Fréttablaðið - 17.05.2008, Page 2
2 17. maí 2008 LAUGARDAGUR
Akureyri
Vík
Egilsstaðir
Selfoss
Hveragerði
Hafnarfjörður
Neskaupstaður
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Súðavík
Ísafjörður
Akranes
Njarðvík
Sandgerði
Hreðavatnsskáli
Reykjavík
Þú sparar á Orkustöðvunum
Net Orkustöðvanna umhverfis landið þéttist sífellt til enn frekari
hagsbóta fyrir almenning. Kynntu þér hvar Orkustöðvarnar eru og
hvað bensínið er ódýrt þar.
SPÁÐU Í HVAÐ ÞÚ SPARAR!
www.orkan.is
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
IK
LÖGREGLUMÁL Fjórar kærur hafa
nú verið lagðar fram á hendur
séra Gunnari Björnssyni, sókn-
arpresti á Selfossi. Fjórða kæran
barst á þriðjudag og að sögn
Ólafs Helga Kjartanssonar sýslu-
manns á Selfossi snýr hún að kyn-
ferðisbroti.
Konan er um tvítugt, eða um
tveimur árum eldri en þær þrjár
sem áður höfðu kært Gunnar.
Brotin munu hafa átt sér stað
þegar hún var undir lögaldri.
Stúlkurnar þrjár sem fyrst
lögðu inn kærur mættu í skýrslu-
töku í Héraðsdóm Reykjavíkur
í gær. Rannsókn málsins heldur
áfram í kjölfarið. - kg
Séra Gunnar Björnsson:
Fjórða kæran
borin fram
FÉLAGSMÁL Alþjóðahús hlaut
mannréttindaverðlaun á mann-
réttindadegi Reykjavíkur sem
haldinn var í fyrsta sinn í gær.
Eru verðlaunin veitt þeim ein-
staklingum, félagasamtökum eða
stofnunum sem hafa á eftirtektar-
verðan hátt staðið vörð um mann-
réttindi tiltekinna hópa. Markmið
mannréttindadagsins er að vekja
athygli á þeim málum sem varða
mannréttindi borgarbúa og á
mannréttindastefnu Reykjavíkur-
borgar. Í tilkynningu frá Reykja-
víkurborg segir að Alþjóðahús
hafi gegnt lykilhlutverki í mann-
réttindamálum í borginni og unnið
ötult frumkvöðlastarf í þjónustu
og þágu innflytjenda. - ovd
Mannréttindaverðlaun:
Alþjóðahús
verðlaunað
ALÞJÓÐAHÚS Meginhlutverk hússins
snýr að aðlögun innflytjenda að íslensku
samfélagi. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
FÉLAGSMÁL Frumvarp um breytingar á Íbúðalánasjóði
verður lagt fyrir Alþingi í haust. Almenn lán og félags-
leg lán verða aðskilin, og ríkisábyrgð á almennum
lánum afnumin.
Lengi hefur legið í loftinu að fara þurfi í breyting-
ar á sjóðnum vegna kæru frá ESA, eftirlitsstofnun
EFTA, segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra.
Breytingarnar verða aðallega þær að skilið verður
á milli almennra lána og félagslegra lána. ESA telur
núverandi fyrirkomulag ganga gegn ákvæðum um
ríkisstyrki, vegna ríkisábyrgðar á lánum sjóðsins.
Jóhanna segir að verið sé að bregðast við þessu.
„Íbúðalánasjóður mun áfram starfa sem heildstætt
þjónustukerfi, bæði með almennum lánum og félags-
legum. Félagslegu lánin verða þá áfram með ríkis á-
byrgð en almennu lánin ekki vegna kröfu frá ESA um
að við jöfnum samkeppnisskilyrði,“ segir Jóhanna.
„Ég mun að sjálfsögðu standa vörð um Íbúðalánasjóð
áfram.“
Finna má sóknarfæri í þessum breytingum, hægt
verður að styrkja félagslegt hlutverk sjóðsins, segir
Jóhanna. Útfærsla á breytingunum er ekki fullunnin,
en nauðsynlegar lagabreytingar verða gerðar á
haustþingi.
„Sjóðurinn verður áfram hluti af því öryggisneti
sem þjóðin þekkir. Við sjáum í þeim hremmingum
sem við erum í að nauðsynlegt er að hafa hann
áfram,“ segir Jóhanna. Hún þvertekur fyrir að breyt-
ingarnar séu fyrsta skrefið í því að leggja niður aðra
starfsemi en félagslegar lánveitingar. Jóhanna óttast
ekki að það skapi óvissu að tilkynna um breytingar
nú, án þess að tímasetja þær eða skýra nákvæmlega
hvað í þeim muni felast. Ekki sé víst að þessi breyt-
ing verði til þess að hækka vexti á almennum lánum
sjóðsins. Breytingarnar muni til að mynda gefa sjóðn-
um færi á að fjármagna sig með sérvörðum skulda-
bréfum, og sameiginlegum útboðum með öðrum lána-
stofnunum.
Engar breytingar verða gerðar á lánum þeirra sem
hafa tekið lán áður en breytingarnar taka gildi.
brjann@frettabladid.is
Skilið milli almennra
og félagslegra lána
Breyta á lögum um Íbúðalánasjóð á haustþingi til þess að sjóðurinn uppfylli skil-
yrði eftirlitsstofnunar EFTA um ríkisstyrki. Útfærsla liggur ekki fyrir. Sérfræðing-
ur segir óvissu á fasteignamarkaði muni aukast þar til breytingar verði lögfestar.
ÍBÚÐIR Jóhanna Sigurðardóttir segir ekki víst að breyting á
Íbúðalánasjóði muni leiða til hækkunar á vöxtum til almennra
lántaka. Hallur Magnússon, fyrrverandi sviðsstjóri hjá sjóðnum,
segir nær öruggt að útlánsvextir muni hækka.
Óskar, mætti nokkur ruslara-
lýður í veisluna?
„Nei alls ekki, bara gamlir og góðir
félagar.“
Óskar Ágústsson hefur starfað í fimmtíu
ár samfellt við sorphirðu í Reykjavík. Af
því tilefni var honum haldið heiðurshóf í
Grasagarðinum á fimmtudag.
LEIKLIST Leiksýningin Ívanov eftir
Anton Tsjekhov hlaut flestar til-
nefningar til Grímunnar, íslensku
leiklistarverðlaunanna 2008, eða
tíu talsins. Tilnefningarnar voru
tilkynntar í Þjóðleikhúsinu í gær.
Ívanov var meðal annars til-
nefnd sem sýning ársins, Baltas-
ar Kormákur var tilnefndur leik-
stjóri ársins, og leikarar úr
sýningunni hlutu tilnefningu sem
leikarar ársins í aðal- og auka-
hlutverki.
Leikritið Hamskiptin eftir
Franz Kafka hlaut næstflestar til-
nefningar, átta talsins, og Fool 4
Love eftir Sam Shepard hlaut sex
Grímutilnefningar.
Þrír dansarar úr sýningunni
Kvart í sviðsetningu Íslenska
dansflokksins fengu tilnefningu
sem dansari ársins og tveir söngv-
arar úr La Traviata í uppsetningu
Íslensku óperunnar voru tilnefnd-
ir sem söngvarar ársins.
Gael Garcia Bernal fékk til-
nefningu sem leikari ársins í
aukahlutverki fyrir leik sinn í
Kommúnunni, og þeir Nick Cave
og Warren Ellis sem sömdu tón-
listina í Hamskiptum hlutu til-
nefningu fyrir tónlist ársins. - kg
Tilnefningar til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna, voru kynntar í gær:
Ívanov fékk tíu tilnefningar
TILNEFNINGAR TIL GRÍMUNNAR 2008
SÝNING ÁRSINS
Brák
Dubbeldusch
Fool 4 Love
Hamskiptin
Ívanov
LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Baltasar Kormákur fyrir Ívanov.
David Farr og Gísli Örn Garðarsson fyrir Hamskiptin
Kristín Eysteinsdóttir fyrir Þann ljóta
Stefán Jónsson fyrir Óhapp
Þórhildur Þorleifsdóttir fyrir Engisprettur
„Það er óskynsamlegt að skella svona
breytingum fram í því efnahagsástandi
sem er í dag,“ segir Hallur Magnússon,
ráðgjafi og fyrrverandi sviðsstjóri hjá
Íbúðalánasjóði. Hann varar við óvissu
í kjölfarið.
„Það á að breyta starfsemi Íbúða-
lánasjóðs einhvern tíma í haust, á
einhvern hátt sem er að miklu leyti
óskilgreindur. Þetta er ekki það sem
fasteignamarkaðurinn þarf á að halda
í dag,“ segir Hallur. Nauðsynlegt geti
verið að breyta sjóðnum, en það
geti verið skaðlegt fyrir efnahagslífið
að breytingarnar séu tilkynntar með
þessum hætti.
Hann segir að nær hefði verið að
tilkynna um fyrirhugaðar breytingar
með því að leggja fram frumvarp á
haustþingi, í stað þess að tilkynna um
að breytingar verði gerðar síðar, með
tilheyrandi óvissu fram á haust.
Nær öruggt er að fyrirhugaðar
breytingar munu hækka útlánsvexti
íbúðalánasjóðs, segir Hallur.
Hann segir ennfremur hættu á því
að Íbúðalánasjóð-
ur fái óhagstæðari
kjör til félagslegra
lána, með þeim
afleiðingum að
niðurgreiða þurfi
þau lán í framtíð-
inni með skattfé.
Frá stofnun hefur
Íbúðalánasjóður
staðið undir sér sjálfur, og ekki fengið
styrki frá ríkinu nema vegna félags-
legra leiguíbúða sjóðsins.
ÓVISSA UM SJÓÐINN FRAM Á HAUST
HALLUR MAGNÚS-
SON
LÖGREGLUFRÉTTIR Guðmundur
Jónsson, sem kenndur er við
Byrgið, hefur ekki enn lagt inn
formlega kæru vegna líkamsárás-
ar sem hann varð fyrir síðastlið-
inn mánudag.
Samkvæmt sýslumanninum á
Selfossi var Guðmundi úthlutaður
tími til að leggja inn kæru á
fimmtudag. Hann kaus hins vegar
sjálfur að fresta kærunni fram á
mánudag.
Talið er að Guðmundur hafi
orðið fyrir lítilsháttar meiðslum
þegar ráðist var á hann við
heimili hans í Grímsnesi. Hann
var nýlega dæmdur í þriggja ára
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
fjórum konum. - kg
Guðmundur í Byrginu:
Hefur ekki enn
lagt inn kæru
GUÐMUNDUR JÓNSSON Frestaði að
leggja fram kæru vegna líkamsárásar til
mánudags.
EGYPTALAND, AP Osama bin Laden,
leiðtogi hryðjuverkasamtakanna
al Kaída, segir að samtökin muni
berjast heilögu stríði gegn Ísrael
og bandamönnum þess allt þar til
Palestína hefur verið frelsuð.
Þetta sagði hann í hljóðrituðu
ávarpi sem birt var í gær, sama
daginn og George W. Bush
Bandaríkjaforseti lauk heimsókn
sinni til Ísraels í tilefni þess að
sextíu ár eru liðin frá stofnun
Ísraelsríkis.
Bin Laden sagði jafnframt að
málstaður Palestínu væri
mikilvægasta ástæða „stríðs
okkar menningar gegn ykkar
menningu“. - gb
Bin Laden um Ísrael:
Segir al Kaída
berjast áfram
BORGARSTJÓRN Guðrún Ásmunds-
dóttir, fulltrúi minnihlutans í
menningar- og ferðamálaráði,
leggur til að Fríkirkjuvegur 11
verði gerður að Ævintýrahöll
barnanna í sumar.
Eins og kunnugt er hefur borg-
arstjórn samþykkt að selja Björ-
gólfi Thor Björgólfssyni Frí-
kirkjuveg 11 í Hallargarðinum.
Guðrún segir að langafi Björ-
gólfs, Thor Jensen, sem lét
byggja húsið á sínum tíma, hafi
verið mikill barnakarl.
„Þau hjónin áttu sex börn og
hlúðu að þessu liði sínu á
skemmtilegan hátt. Til dæmis er
í kjallara hússins leiksvið sem
börnin höfðu til umráða, því eins
og allir vita er það eitthvað sem
börn elska að fá að leika leikrit
og eru fullorðnir ætíð skipaðir
sem áhorfendur að þessum upp-
átækjum,“ segir í greinargerð
Guðrúnar með tillögunni.
„Börnunum yrði sýnt eldhúsið
en þar eru bakdyr sem vísa að
hestagerðinu.
Hér áður fyrr fengu fátæk
börn, sem ekki áttu þess kost að
fá morgunmat heima hjá sér áður
en þau fóru í skólann, að koma
inn um þessar bakdyr og inn í
eldhúsið hjá Thor Jensen hjónun-
um. Þar fengu þau staðgóðan
morgunverð áður en þau hlupu í
skólann.
Menningar- og ferðamálaráð
vísaði tillögunni um Ævintýra-
höllina til Höfuðborgarstofu.
„Mér þykir vænt um hversu
góðar móttökur þessi tillaga
fékk,“ segir Guðrún. - gar
Fulltrúi minnihlutans vill sumarævintýri fyrir börn í Hallargarðinum:
Ævintýrahöll við Fríkirkjuveg
GUÐRÚN ÁSMUNDSDÓTTIR Vill meðal
annars sýna nútímabörnum hvernig
athafnamaðurinn Thor Jensen gaf fátæk-
um börnum í Reykjavík morgunmat.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Grunsamlegur leitaði katta
Lögreglu var tilkynnt um mann sem
hegðaði sér grunsamlega á bíla-
stæði í Breiðholti í fyrrinótt. Þegar
lögreglumenn komu á staðinn skýrði
maðurinn fyrir þeim að hann væri að
leita katta sem sluppu frá honum, og
reyndi að lokka þá til sín með katta-
mat, án árangurs.
LÖGREGLUMÁL
Hafði í hótunum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
handtók í gær karlmann sem í tví-
gang réðist inn á skrifstofur Félags-
þjónustunnar í Hafnarfirði. Maðurinn
réðist þar inn á fimmtudag og hótaði
starfsfólki. Hann endurtók svo leikinn
í gær, en var handtekinn af lögreglu.
SPURNING DAGSINS