næstunni.
Áður en Hjaltalín fer til New York
spilar hún í Norðurkjallara MH í
kvöld ásamt Carpet Show og Retro
Stefson. - fb
Spila í New York
HJALTALÍN Hljómsveitin Hjaltalín hitar
upp fyrir Múm á tvennum tónleikum í
New York.