Fréttablaðið - 17.05.2008, Qupperneq 76
48 17. maí 2008 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
„Það er tilhlökkunarefni að kynna
þessar bækur á íslenskum bóka-
markaði,“ segir hinn glaðbeitti
útgefandi Jóhann Páll Valdimars-
son hjá Forlaginu.
Hann þykist nú hafa fundið
nýjan Potter og ætlar að gefa út
fyrstu bók í bókaflokki sem slegið
hefur rækilega í gegn í Bandaríkj-
unum nú í haust. Magnea Matt -
híasdóttir þýðir.
Jóhann Páll, sem hefur um árin
verið klókur í að líkja bókum
minni spámanna sinna við bækur
metsöluhöfunda, er sannarlega
ekki að tala út í loftið. Hann veifar
The Times orðum sínum til stuðn-
ings. Þar segir af höfundinum
Stephenie Meyer sem í fyrirsögn
er sögð hin nýja J. K. Rowling,
sem samdi Harry Potter bækurn-
ar. „Harry who? Meet the new J.K.
Rowling“. Meyer er þriggja barna
móðir, mormóni og yfirlýst bind-
indiskona sem hefur selt sjö millj-
ónir skáldsagna sem fjalla um
vampírur í skólum. Sögur hennar
hafa slegið Harry Potter af toppi
sölulista í Bandaríkjunum.
„Bækurnar eru nýjung sem hafa
hitt rækilega í mark erlendis og
eru í raun ansi vel heppnaðar. Ég
er handviss um að íslenskir les-
endur munu taka þeim fagnandi,“
segir Jóhann Páll. Hann segir
bækurnar til marks um breyttar
áherslur í efnistökum í bókum
fyrir ungt fólk og þær hafi fallið
rækilega í kramið. „Þær eru síður
en svo eitthvað drasl heldur virki-
lega vel skrifaðar og hugsaðar
bækur.“ - jbg
JPV læsir klóm
í nýjan Potter
JÓHANN PÁLL Hefur náð í réttinn á
bókum Stephenie Meyer sem slegið
hefur J.K. Rowling út af sölulistum.
Fyrirtækið Axe, sem framleiðir
rakspíra, svitalyktareyði og
annað slíkt fyrir karlmenn, hefur
sent leikaranum Matthew
McConaughey ársbirgðir af nýju
líkamsspreyi, en hann greindi
nýlega frá því að hann notaði
aldrei svitalyktareyði. Í bréfi sem
fylgdi gjöfinni er ástæðan sögð
vera sú að fyrirtækið beri hag
hans fyrir brjósti og vilji að hann
haldi í kærustu sína, fyrirsætuna
Camilu Alves. Vísað er í rannsókn
á vegum Axe sem leiddi í ljós að
89% kvenna myndu hætta við
karlmann ef hann lyktaði illa.
„Við lásum að þú notaðir aldrei
svitalyktareyði, og við viljum að
þú haldir í Camilu, svo við
sendum þér hér með ársbirgðir af
nýja Axe bullet,“ segir í bréfinu.
McConaughey og Alves hafa
verið saman í rúmt ár og eiga von
á fyrsta barni sínu saman.
Illa lyktandi
Matthew
> DÝR RAKSTUR
Leikkonan Megan Fox, sem
nýlega var kosin kynþokka-
fyllsta kona í heimi af lesend-
um FHM, var ekki alltaf fræg
og rík. Hún kveðst hafa verið
svo fátæk þegar hún flutti fyrst
til Los Angeles að hún neyddist
til að ganga um með loðna fót-
leggi. „Ég átti ekki einu sinni
fyrir einnota rakvél, svo ég
varð bara að vera í síðbux-
um,“ segir leikkonan.
Guðmundur Pálsson Baggalútur er allur að koma til eftir að hann
skarst illa á hægri hendi nýlega þegar vindhviða feykti útidyra-
hurðinni á hendina. „Ég verð nokkrar vikur í gifsi, svo í sjúkraþjálf-
un, en ég stefni að því að verða góður, ef ekki betri áður en yfir
lýkur,“ segir Guðmundur. Þetta er ekki fyrsta slysið sem hrellir
Baggalút því í fyrra stórskaðaði Bragi Valdimarsson á sér fótlegg-
inn þegar hann reyndi að klifra yfir rimlagrindverk í Pétursborg.
„Allir í hljómsveitinni eru búnir að skrifa dónalegar kveðjur á
gifsið með varanlegum geisladiskapenna,“ segir Guðmundur. „En
þetta eru samt vel uppaldir strákar sem hjálpa mér í hvívetna,
smyrja brauð og blanda djús.“
Eins og glöggir útvarpshlustendur
hafa tekið eftir er Fréttaauki Bagga-
lúts ekki lengur á dagskrá Rásar 2.
„Þetta var bara orðið ágætt, rúm-
lega áttatíu þættir af nákvæmlega
sama brandaranum,“ segir Guð-
mundur. „Það er hins vegar gaman
að skýra frá því að við höfum verið
hækkaðir í tign hjá útvarpinu og
byrjum með glænýjan fræðsluþátt á
Rás 1 í júní.“
Þátturinn verður á dagskrá á laug-
ardögum kl. 18.30 og í honum verða
fluttir upplýsandi pistlar. „Þetta verð-
ur mjög fræðandi þáttur fyrir alla
fjölskylduna.“ Annað yfirvofandi er
hið árlega sumarfrí vefsíðunnar baggal-
úts.is, en ritstjórn hennar ætlar saman
í frí á Íslendingaslóðir í Kanada og
Bandaríkjunum. „Það verður sjálf-
sagt dásamlegt, eins og allt sem
við gerum.“ - glh
Baggalútur á
góðum batavegi
NÝ PLATA, NÝR ÚTVARPSÞÁTTUR,
SUMARFRÍ, FERÐALAG Guðmund-
ur Pálsson lætur ekki handar-
meiðsl stoppa sig.
Á hverju ári flykkist slatti af Íslendingum á kvik-
myndahátíðina á Cannes enda er þetta mekka
bransans. Kvikmyndamiðstöð Íslands heldur úti
skrifstofu á meðan á hátíðinni stendur ásamt kvik-
myndamiðstöðvum hinna Norðurlandanna. Þar er
alltaf hægt að hitta norræna frændur sína í „happy
hour“ á Scandinavian Terrace. Dagurinn í dag byrjaði
reyndar þar með sameiginlegum blaðamannafundi
þar sem allt það helsta í norrænni kvikmyndagerð
var kynnt.
Fimm íslenskar myndir eru sýndar á markaðnum.
Það eru Astrópía, Veðramót, Duggholufólkið og tvær
myndir sem ekki hafa enn verið sýndar á Íslandi,
Skrapp út eftir Sólveigu Anspach og Amazing Truth about Queen Raquela
sem vann Teddy verðlaunin í Berlín.
Mesti spenningurinn í herbúðum Íslendinga er þó fyrir stuttmyndinni
hans Rúnars Rúnarssonar, Smáfuglar, en hún keppir um Gullpálmann
í flokki stuttmynda. Stórkostlegt afrek það. Þetta er önnur stuttmynd
Rúnars en fyrsta myndin hans Síðasti bærinn í
dalnum var tilnefnd til Óskarsverðlauna. Myndin er
gullfalleg og þykir mjög líkleg til að vinna. Hvort það
sé bara Eurovision-stemningin hjá Íslendingunum
kemur í ljós.
Íslendingarnir runnu annars á lyktina og enduðu í
partíi Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík,
sem bauð upp á brennivín og hákarl, við misjafna
hrifningu gesta, niður við strönd. Þó að partíið væri
á ströndinni lét íslenska veðráttan sig ekki vanta og
stundvíslega þegar partíið átti að byrja gerði hellid-
embu. En Gulllundinn var á sínum stað og Hörður
DJ hélt uppi stemningunni. Það vakti líka lukku að
Íslandsvinurinn Harrison Ford skyldi eiga leið hjá. Kannski rann hann bara
á hákarlslyktina en stoppaði þó ekki til að fá sér heldur hélt sínu striki.
Annars heldur keppnin áfram af fullum krafti, tvær myndir voru frum-
sýndar í dag. Tyrkneska myndin Uc Maymum sem þykir mjög sterk og
franska myndin Un Conte de Noël. Veislan er rétt að byrja.
CANNES 2008 HANNA BJÖRK VALSDÓTTIR FYLGIST MEÐ BESTU KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í HEIMI
Íslendingadagur í Cannes
Miele ryksugurMeðal fáanlegra fylgihluta:
TILBOÐ kr.: 18.900
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið