Fréttablaðið - 17.05.2008, Page 26

Fréttablaðið - 17.05.2008, Page 26
26 17. maí 2008 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is TÓNLISTARKONAN ENYA ER 47 ÁRA. „Ég get aðeins verið sú sem ég er.“ Írska söngkonan Enya söng bakraddir með hljómsveit- inni Clannad í upphafi níunda áratugarins, en sló í gegn á heimsvísu í kjölfar tónlistar sem hún samdi og söng í sjón- varpsþáttum BBC um Kelta árið 1987. MERKISATBURÐIR 1724 Mývatnseldar hefjast og standa með hléum í fimm ár. 1756 Bretland lýsa yfir stríði við Frakkland, sem stendur yfir í sjö ár. 1846 Antoine Joseph Sax fær einkaleyfi á saxófóni. 1916 Breskur sumartími er kynntur til sögunnar í fyrsta sinn. 1920 Hollenska flugfélagið KLM er stofnað. 1940 Breskir hermenn koma til Akureyrar með varðskip- inu Ægi, viku eftir upphaf hernámsins. 1949 Bresk stjórnvöld viður- kenna Lýðveldið Írland. 1997 Sylvester Stallone kvænist Jennifer Flavin í Lundún- um. Það var þennan dag fyrir 38 árum að hinn merki, norski landkönnuður Thor Heyer- dahl náði að sigla papírus- bát yfir Atlantshafið. Heyerdahl hafði látíð smíða tvo báta úr papírus- sefi á árunum 1969 og 1970 og freistaði þess að komast á þeim yfir Atlantshafið frá ströndum Marokkó í Afríku, en bátarnir voru byggðir á teikningum og líkönum Forn-Egypta. Fyrsta bátinn, sem Heyerdahl nefndi Ra, smíð- uðu bátasmiðir í lýðveldinu Chad úr reyr sem þeir fengu úr Tana-vatni í Eþíópíu og settu á flot við strendur Marokkó. Eftir fáeinar vikur í leið- angri sínum yfir hafið tók Ra á sig sjó eftir að áhöfnin gerði á bátnum smábreytingar og tók fljótlega að svigna og brotna. Báturinn var yfirgefinn, en ári síðar komst á flot Ra II, sem byggður var úr papírusreyr úr Titicaca-vatni í Bólivíu, og í þetta sinn með afbragðs ár- angri. Ra II náði ströndum Barbados og sýndi fram á að sjófarendur hefðu getað kom- ist yfir Atlantshafið með því að sigla meðfram Kanaríeyja- straumnum. Megintilgangur ferðanna var að sannreyna sjó- færni fornra skipa sem smíðuð voru úr flothæf- um reyr og þeim verið siglt milli fjarlægra þjóða og menningarheima á forsögulegum tímum. Lesa má um leiðangra Thors Heyerdahls í bók- inni The Ra Expeditions, eða sjá víðfræga heim- ildarmynd um ferðalög Ra-skipastólsins. ÞETTA GERÐIST: 17. MAÍ 1970 Á papírusbáti yfir Atlantshafið Þjóðhátíðardagur Norðmanna er í dag. Af því tilefni stendur norska sendiráð- ið og Félag Norðmanna á Íslandi fyrir hátíðahöldum frá morgni til kvölds, en alls búa á Íslandi um 300 norskir ríkis- borgarar sem öllum er árnað heilla á þessum degi. „Félag Norðmanna á Íslandi var stofnað 1933 og ári síðar er hald- ið fyrsta 17. maí-ballið í Reykjavík,“ segir Per R. Landrø, menningarfull- trúi norska sendiráðsins á Íslandi. „Hátíðahöldin tóku á sig form- legri blæ á stríðsárunum, en síðan 1943 hefur dagskráin hafist í Foss- vogskirkjugarði og frá árinu 1947 við minnisvarða þeirra 36 norsku her- manna sem fórust hér á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Þar leggjum við blómsveig í minningu látinna, syngj- um þjóðsönginn og þjóðarsálminn og hlustum á hátíðarræðu Margit F. Tveiten sendiherra. Að því loknu göng- um við að öðrum minnisvarða í Naut- hóls vík, þar sem norsk flugsveit hafði aðsetur á stríðsárunum,“ segir Per sem búið hefur á Íslandi í árafjöld. „Fjöldi Norðmanna hérlendis hefur haldist svipaður í mörg ár og er lít- ill í samanburði við þá mörgu Íslend- inga sem búsettir eru í Noregi, en þeir eru vel á fimmta þúsund. Flestir flytj- ast hingað út af ástinni og vissulega auðvelt fyrir Norðmenn að flytjast búferlum til Íslands. Við erum jú ná- skyldar þjóðir og norskt blóð í æðum Íslendinga og í Landnámabók segir að hér hafi norskir kóngar og hefðarfólk hafið landnám,“ segir Per brosmildur. „Í Noregi er 17. maí ávallt tileink- aður börnunum. Hátíðahöld eru mun stórtækari en á þjóðhátíðardegi Ís- lendinga og mikið lagt upp úr barna- skrúðgöngum sem ganga tímunum saman fram hjá konungshöllinni þar sem kóngafólkið stendur og veifar frá svölum sínum allan tímann. Við gerum vitaskuld líka vel við norsku börn- in okkar með leikjum, söng, pylsum og ís, að norskum sið, í Norræna hús- inu klukkan hálfellefu og göngum svo fylktu liði með lúðrablæstri yfir í Dómkirkjuna þar sem séra Hjálmar Jónsson prédikar í þjóðhátíðarmessu klukkan tvö. Þar flytur hátíðarræðu frú Bjørg Juhlin, sem er móðir Sivjar Friðleifsdóttur, sem flutti ræðuna í fyrra, en Bjørg er 100 prósent norsk en Siv er 50 prósent norsk,“ segir Per kátur og rifjar upp tilurð þjóðhátíð- ardagsins. „Stjórnarskrá Noregs var undirrituð 17. maí 1814 og þá losnuð- um við undan Dönum. Áfram vorum við undir konungsveldi Svíþjóðar til ársins 1905 að Noregur var gefinn til baka af Svíum,“ segir Per, sem eftir messuhlé fer til hátíðarmóttöku norska sendiráðssins í Norræna húsinu klukk- an fimm og þaðan á samkomu Hjálp- ræðishersins í Herkastalanum klukk- an sjö, en tengls Noregs og hersins eru rótgróin og sterk. „Deginum fylgir alltaf mikil og sérstök stemning, og þeir sem eiga norska þjóðbúninga í fórum sínum skarta þeim í tilefni dagsins. Heimþrá og söknuður eftir fósturjörðinni lætur vissulega á sér kræla; ekki síst eftir að auðveldara var að ná útsendingum norska ríkissjónvarpsins og sjá frá 17. maí-skrúðgöngum héðan og þaðan í Noregi. Það hríslast óneitanlega um mann geðshræring að fylgjast með prúðbúnum börnum ganga framhjá konungshöllinni og sumir fá eflaust ljúfsár tár á hvarminn.“ thordis@frettabladid.is NORÐMENN Á ÍSLANDI: HALDA ÞJÓÐHÁTÍÐARDAG NOREGS HÁTÍÐLEGAN Í DAG Heimþrá, söngur, ís og pylsur ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGUR Per R. Landrø er menningarfulltrúi Norska sendiráðsins á Íslandi, en sendiráðið ásamt Félagi Norðmanna stendur fyrir fjölbreyttum hátíðahöldum frá morgni til kvölds í tilefni dagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Elskulegur faðir og tengdafaðir, Jock Kim Tan (Jimmý) er látinn. Minningarathöfn verður auglýst síðar. Júlía Tan Kimsdóttir Alex Tan Kimsson Kristján Arnar. Steinsmiðja • Viðarhöfða 1 • 110 Reykjavík • 566 7878 • Netfang: rein@rein.is • Vönduð vinna REIN Legsteinar í miklu úrvali Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Ingvarsson bóndi, Skipum, Stokkseyrarhreppi, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi 8. maí. Útför hans fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 17. maí kl. 14.00. Ingigerður Eiríksdóttir Gísli Vilhjálmur Jónsson Herdís Hermannsdóttir Móeiður Jónsdóttir Ólafur Benediktsson Ragnheiður Jónsdóttir Vilhjálmur Vilmundarson barnabörn og barnabarnabörn. AFMÆLI GUNNLAUG- UR STEFÁNS- SON prestur er 56 ára. ÞORGILS ÓTTAR MATHIESEN viðskipta- fræðingur er 46 ára. „Kæri borgarstjóri“ er yfirskrift sýningar sem opnar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag kl. 15.00. Tilefnið er að öld er liðin frá því fyrsti borgarstjórinn var kjörinn í embætti í Reykjavík. Embætti borgarstjóra var auglýst laust til umsóknar í Ingólfi hinn 23. febrúar 1908 og sóttu þeir Knud Zimsen bæjarfulltrúi og Páll Einarsson, sýslu- maður í Hafnarfirði, um stöðuna. Páll var kjörinn borgar- stjóri til sex ára og hann réðst meðal annars í ýmsar mik- ilsverðar framkvæmdir á borð við vatnsveitu, hafnargerð, holræsi og gasstöðvar sem áttu sinn þátt í því að breyta Reykjavík úr smábæ í borg. Síðastliðin 100 ár hafa hafa nítján manns setið á borg- arstjórastóli. Ellefu þeirra eru á lífi í dag og leggja sitt af mörkum til sýningarinnar og koma meðal annars fram í stuttri heimildarmynd. Þar segja þeir í stuttu máli frá samskiptum sínum við borgarbúa í embættistíð sinni auk þess sem myndir af þeim við sína uppáhaldsstaði í borginni verða til sýnis. Áhersla er lögð á að varpa ljósi á þróun sam- bands borgarbúa við borgarstjóra í gegnum tíðina. Meðal annars með bréfum sem borgarbúar hafa sent borgarstjór- um og eru nú geymd á Borgarbókasafni Reykjavíkur. Auk þess prýða sýninguna ýmsir munir, viðtöl og ljósmyndir úr sögu Reykjavíkur. Sýningin er opin almenningi og stendur til 25. maí næstkomandi. Borgarstjórar í öld Ó BORG MÍN BORG Öld er síðan fyrsti borgarstjóri var kjörinn í emb- ætti í Reykjavík. Af því tilefni opnar í dag sýningin „Kæri borgarstjóri“ í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.