Fréttablaðið - 17.05.2008, Side 79
LAUGARDAGUR 17. maí 2008 51
Sumardagskrá Rásar 2 er nú óðum
að komast í gang og á fimmtu-
dagskvöldum eftir tíufréttir hefur
umhverfisvæni útvarpsþátturinn
Rúnturinn verið ræstur á ný.
Kristinn Pálsson sér um þáttinn og
segir helsta markmið þáttarins að
koma hlustendum í rétta helgar-
gírinn, en þó ekki með yfirborðs-
kenndum útvarpshressleika.
„Lagavalið miðast við fjölbreytta
flóru af athyglisverðri og sígildri
rokk- og dægurtónlist allra tíma
og sérstaklega er leitast við að
hafa uppi á kunnuglegum
númerum sem ekki hafa heyrst í
langan tíma,“ segir Kristinn.
Aftur á
rúntinn
Bandaríska rokksveitin Pearl Jam
er byrjuð að semja lög á nýja plötu.
Tvö ár eru liðin síðan síðasta plata
sveitarinnar, sem hét einfaldlega
Pearl Jam, kom út.
Gítarleikarinn Mike McCready
segir að platan sé á byrjunarreit og
sveitin hafi aðeins hist einu sinni
til að bera saman bækur sínar.
„Sumar lagahugmyndirnar eru
poppaðar en aðrar eru harðari,“
segir hann. Pearl Jam er á leiðinni í
tónleikaferð um Norður-Ameríku
sem hefst 11. júní á Flórída.
Þremur dögum síðar spilar sveitin
á Bonnaroo-hátíðinni í Tennessee.
Undirbúa
nýja plötu
PEARL JAM Rokkararnir gera nýja plötu.
Tónlistarsjóðurinn Kraumur hefur
sett á fót verkefnið Innrásin sem
mun styðja hljómsveitir og tón-
listarmenn við tónleikahald á
landsbyggðinni. Stundum virðist
auðveldara fyrir flytjendur að
spila erlendis frekar en hérlendis
og ætlar Innrásin að ráða bót á
því.
„Það liggur ákveðin rannsóknar-
vinna að baki þessu. Við gerðum
könnun hjá þeim listamönnum
sem hafa farið út á land og hafa
lagt heilmikið undir með því að
halda tónleika þar. Það hefur oft
verið fjárhagslegur baggi að ráð-
ast í þetta,“ segir Eldar Ástþórs-
son, framkvæmdastjóri Kraums.
„Við teljum þetta mikilvægt, ekki
bara fyrir þekkta listamenn,
heldur líka fyrir þá sem vilja koma
sér á framfæri. Að spila úti á landi
er mikilvægur þáttur í því að
koma sér upp aðdáendahóp og það
eru dæmi um að þeir sem hafa
bitið á jaxlinn og farið þennan
rúnt hafi náð að selja plötur í aukn-
um mæli.“
Eldar segist hafa fengið mjög
góð viðbrögð hjá tónlistarmönn-
um við verkefninu, sem telja þetta
þarft framtak. „Þessi heimamark-
aður vill kannski gleymast. Menn
telja að þessi reynsla að spila á
tónleikum víðar en á höfuðborgar-
svæðinu sé til dæmis mjög gott
veganesti fyrir frekari landvinn-
inga úti í heimi.“
Kraumur auglýsir eftir umsókn-
um í Innrásina og geta áhugasam-
ir sent póst á netfangið kraumur@
aurorafund.is. Tilgreina þarf nafn
flytjanda, símanúmer og fyrirhug-
aða tónleikastaði.
- fb
Kraumur efnir til Innrásar
ELDAR ÁSTÞÓRSSON Framkvæmdastjóri
Kraums hefur umsjón með verkefninu
Innrásin. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Breski leikarinn Daniel Day-Lewis
er í viðræðum um að taka að sér
aðalhlutverkið í söngvamyndinni
Nine. Hún er byggð á hinni frægu
mynd Ítalans Federicos Fellini, 8
1/2, sem kom út árið 1963. Fjallar
hún um þekktan leikstjóra sem
glímir við vandamál bæði í starfi
sínu og ástarlífi.
Javier Bardem átti upphaflega
að leika í Nine en hætti við og nú
virðist sem Day-Lewis muni
hlaupa í skarðið fyrir hann. Mót-
leikkonur Day-Lewis í myndinni
verða Penélope Cruz, Marion Cot-
illard, Sophia Loren, Nicole Kid-
man og Judi Dench. Leikstjóri
verður Rob Marshall, sem leik-
stýrði söngvamyndinni Chicago
með góðum árangri árið 2002.
Day-Lewis syngur
DANIEL DAY-LEWIS Breski leikarinn
Daniel Day-Lewis mun hugsanlega leika
í söngvamyndinni Nine.
Laugardaginn 17. maí í Laugarásbíói kl. 13:00. Öllum heimill aðgangur á meðan húsrúm leyfir.
Þorsteinn Einarsson
Steini’s Inferno
The Myth - The Legend -
The Music
Ragnar Pétur Pétursson
Þjófur þjófur
Hvað ungur nemur...
Steinþór Einarsson
Stóra frumsýningin
Ný upplifun
Stefán Friðrik Friðriksson
Yfirborð
Trúir þú á tilviljanir?
Óttar Vignisson
Hinsti túrinn
Fast land undir fótum.
Fullar hendur fjár.
Fjandinn er laus.
Úlfur Karlsson
Einskonar Alaska
Mögnuðustu myndirnar
sem þú hefur séð, sástu
með lokuð augun
Ólafur Már Jónsson
Allt fyrir ástina
Ert þú tilbúinn að leggja
allt í sölurnar?
Guðrún Lína Thoroddsen
Álfablót
Úr álfheimum á enginn
afturkvæmt
Sölvi Mar Guðjónsson
Tómur strigi
Málarinn
Pétur Kjærnested
ID
Óttastu sjálfið