Fréttablaðið - 17.05.2008, Page 42

Fréttablaðið - 17.05.2008, Page 42
● heimili&hönnun „Ég hef alltaf verið mikið fyrir að hafa fínt í kringum mig. Það var einmitt þess vegna sem ég keypti verslunina síðastliðið haust og fór út í rekstur,“ segir Margrét sem er viðskiptafræð- ingur og eigandi verslunarinnar Sia á Laugavegi 86. Margrét býr ásamt manni sínum og tveimur börnum í fallegri íbúð í litlu fjölbýlishúsi í Kópavogi. Þar hafa þau verið í fimm ár og líkar vel. „Íbúðin er opin og björt og út- sýnið er fallegt. Ég myndi lýsa heimilinu sem hlýlegu og nota- legu og eiginlega má segja að Sia-stíllinn sé allsráðandi. Ég er mikið fyrir kerti og blóm og þar sem ég er heimakær skiptir það mig miklu máli að heimilið sé hlýlegt,“ segir Margrét og bætir við að rómantískur stíll Sia henti sér vel. „Ég held að þessi hlýlega stemning sé að koma inn aftur. Undanfarið hefur tískan verið frekar einföld og mínimalísk en nú virðist það vera að breytast,“ segir Margrét. Á heimilinu leynast bæði gamlir og nýir hlutir. „Þetta er eitthvað sem við höfum verið að safna að okkur í gegnum okkar búskap og mér finnst gaman að hafa eldri hluti innan um. Mál- verkið í stofunni er til dæmis úr búi foreldra minna. Það er eftir listakonuna Tonný og ég fékk það þegar ég flutti að heiman. Mér finnst gott að hafa eitthvað uppi við sem minnir á æsku- heimilið,“ segir Margrét. - þo Hlýlegt fyrir heimakæra fjölskyldu ● Margrét Einarsdóttir, eigandi verslunarinnar Sia, á fallegt heimili. Hún er mikið fyrir notalegheit og vill hafa hlýlegt í kringum sig. Húsgögnin í stofunni eru úr Tekk-Company en litlu hlutirnir koma flestir úr verslun- inni Sia. Stóra málverkið er úr búi foreldra Margrétar. Margrét er mikið fyrir að hafa blóm og kerti í kringum sig og skiptir þeim gjarnan út eftir árstíðum. Smáhlutir úr Sia leynast víða, til dæmis þessi fallegi kertabakki. Fagurskreytt barnaborð og stólar sem fást í versluninni Sia. Margrét hefur alltaf verið mikið fyrir fallega hluti og því má segja að gamall draumur hafi ræst þegar hún tók við rekstri Sia. Herbergi tveggja ára heimasætunnar er innréttað með húsgögnum og munum úr barnalínu Sia. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR 17. MAÍ 2008 LAUGARDAGUR6

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.