Fréttablaðið - 07.06.2008, Page 1

Fréttablaðið - 07.06.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 LAUGARDAGUR ● heimili&hönnun „Okkur líður afar vel hér,“ segir Dögg þegar hún er heimsótt í gula húsið sitt við Framnesveginn. Þar á hún við sig, sambýlismann-inn Ólaf Finnbogason og dóttur-ina Agnesi Hjaltalín Andradóttur. Eflaust tæki kisan Regína undir þessi orð ef hún talaði manna-mál. „Þetta er um það bil hundrað ára gamalt hús og var íþróttahús uppi í Rauðhólum,“ segir Dögg og bætir við hlæjandi: „Þeir sem þekkja íþróttahúsin við MR og Kvennó skilja það – aðrir ekki.“ Síðan heldur hún áfram með sögu hússins. „Edda Heiðrún Backman og systir hennar keyptu hér landfyrir 25 árum tvö gömul hús sem pabbi þeirra sá um endurbætur á. Við keypt-um húsið í lok síðasta árs af Ág-ústi Ólafi Ágústssyni og Þor-björgu Gunnlaugsdóttur og flutt-um inn í mars eftir að hafa málað veggi, pússað öll gólf og sprautað eldhúsinnréttinguna.“ Húsið er umvafið gróðri og Dögg segir hverfið afar rólegt og gott. „Sumum finnst þeir vera að stíga inn í sumarbústað þegar þeir koma hingað,“ segir hún. „Þrátt fyrir að húsin standi þétt þá skil-ur gróðurinn á milli þeirra.“ Þó að heimilið beri vottnost Dögg er nýbúin að opna bókabúð á Laugavegi 51. Auk DVD diska, dagblaða og tímarita sem tengj-ast viðskiptalífinu selur hún þar bækur um fyrirtæki, leið-toga og markaðs-mál. „Bækur sem ég mundi vilja lesa sjálf,“ segir hún. Búðin heit-ir Skuld. „Nafnið er vísun í örlaga-nornirnar þrjár í Völuspá,“ útský i Í hlýlegu hundrað ára íþróttahúsi● Vestan til í Vesturbænum býr Dögg Hjaltalín í vinalegu húsi ásamt sambýlismanni og dóttur. Viðargólf og gömul húsgögn hæfa húsnæðinu vel. Mæðgurnar Dögg og Agnes kunna vel við sig í Vesturbænum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Agnes á sitt prívat uppi í risi. Pallurinn býður upp á útivist í góðu skjóli. 7. JÚNÍ 2008 LAUGARDAGUR 6 H Ú S& H EI M IL I 7. júní 2008 — 153. tölublað — 8. árgangur Breytti reglum tískunnar FRANSKI HÁTÍSKU- HÖNNUÐURINN YVES SAINT LAURENT LÁTINN 46 Í MINNINGU DJASSISTA Árni Scheving hefði orðið sjötugur á morgun. Fréttablaðið rifjar upp feril þessa merka tónlistarmanns. VANDINN AÐ VELJA SÉR LIÐ EM í knattspyrnu hefst í dag og margir Íslendingar munu neyðast til að velja sér nýtt lið til að styðja. Fréttablaðið skoðar málin á hreinskilinn og hlutlausan hátt. HELGIN 36-38 FLÓTTAFÓLK „Við hjónin vorum flæmd frá Júgóslavíu fyrir það eitt að ég er Króati en hann Serbi. Á þessum árum gat blandað hjóna- band verið dauðasök,“ segir Drag- ana Zastavnikovic. Fjölskylda hennar var í hópi flóttafólks sem kom til Ísafjarðar 1996. „Koman til Íslands veitti mér annað tækifæri og hér hef ég öðl- ast nýtt líf. Við eigum að veita fleirum það tækifæri sem Íslend- ingar voru svo góðir að veita mér,“ segir hún. Hún segir umræðu um flótta- fólk vera á villigötum. „Þetta er mannúðaraðgerð og snýst um að hjálpa fólki. Fólk sem talar um mikinn kostnað veit ekki hvað það er að tala um. Vissulega getur ein- hver heilbrigðiskostnaður fylgt fólki sem hefur verið lengi á flótta. Flóttafólk er hins vegar ekki að biðja um einhvern lúxus, aðeins færi á að lifa öruggu lífi með fjöl- skyldu sinni.“ - kóp/ sjá síðu 16 Dragana Zastavnikovic flúði átök í fyrrum Júgóslavíu: Öðlaðist nýtt líf á Íslandi HVESSIR MEÐ RIGNINGU Í dag verða austan 8-18 m/s sunnan til, hvassast allra syðst en 5-10 annars staðar. Fer að rigna sunnan til um hádegi. Rigning víða um land í kvöld, síst norðaustan til. VEÐUR 4 13 15 15 1212 19 VEÐRIÐ Í DAG RÚSSLAND, AP Mikhaíl Gorbatsjov, sem var síðasti leiðtogi Sovétríkj- anna áður en þau liðu undir lok fyrir tæpum tveimur áratugum, vill að stofnað verði nýtt safn í Rússlandi sem yrði helgað grimmdarverkum Sovétstjórnar- innar og fórnarlömbum þeirra. „Sigrast þarf á gleymskunni, styrkja þarf lýðræði og frelsi,“ sagði Gorbatsjov í yfirlýsingu, þar sem hann kynnir þessa hugmynd. Hann varaði sérstaklega við nýlegum tilraunum fólks í Rússlandi til að sýna Jósef Stalín í góðu ljósi, sem „snjallan framkvæmdastjóra“ frekar en blóðþyrstan harðstjóra. - gb Mikhaíl Gorbatsjov: Vill safn um Sovétgrimmd MIKHAÍL GORBATSJOV Varð síðasti leiðtogi Sovétríkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ORKUMÁL Guðmundur Þórodds- son, fyrrverandi forstjóri Orku- veitunnar og REI, fékk tilboð frá bandarískum fjárfestingarsjóði um að stofna nýtt jarðhitafyrir- tæki á þeirra vegum. Hann telur að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, hafi sagt rétt frá þegar hann fullyrti að hann hefði ekki séð lista yfir nöfn þeirra sem áttu að fá að kaupa hlutafé á stjórnar- og eig- endafundi Orkuveitunnar í upp- hafi REI-málsins. Í ítarlegu viðtali við Fréttablað- ið segir Guðmundur að áður en honum var sagt upp störfum sem forstjóra Orkuveitunnar og REI hafi bandarískur fjárfestingar- sjóður leitað til hans um stofnun jarðhitafyrirtækis. Spurður um peningahlið þessa máls segir Guð- mundur að enginn fari af stað með nýtt jarðhitafyrirtæki með minna stofnfé en um það bil tuttugu milljarða króna. „Þessi verkefni eru einfaldlega svo stór að það er ekki farið af stað fyrir minna.“ Guðmundur rifjar upp stjórn- ar- og eigendafund Orkuveitunn- ar þar sem það var tilkynnt að REI og Geysir Green Energy yrðu sameinuð. Hann segir að Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, þáver- andi borgarstjóri, hafi sagt rétt frá varðandi það að hafa ekki séð nafnalista á fundinum yfir þá sem áttu að fá að kaupa hlutafé í REI. Vilhjálmur var hins vegar rengd- ur um þetta og upphaf REI-máls- ins er oft rakið til fundarins. „Ég var spurður um þetta einu sinni og svaraði því. En ég hafði ekki hugmynd um það á þeim tíma að Vilhjálmur hefði ekki fengið list- ann,“ útskýrir Guðmundur. Hann telur Vilhjálm ekki bera ábyrgð á málalyktum í REI-málinu. Guðmundur segist hafa rætt við Kaupþing um grundvöll þess að stofna félag starfsmanna um fjármögnun á verkefnum REI. - shá / sjá síður 30-32 Boðið að stofna nýtt félag í jarðhitaútrás Guðmundi Þóroddssyni var boðið að stofna jarðhitafyrirtæki í samstarfi við bandarískan fjárfestingarsjóð. Stofnfé telur hann um tuttugu milljarða. Hann segir Vilhjálm Þ. ekki hafa séð lista um kaup á hlutafé í REI á stjórnarfundi OR. ÞJÁÐST FYRIR LISTINA Menn leggja ýmislegt á sig fyrir listina og svipurinn á Amber ber með sér að húðskreytingar eru ekki sárs- aukalausar. Hún lét sig þó hafa það og Mindy, sem mundar húðflúrpennann, rýnir í fyrirmyndina. Það er líka eins gott að vanda sig því erfitt er að stroka út ef vitleysur eru gerðar. Íslenska tattúráðstefnan er nú haldin í þriðja sinn. Hún fer fram á Tunglinu og stendur til morguns. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM OLÍUVERÐ Enn hækkar olíuverð og fór fatið af hráolíu í 139 dollara í gær. Það var hækkun um 11 dollara og hefur olíuverð aldrei verið hærra. Gengi hlutabréfa á Bandaríkjamarkaði tók mikla dýfu í gær í kjölfar olíuhækkun- arinnar. Bandarísku bankarnir Morgan Stanley og Goldman Sachs spá því að verð á olíufati fari í 150 dollara innan mánaðar. Bankarnir draga línuna við 4. júlí, þjóðhátíð- ardag Bandaríkjanna. Nokkuð hefur borið á því að fjárfestar hafi flúið yfir í olíuna til þess að verja sig fyrir lækkun dollarans. - kóp Olíuverð aldrei hærra: Olían í 150 dali innan mánaðar 34

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.