Fréttablaðið - 17.04.2008, Síða 86
58 17. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT: 2. íþrótt 6. rykkorn 8. háttur
9. lyftiduft 11. ónefndur 12. rithöf-
undur 14. hégómi 16. ólæti 17. titill
18. rell 20. mergð 21. ögn.
LÓÐRÉTT: 1. hluta sólahrings 3.
fæddi 4. jarðbrú 5. skelfing 7. starf-
ræksla 10. gyðja 13. hrós 15. uppurið
16. flýti 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. póló, 6. ar, 8. lag, 9. ger,
11. nn, 12. skáld, 14. snobb, 16. at,
17. frú, 18. suð, 20. úi, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. dags, 3. ól, 4. landbrú,
5. ógn, 7. rekstur, 10. rán, 13. lof, 15.
búið, 16. asa, 19. ðð.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Á Hofsósi
2 Margrét Sverrisdóttir
3 3,5 prósent
„Ég fæ mér yfirleitt ab-mjólk
með haframjöli og banönum og
ristað brauð með osti og marm-
elaði, og svo kaffi.“
Sesselja Kristjánsdóttir söngkona.
„Þetta verður tilfinningalegt uppgjör,“ segir bæjar-
fulltrúinn Margrét Gauja Magnúsdóttir sem rýfur
þögnina eftir tuttugu ára hlé og syngur Eurovision-
lagið Sólarsamba með föður sínum Magga Kjartans á
Organ 23. apríl.
„Við ætlum að gera þetta með stæl. Það eru tuttugu
ár síðan við vorum í Eurovision og við höfum náttúr-
lega ekkert elst,“ segir Margrét og hlakkar mikið til.
„Þetta er flott lag og við ætlum bara að hafa gaman af
þessu. Það er líka frábært að þeir skuli hafa hugsað
til lagsins þegar þeir settu þessa tónleika á.“
Að sögn Margrétar stendur til að færa Sólarsömb-
una til nútímans með aðstoð plötusnúðs og slagverks.
„Við ætlum að lengja það töluvert og fá smá stæla í
það.“ Auk heiðursgestanna Margrétar og Magnúsar
koma fram á tónleikunum, sem bera yfirskriftina
Sólarsamba 2008, hljómsveitirnar Seabear, Skátar,
Kimono og Swords of Chaos.
Margrét segist hafa lent í nokkru aðkasti í æsku
fyrir að hafa sungið lagið en er löngu hætt að láta það
á sig frá. „Ég er ekki kölluð Magga Sólarsamba í
Hafnarfirði fyrir ekki neitt. Ég var ekkert sérstak-
lega sátt við þetta í mörg ár á eftir og ég var fúl út í
pabba í smá tíma,“ segir hún en vill ekki meina að
hún hafi orðið fyrir einelti. „Börn geta samt verið
grimm, það er alveg staðreynd en þetta var ekkert
sem ég bar skaða af. Fyrir tíu árum kom ákveðinn
tímapunktur sem ég ákvað að sætta mig við að þetta
væri hluti af minni fortíð og í dag er ég stolt af því að
vera hluti af Eurovison-sögu Íslands.“
Ef frá er talið örstutt brot úr Sólarsömbu sem Mar-
grét flutti í söngleik Kvennaskólans árið 1996 hefur
hún látið lagið algjörlega eiga sig öll þessi ár. Hún
hefur þó aldrei hætt að syngja með pabba sínum, þó
svo að Sólarsamban hafi aldrei komist á efnisskrána.
„Síðast sungum við saman í sænskri kirkju síðasta
sumar í brúðkaupi vinkonu minnar lagið Islands in
the Stream eftir Dolly Parton. Síðan höfum við stund-
um tekið lagið við hátíðlegar athafnir fyrir vini og
vandamenn.“
Æfingar vegna Sólarsömbu hefjast í næstu viku og
þá munu feðginin stilla saman strengi sína og gera
upp fortíðina í eitt skipti fyrir öll. freyr@frettabladid.is
MARGRÉT GAUJA MAGNÚSDÓTTIR: STÍGUR ÚR SKUGGA SÓLARSÖMBU
Tuttugu ára þögn rofin
SÓLARSAMBA Feðginin Magnús Kjartansson og Margrét Gauja
syngja Sólarsömbu í undankeppni Eurovision 1988.
Íslenska tónskáldið Atli Örvarsson hefur verið
ráðinn til að semja tónlistina við bandarísku
kvikmyndina The Code. Þetta kemur fram á vef-
síðunni imdb.com. Leikstjóri The Code er Mimi
Leeder en hún á að baki leikstjórn í nokkrum af
þekktustu sjónvarpsseríum heims, þeirra á
meðal West Wing og E.R. Auk þess
hefur hún leikstýrt kvik-
myndum á borð við The
Peacemaker með George
Clooney og Nicole Kid-
man og Pay it
Forward með Kevin Spacey í aðalhlutverki.
Atli hefur náð að skapa sér gott orð sem tón-
skáld í hinni stóru Hollywood-verksmiðju og
hefur meðal annars komið að gerð tónlistar við
kvikmyndirnar The Simpsons og Pirates of the
Caribbean. Eins og Fréttablaðið hefur greint
frá samdi Atli síðan tónlistina við The
Vantage Point sem nú er sýnd í kvik-
myndahúsum borgarinnar og hefur fengið
prýðilega dóma fyrir. Hann var
að klára tónverkið við Babylon
A.D. með rapparanum R.Z.A.
og bassaleikara System of
a Down en þar fer
harðhausinn Vin
Diesel með aðal-
hlutverkið auk Gér-
ards Depardieu og
Michelle Yeoh.
The Code segir frá
gömlum þjófi sem þarf á einu góðu verki að
halda til að borga rússnesku mafíunni gamla
skuld. Hann fær til liðs við sig ungan
og metnaðarfullan glæpamann
og kennir honum allt sem
hann kann í þessum fræðum.
Með aðalhlutverkin fara
Óskarsverðlaunahafinn
Morgan Freeman og
spænska sjarmatröllið Ant-
onio Banderas auk Roberts
Forster. Áætlað er að
myndin verði frumsýnd
seinna á þessu ári. - fgg
Atli semur fyrir Banderas og Freeman
SLÆR Í GEGN Stórverk-
efnin hlaðast inn á borð
til Atla sem er að semja
tónlistina við The Code.
LÆRLINGURINN
OG LÆRIMEIST-
ARINN Antonio
Banderas og
Morgan Freeman
leika aðalhlutverkin í
kvikmyndinni The Code.
Símafyrirtækin hafa augljóslega ekki farið á mis við
vinsældir Eurovision-keppninnar. Eins og komið
hefur fram í fjölmiðlum er Merzedes Club í aðal-
hlutverki í nýrri herferð Símans með lag sitt Meira
frelsi. Og í dag verður myndband Eurobandsins við
Eurovision-framlagið This Is My Life frumsýnt á
heimasíðu símafyrirtækisins Nova. „Þetta er
náttúrlega allt annars eðlis, við erum ekki að fara í
neina herferð fyrir Nova heldur fannst þeim þetta
bara skemmtilegt og sýndu þessu mikinn áhuga,“
segir Grétar Örvarsson, umboðsmaður Eurobands-
ins. „Annars hefur síminn líka bara verið vinsæll
síðan Alexander Graham Bell fann hann upp og
þetta er því ekkert óeðlilegt,“ bætir Grétar við en
viðurkennir um leið að þetta sé kannski svolítið
fyndið í ljósi aðstæðnanna.
Eurobandið verður á ferð og flugi á næstunni en
hljómsveitin fer í heilu lagi til Kaupmannahafnar og
heldur uppi stuðinu eftir stórtónleika Björgvins
Halldórssonar. Strax um morguninn fljúga þau
Regína Ósk og Friðrik Ómar til London þar sem þau
koma fram í ógnarstóru Eurovision-partíi en þar
munu stíga á stokk allar helstu Eurovision-stjörnur
þessa árs. Loks er væntanleg plata með Eurovision-
laginu en þar verður auk þess að finna Hold Me Now
eftir Johnny Logan í nýrri útsetningu Örlygs Smára.
„Við ætlum ekkert að fara af stað með neina
flugeldasýningu heldur viljum toppa á réttum tíma,“
segir Grétar. - fgg
Nova frumsýnir Eurobandið
NOVASTUÐ Eurobandið frumsýnir nýtt myndband á heimasíðu
símafyrirtækisins Nova, nova.is.
MARGRÉT GAUJA Bæjarfulltrúinn Margrét Gauja ætlar að
syngja Sólarsömbu eftir tuttugu ára hlé.
Þegar Kaffibarinn var það heitasta
í skemmtanalífi Reykjavíkur tóku
þeir Eiður Snorri og Einar Snorri
sig til og mynduðu fastagestina.
Afraksturinn, myndaröðin Barflies,
svart-hvítar portrettmyndir af
djammlandsliðinu sumarið 1994,
hefur verið hengdur upp í galleríum
víðs vegar og er nú á leiðinni í bók.
Með bókinni fylgir listi yfir störf
fólksins þá og nú og hafa mismikl-
ar breytingar orðið á högum
fólks. Flestir eru reyndar
enn að gera það sama
og fyrir fjórtán árum,
nema kannski helst
Eyþór Arnalds. Útgáfu
bókarinnar verður fagnað
með partíi og hvar
annars staðar en á
Kaffibarnum?
Eiríkur Hauksson er væntanlegur
til landsins og verður gestadómari
í úrslitaþætti Bandsins hans Bubba
á morgun. Eiki kemur þó víðar við
og verður „metalhaus mánaðarins“
í útvarpsþættinum Metall!!! sem
Arnar Eggert Thoroddsen sér um
á Rás 2 í kvöld. Eiríkur er auðvitað
mikill þungarokkari eins og störf
hans í Start, Drýsli og
Artch bera vitni um.
Eiríkur mun spila sín
uppáhaldsslög og
spjalla um uppvöxt
sinn sem þunga-
rokkara. Þáttur
Arnars hefst
eftir tíufréttir.
Mikil stemning virðist vera að
myndast fyrir lokaþætti Bandsins
hans Bubba annað kvöld. Þar
kljást Eyþór Ingi Gunnlaugsson og
Arnar Már Friðriksson um sigurinn.
Áhorf á þáttinn hefur tekið kipp og
þannig herma óstaðfestar tölur að
39 prósent landsmanna
á aldrinum 18-49 ára
hafi fylgst með und-
anúrslitaþættinum.
- glh
FRÉTTIR AF FÓLKI
Linda B. Stefánsd.
lögg. fasteignasali
Reykjavík
Einstakt tækifæri
í byggingariðnaði
Til sölu heildsölufyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinu í byggingaiðnaðinum
með góðum umboðum. Miklir
vaxtamöguleikar og góð framlegð. Einstakt
tækifæri fyrir dugmikla einstaklinga.
Halldór Jensson
viðskiptastjóri
halldor@domus.is
sími 840 2100