Fréttablaðið - 07.06.2008, Síða 10

Fréttablaðið - 07.06.2008, Síða 10
10 7. júní 2008 LAUGARDAGUR BRUNI Tilkynnt var um eldsvoða í járnblendistöðinni Grundartanga í gærmorgun. „Það kviknaði meðal annars í tækjabúnaði og var töluverður eldur en greiðlega gekk þó að slökkva hann,“ segir talsmaður slökkviðliðs Akraness. Einar Þorsteinsson hjá Járnblendifélaginu segir að eldurinn hafi komið upp í nýrri framleiðslulínu á magnesíum- járnblendi. „Tjónið er líklega upp á nokkrar milljónir króna,“ segir Einar og bætir við að aðalatriðið sé að engin slys hafi orðið á fólki og að allir hafi brugðist rétt við. - ges Slökkvistarf gekk greiðlega: Eldsvoði í járn- blendistöð DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt foreldrum manns sem lést í umferðarslysi árið 2001 samtals fjórar milljónir króna í miskabæt- ur. Dóttur mannsins sem olli slysinu er gert að greiða bæturnar ásamt Vátryggingafélagi Íslands. Héraðsdómur hafði áður kveðið upp sýknudóm í málinu. Slysið varð í Keflavík þegar eldri maður sveigði í veg fyrir bíl með þeim afleiðingum að ökumað- ur hans lést. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að um stórfellt gáleysi af hálfu mannsins hefði verið að ræða. Hann er látinn og því kom það í hlut erfingjans að greiða hans hluta. - sh Foreldrum dæmdar milljónir: Olli dauða með miklu gáleysi PAKISTAN, AP Al-Kaída-foringi í Afganistan hefur lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðs-bílsprengjutilræðinu við danska sendiráðið í Islamabad á mánudag, sem kostaði sex manns lífið, þar á meðal einn danskan ríkisborgara. Því er jafnframt hótað að láta slíkum hryðjuverkaárásum „rigna“ yfir lönd þar sem skopmyndir af Múhameð spámanni eru birtar. Borið er í yfirlýsingunni lof á þá „heilögu stríðs- menn“ í Pakistan sem hjálpað hefðu til við fram- kvæmd tilræðisins. Þetta virtist staðfesta það sem dönsk yfirvöld grunaði. Yfirlýsingin, sem birt var á vef íslamskra öfga- manna, var dagsett á þriðjudag og undirrituð af Mustafa Abu al-Yazeed. Þar segir að tilræðið væri framið í samræmi við heit Osama bin Ladens um að hefna fyrir endurbirtingu skopmyndar af Múhameð í dönskum dagblöðum. Bætt er við að biðjist Danir ekki afsökunar muni fleiri árásir fylgja í kjölfarið. - aa Al-Kaída lýsti yfir ábyrgð á hryðjuverki við danska sendiráðið í Islamabad: Hefnd fyrir skopteikningar RANNSÓKN Lögregla kannar eyðilagða bíla og fleiri verksum- merki á vettvangi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LITHÁEN Tuttugu og fimm ungbörn á aldrinum sjö til tólf mánaða kepptu í skriðkeppni í Vilnius, höfuðborg Litháens, í tilefni af Alþjóðlega barnaverndardegin- um. Börnin skriðu eftir fimm metra langri braut í átt að foreldrum sínum, sem stóðu við endalínuna. Sigurbarnið skreið í mark á ellefu sekúndum. Vinsældum þessarar árlegu keppni hefur vaxið fiskur um hrygg frá því hún var haldin fyrst fyrir níu árum og er orðin vinsæl meðal áhorfenda sem flykkjast á „völlinn“ til að fylgjast með þessari sérstæðu íþrótt. - vsp Skriðkeppni nýtur æ meiri vinsælda í Vilnius: Sigurvegarinn fór braut- ina á ellefu sekúndum UNGBÖRN eru látin skríða af öllum krafti í vinsælli keppnisíþrótt. Hobbyhúsið ehf – Dugguvogi 12 – 104 Reykjavík s: 517 7040 – www.hobbyhusid.is Tilboð meðan birgðir endast! Vinsælustu húsbílarnir með öruggt endursöluverð. Góðir lánamöguleikar. Getum einnig afgreitt erlendis. T 500 VAN Verð: 7.600.000* T 600 FC Verð: 7.900.000* T 650 FLC Verð: 8.950.000* Opnunartími: Mán-fös: 10:00-18:00 Lau-sun: 13:00-16:00 *Verð miðast við € 115 MENNTAMÁL Samkvæmt nýjum lögum um opinbera háskóla hafa fulltrúar utan skólans meirihluta í háskólaráði. Þetta hefur valdið mikilli úlfúð innan Háskóla Íslands og hafa nokkrar umræður skapast um málið. Gísli Már Gíslason, formaður Félags prófessora við ríkisháskóla, segir skipan ráðsins óeðlilega. „Háskólasamfélagið á aðeins tvo fulltrúa þar og þeir, auk fulltrúa nemenda, eru í minnihluta í ráð- inu, fólk utan háskólans í meiri- hluta. Þetta teljum við ekki rétt,“ segir Gísli. „Samsetning háskólaráðs er ekki í takt við okkar tillögur,“ segir Kristín Ingólfsdóttir rektor. „En nú hafa verið sett lög um málið sem við munum að sjálfsögðu fara eftir. Að öðru leyti eru þau að mestu í takt við okkar tillögur.“ Í umsögn rektors um lögin var lagt til að háskólaráð yrði 11 manna og í því sætu fulltrúar allra fimm fræðasviða skólans. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir skipan ráðsins eðlilega. Í umræðu um lögin á þingi sagði hún markmið laganna beinlínis vera að meiri- hluti háskólaráðs sé skipaður fólki utan skólans. „Með nýju lögunum aukum við frelsi háskólasamfélagsins,“ segir Þorgerður. „Í raun mætti frekar gagnrýna okkur fyrir að taka ekki skrefið til fulls og skipa eingöngu fulltrúa utan háskólans í háskóla- ráð.“ Samkvæmt nýju lögunum skip- ar ráðherra rektor að fenginni til- lögu háskólaráðs. „Við höfum hing- að til búið við jafningjalýðræði og kosið á meðal okkar um rektor og stjórnendur. Við óttumst að nýju lögin boði breytingar þar á, enda er þar fallið frá hæfiskröfum,“ segir Gísli Már. Hann segir menn einnig óttast að akademískt frelsi þeirra sé í hættu og stjórnunarstíll fyrirtækja sé kominn í háskólann. Kristín óttast ekki skort á aka- demísku frelsi, rektor sé formaður háskólaráðs og muni standa vörð um það. „Hið sama gildir um ráðn- ingu rektors. Strangt til tekið getur háskólaráð tekið þá ákvörðun að rektor verði ráðinn en ekki kjör- inn. En við sem háskólasamfélag höfum mikið um það að segja með rektor sem formann háskólaráðs hver framtíðin verður,“ segir Kristín. Þorgerður Katrín tekur undir þetta og segir lögin ef eitthvað er tryggja enn frekar akademískt frelsi við háskólann. kolbeinn@frettabladid.is Ósætti um ný háskólalög Töluverð óánægja er innan Háskóla Íslands með ný lög um opinbera háskóla. Fulltrúar utan skólans í meirihluta í háskólaráði. Ráðherra segir það eðlilegt en háskólafólk óttast ítök atvinnulífsins. ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR GÍSLI MÁR GÍSLASON KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR PÖNDUR Í PEKING Átta pöndur voru sýndar almenningi í fyrsta sinn í dýra- garði í Peking, en þangað voru þær fluttar sérstaklega til að gleðja gesti Ólympíuleikanna í sumar. NORDICPHOTOS/AFP ÚLFÚÐ Í HÁSKÓLANUM Töluverð óánægja er innan háskólans um ný lög um opin- bera háskóla og óttast sumir ítök atvinnulífsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.