Fréttablaðið - 17.05.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.05.2008, Blaðsíða 4
4 17. maí 2008 LAUGARDAGUR KÍNA, AP Stjórnvöld í Kína áttu í gær í mestu vandræðum með að svara spurningum frá reiðum almenningi um það hvers vegna svo margar skólabyggingar hefðu hrunið eins og spilaborgir þegar jarðskjálftinn mikli reið yfir á mánudaginn. Loforð voru gefin um að rífa skólabyggingar, sem vitað er að standast ekki sterka jarðskjálfta, og byggja nýjar. Stjórnvöld hafa einnig verið gagnrýnd fyrir að vara fólk ekki við hugsanlegum skjálfta. Sagt er að stjórnvöldum hafi borist í tæka tíð spá frá jarðfræðingum, sem töldu miklar líkur á stórum skjálfta á þeim slóðum þar sem hann svo varð. Þessar upplýsingar eru sagðar hafa verið þaggaðar niður. Björgunarfólk hefur nú loksins komist til allra þeirra svæða sem urðu illa úti í jarðskjálftanum. Gríðarleg eyðilegging blasir við í Beichuan-sýslu, þar sem björgun- arfólk hefur átt erfitt með að kom- ast leiðar sinnar vegna skemmda á vegum. Nánast engar heilar byggingar eru í sýslunni og rústirnar gnæfa víða við himin. Um tíu manns var bjargað á lífi úr rústunum í gær, fjórum dögum eftir að skjálftinn varð. Nokkrir sterkir eftirskjálftar ollu enn frekara tjóni í gær og skriðuföll lokuðu á ný vegum, sem ruddir höfðu verið. - gb Eftirskjálftar valda frekara tjóni í Kína og torvelda björgunarstörf: Reiði almennings brýst út FÓLKI BJARGAÐ Í BEICHUAN Kínastjórn er sökuð um að hafa þaggað niður spá jarðfræðinga um jarðskjálftann mikla í Sechuan-héraði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NÁTTÚRUHAMFARIR Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að veita Kínverjum aðstoð að andvirði 7,8 milljóna íslenskra króna vegna náttúruhamfaranna í Sichuan- héraði, segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Féð rennur til hjálparstarfs kínverska Rauða krossins sem hefur sinnt neyðarhjálp í kjölfar jarðskjálftans, sem sagður er sá mannskæðasti í landinu í þrjá áratugi. Kínversk stjórnvöld telja líklegt að yfir 50.000 manns hafi farist í hamförunum í suðvestur- hluta landsins. Einnig er talið að tugir þúsunda annarra séu grafnir lifandi undir húsarústum. - kg Jarðskjálftinn í Kína: Íslendingar veita aðstoð AÐSTOÐ Kínverski Rauði krossinn fær 7,8 milljónir frá Íslendingum. STJÓRNSÝSLA Magnús Pétursson, fyrrverandi forstjóri Landspít- alans, hefur verið ráðinn til tíma- bundinna starfa í félags- og tryggingamála- ráðuneytinu. Verður hann ráðgefandi við stefnumótun og samskipti ráðuneytisins við stofnanir þess. Magnús, sem er ráðinn til félagsmálaráðuneytisins til áramóta, lét af starfi forstjóra Landspítalans 1. apríl síðastlið- inn. Hann var áður ráðuneytis- stjóri fjármálaráðuneytisins. - bþs Magnús Pétursson: Til ráðgjafar í félagsmálaráðu- neytinu ostur.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Grill og ostur – ljúffengur kostur! EFNAHAGSMÁL Með aðgerðum Seðlabanka Íslands í gær batna forsendur til að verðbólguskotið, sem nú stendur yfir, gangi yfir með eðlilegum hætti, að mati Ólafs Ísleifssonar, lektors við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. „Hins vegar er ekki annað að sjá en hagkerfið hafi kólnað mjög og verkefnið fram undan kannski ekki einungis að gæta að verðbólgu, heldur að því að hagkerfið kólni ekki um of,“ bætir hann við og bendir á að teikn séu um að margt sé þegar tekið að frjósa fast. Helsta vandamál krónunnar um þessar mundir er skertur vaxtamunur á gjaldmiðlaskipta- markaði, segir greiningardeild Kaupþings. Vandinn kemur meðal annars fram í að kaup á krónum í framvirkum samning- um bera enga vexti og gera hana að lakari fjárfestingarkosti. Greiningardeildin bendir á að kjör á gjaldmiðlaskiptamarkaði hafi ekki batnað í kjölfar kynn- ingar á gjaldeyrisskiptasam- komulagi Seðlabanka Íslands við seðlabanka Svíþjóðar, Danmerk- ur og Noregs í gær. „Enda hafa aðgerðirnar ekki bein áhrif á aðgengi bankanna að gjaldeyri,“ segir í skrifum greiningardeild- arinnar. Helsta forsenda þess að gjaldmiðlaskiptamarkaðurinn komist í betra horf er sögð vera að aðgangur bankanna að erlend- um gjaldeyri batni. „Samningarnir sem Seðlabank- inn kynnti í gær hafa að megin- markmiði að gefa Seðlabankan- um færi á að lána bönkunum laust fé í erlendri mynt ef aðra kosti þrýtur og að því leytinu til skapar þetta aukið traust á fjár- málakerfinu. En þetta er verk- efni á sviði fjármálastöðugleika, ekki allsherjarinnlegg við lausn efnahagsvanda,“ segir Ólafur Ísleifsson og bætir við að hér hafi ríkisvaldið horft upp á mikinn uppgang bankakerfisins og með glöðu geði tekið við tugum millj- arða skatttekna úr því í ríkissjóð án þess þó að hreyfa legg eða lið til að bæta starfsumhverfi atvinnugreinarinnar. „Aðgerð Seðlabankans nú er því mjög jákvæð og menn hljóta að mega vænta þess í ljósi yfirlýsinga bankans og forsætisráðherra að sambærilegir samningar við Seðlabanka Evrópu og Englands- banka líti dagsins ljós,“ segir hann, og í sama streng tekur greiningardeild Kaupþings. olikr@markadurinn.is / sjá síðu 12 Frost í hagkerfinu má ekki verða of mikið Bankarnir þurfa erlendan gjaldeyri að láni frá Seðlabankanum til að stuðla að frekari styrkingu krónunnar. Verðbólguskotið gæti nú gengið yfir með eðlileg- um hætti. Horft er til fleiri samninga Seðlabankans um gjaldeyrisskipti. DAVÍÐ ODDSSON Við kynningu á nýju samkomulagi Seðlabanka Íslands við seðlabanka Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar um gjaldmiðlaskipti í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KJARAMÁL Forystusveit Starfs- greinasambandsins, SGS, átti fund með forsætis-, utanríkis-, félagsmála- og fjármálaráðherra í gærmorgun og var farið yfir stöðu kjaraviðræðna við samn- inganefnd ríkisins. Skúli Thor- oddsen, framkvæmdastjóri SGS, sagði að fundurinn hefði verið jákvæður. Samninganefnd SGS og ríkis- ins hittast í dag. Skúli segir að ekki hafi verið mikil alvara í við- ræðunum fram að þessu en vonir standi til að nú komi meiri kraft- ur í þær. - ghs Starfsgreinasambandið: Vilja meiri kraft í viðræður STARFSGREINASAMBANDIÐ TIL FUNDAR FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 17° 15° 6° 10° 16° 15° 19° 20° 18° 22° 22° 22° 18° 17° 23° 22° 31° 18° 6 Á MORGUN Hæg, SA-læg átt. MÁNUDAGUR 5-13 m/s, hvassast með suðurströndinni 6 8 5 8 8 6 8 8 9 9 5 2 1 2 4 8 3 8 5 7 5 6 10 10 109 6 8 8 78 VÆTUSAMT NORÐVESTAN TIL Það er nokkuð ákveðið úrkomu- svæði á leiðinni yfi r á norðvestanvert landið. Þetta þýðir að fyrir hádegi má gera ráð fyrir vætu á öllum vestur- helmingi landsins, en eftir hádegi styttir að mestu upp syðra en þá verður farið að blotna austan til á Norðurlandi, allt austur að Eyjafi rði. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur Samningarnir sem Seðlabankinn kynnti í gær hafa að meginmarkmiði að gefa Seðlabankanum færi á að lána bönkunum laust fé í erlendri mynt ef aðra kosti þrýtur og að því leytinu til skapar þetta aukið traust á fjármálakerfinu. ÓLAFUR ÍSLEIFSSON LEKTOR VIÐ VIÐSKIPTADEILD HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK MENNTUN Nýjar úthlutunarreglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir næsta skólaár taka gildi 1. júní næstkomandi. Fela nýju reglurnar í sér meiri breytingar milli ára en viðskipta- vinir sjóðsins hafa átt að venjast undanfarin ár. Meðal breytinga er að í stað kröfu um tiltekna námsframvindu á hverju misseri eða hverri önn er nú litið á skólaárið heildstætt. Þá hækkar grunnframfærsla um 7 prósent, eða úr 94.000 í 100.600 krónur, og námsmenn erlendis öðlast nú sama rétt og námsmenn á Íslandi til lána vegna skólagjalda. - ovd Grunnframfærslan hækkar: Nýjar úthlutun- arreglur LÍN Átta sóttu um embætti Átta umsóknir bárust um embætti sýslumannsins í Keflavík. Dómsmála- ráðherra mun skipa í embættið frá 1. júní til fimm ára í senn. Umsækj- endur eru: Árni Haukur Björnsson, Ásgeir Eiríksson, Brynjar Kvaran, Halla Bergþóra Björnsdóttir, Halldór Frí- mannsson, Úlfar Lúðvíksson, Þórólfur Halldórsson, og Þuríður Árnadóttir. STJÓRNSÝSLA GENGIÐ 16.05.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 147,7172 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 73,88 74,24 143,94 144,64 114,22 114,86 15,307 15,397 14,518 14,604 12,224 12,296 0,7047 0,7089 119,44 120,16 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.