Fréttablaðið - 07.06.2008, Page 44
● heimili&hönnun
„Þetta horn hefur mikla þýðingu í mínu lífi því hér
sit ég kvölds og morgna og hugleiði í um það bil
hálftíma í senn,“ segir Kristbjörg Kristmundsdóttir
jógakennari og sýnir lítið altari á heimili sínu sem
ýmsum smáhlutum er stillt upp á. Hún segir mikla
orku samankomna á þessum stað enda hafi hún
hugleitt þar í svo mörg ár. Hornið sé eins og ljós-
súla sem hún tengi sig við.
Á miðju altarinu er mynd af hinum indverska
Asutosh Muni, jógameistara Kristbjargar. „Hann
er munkur og mikill jógi,“ tekur hún fram. Íslensk-
ur bergkristall er þarna líka sem Kristbjörg kveðst
hafa ýmist á altarinu eða úti í glugga til að leyfa
sólinni að skína á hann. „Oft set ég hringinn minn
og hálsmenin á steininn til hreinsunar og hleðslu,“
segir hún. Þarna er líka pendúll sem hjálpar henni
að velja blómadropa fyrir fólk. „Hann er eiginlega
framlenging á skyggninni,“ útskýrir hún.
Öðuskel og appelsínugul kerti eru ótalin. „App-
elsínuguli liturinn táknar gleði, hamingju og alls-
nægtir,“ fræðir Kristbjörg blaðamann um og sýnir
líka krossfisk sem hún kveðst hafa fundið í fjöru
þegar hún stóð á miklum krossgötum í lífinu. Hann
hefur margar skírskotanir. Blómadropar eru ómiss-
andi við hugleiðsluna og að lokum bendir Krist-
björg á litla bjöllu sem hún kveðst hafa fengið á
Indlandi. „Þegar búið er að biðja bænirnar sínar er
gott að hringja bjöllunni,“ segir hún. „Það er hefð á
Indlandi og óháð öllum trúarbrögðum.“ - gun
HILLAN MÍN
Helgur staður á heimilinu
S tólarnir á myndunum eru eftir danska hönnuðinn Nönnu Ditzel (1923-2005) sem útskrifaðist sem húsgagna-
hönnuður frá Konunglega listaháskólanum í Kaup-
mannahöfn árið 1946. Ditzel stofnaði fyrirtæki ásamt
manni sínum skömmu eftir útskrift, en þá störfuðu
ekki margar konur í faginu. Hún lét þó hvorki það
né ótímabæran dauða eiginmanns síns stöðva
sig, heldur hélt ótrauð árfram og var óhrædd við
að prófa nýja hluti, efni og tækni. Á löngum ferli
hannaði Ditzel meðal annars þekkt húsgögn eins og
fiðrildastólinn og skeljastólinn og einnig skartgripi
og listmuni. Hlaut hún fjölda verðlauna og viðurkenn-
inga fyrir störf sín. - stp
Húsgagnahönnun með sál
„Alls staðar þar sem fólk hugleiðir reglulega safnast mikil
birta og ljós,“ segir Kristbjörg. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bench for Two eftir Nönnu Ditzel. Ditzel hlaut
fjölda verðlauna fyrir húsgögn sín. Hér fyrir
neðan er Egg Chair.
7. JÚNÍ 2008 LAUGARDAGUR8