Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.06.2008, Qupperneq 80

Fréttablaðið - 07.06.2008, Qupperneq 80
52 7. júní 2008 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is EM 2008 Roberto Rosetti dómari blæs til 23 daga fótboltaveislu klukkan 16 í dag þegar heimaþjóð- in Sviss mætir Tékkum í opnunar- leik Evrópumótsins. Síðar um kvöldið mætast Portúgal og Tyrk- land. „Leikmenn okkar hafa þroskast frá því á Heimsmeistaramótinu,“ sagði Alexandre Frei, fyrirliði Sviss, sem vann sinn riðil á HM 2006. Svisslendingar töpuðu fyrir Úkraínu í víta- spyrnukeppni í 16-liða úrslitunum. „Ég hef trú á liðinu og ég veit að okkur hungrar í árangur. Við viljum skrá okkur í sögubækurnar og nú eigum við möguleika á því í heimalandinu,“ bætti Frei við en þetta er fyrsta EM Sviss- lendinga. Tékkar voru í úrslitunum 1996 og undanúrslitunum 2004 en eftir að Karel Poborsky og Pavel Nedved hættu, auk meiðsla fyrir- liðans Tomasar Rosicky, efast margir um getu Tékka. Enginn ætti þó að afskrifa liðið. „Ég veit ekki af hverju fólk segir að við séum ekki jafn góðir og við vorum. Við höfum komist á þrjú síðustu stórmót, það sannar styrk okkar og við munum sanna hann enn á EM 2008,“ sagði David Jarolim, miðjumaður. Vökul auga knattspyrnu- áhugamanna um allan heim verða eflaust flest á Cristiano Ronaldo. Hann hefur rætt um möguleg skipti sín yfir til Real Madrid rétt fram að móti en lofar að einbeita sér að landsliðinu í júní. Það er eins gott því Portúgalar eru í erfiðum riðli. Luis Felipe Scolari veit að engan andstæðing má vanmeta en hann leggur traust sitt eðlilega á Ron- aldo. „Hann er ungur leikmaður sem hefur farið í stórbrotna för í gegnum líf sitt til þessa. Í dag er hann miðpunktur liðsins okkar,“ sagði Scolari. Margir hafa bent á að Portúgala skorti hreinræktaðan sóknarmann en Scolari blæs á að markaskorun verði vandamál. „Við höfum marga gæðaleikmenn innan okkar raða, leikmenn um allan völl sem geta skorað,“ sagði þjálfarinn. Nihat Kahveci, leikmaðurinn sem Tyrkir treysta hvað mest á, segir að hver leikur sé eins og úrslitaleikur fyrir sína menn. „Við þurfum að spila þetta að okkar hætti. Við virðum Portúgala, þeir hafa frábært lið, en við höfum góða leikmenn hjá okkur líka,“ sagði Kahveci. - hþh Evrópumótsveislan hefst í dag þegar Sviss mætir Tékkum áður en Portúgal og Tyrkland leika um kvöldið: Blásið til 23 daga fótboltaveislu í dag SÍÐASTA ÆFING Karel Bruckner horfir hér á lærisveina sína frá Tékklandi á æfingu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP EM 2008 Svissneska lögreglan brá á það ráð að senda þekktum knattspyrnubullum bréf þar sem þær voru vinsamlegast beðnar um að halda sér frá mótinu í Sviss og Austurríki. „Kæri herra/frú bulla“ byrjar bréfið sem sent var til yfir 300 manns. Lögreglan hefur gefið út að ekkert ofbeldi verði liðið en sérstök fangelsi hafa verið byggð til bráðabirgða til að hýsa þá sem verða handteknir vegna óláta. - hþh Öryggisgæslan á EM: Lögreglan sendi bullum bréf MIKIL GÆSLA Óeirðalögreglan verður alltaf til taks. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP EM 2008 Í ár var brugðið á þá nýbreytni að halda fegurðarsam- keppni milli þeirra þjóða sem taka þátt í EM í ár. Keppnin var haldin í Þýskalandi og þótti sú frá Tékklandi fegurst fljóða. Gríski keppandinn lenti í öðru sæti og sá tyrkneski í því þriðja. - hþh Nýbreytni fyrir EM: Tékknesk fegurð MYNDARLEGAR Sigurvegarinn er hér í miðjunni með stöllum sínum frá Tyrk- landi til vinstri og þeirri grísku til hægri. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP EM 2008 Flest bestu hótel Sviss og Austurríkis hafa verið hertekin af keppnisliðunum sextán og öllu því hafurtaski sem þeim fylgja. Portúgalar gista á Beau-Rivage sem er fimm stjörnu hótel með útsýni yfir Neuchatel-vatn og Frakkar gista á Le Mirador Kemp- inski á svissnesku Rívíerunni með útsýni yfir Genfarvatn og frönsku Alpana. - hþh Væsir ekki um stjörnurnar: Lúxus á liðunum GLÆSILEGT Hótel Portúgala er eitt af þeim bestu í heimi. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Ísland mætir Rúmeníu á útivelli í dag kl. 16.00 í seinni leik liðanna í undankeppni EM í handbolta kvenna en Rúmenía vann fyrri leikinn með talsverðum yfirburðum, 23-37, í Laugardalshöll. Landsliðskonan Hrafnhild- ur Skúladóttir, sem leikur með SK Århus í Danmörku, nær merkum áfanga í leiknum en hún leikur sinn 100. landsleik fyrir Íslands hönd í dag. „Þetta leggst ágætlega í mig og það er mjög gaman að mæta jafn sterku liði og Rúmenía er. Þær eru þrælgóðar og lentu í fjórða sæti á HM í desember á síðasta ári og það er ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til þess að spila við topp-fjögur þjóð í heiminum,“ sagði Hrafnhildur sem kvað góða stemningu í íslenska liðinu fyrir leiknum. „Það er hugur í íslenska landsliðshópnum að gera betur en síðast og klára þetta verkefni með sæmd,“ sagði Hrafnhildur sem kvað íslenska liðið geta tekið margt jákvætt út úr fyrri leik liðanna þrátt fyrir fjórtán marka tap. „Fyrri hálfleikurinn í leiknum í Laugardalshöll var mjög slakur af okkar hálfu og það var auðvitað ekki gott að vera þrettán mörkum undir í hálfleik. Við náðum hins vegar að halda betur í við þær í síðari hálfleik og við verðum bara að halda því áfram sem frá var horfið þar. Það er margt jákvætt sem við getum tekið með okkur úr þessum seinni hálfleik og við verðum bara að gera það,“ sagði Hrafnhildur sem telur möguleika Íslands í seinni leiknum í Rúmeníu fyrst og fremst liggja í góðum varnarleik. „Möguleikarnir okkar eru ekkert í sóknarleiknum á móti svona sterku liði, heldur þurfum við að verjast af grimmd og spila geðveika vörn. Góður varnarleikur gæti þannig gefið okkur möguleikann á hraðaupphlaupum sem við verðum að keyra og nýta til þess að fá auðveld mörk. Þar liggur okkar helsti möguleiki á sigri,“ sagði Hrafnhildur. HANDKNATTLEIKSKONAN HRAFNHILDUR SKÚLADÓTTIR: LEIKUR SINN 100. LANDSLEIK FYRIR ÍSLAND HÖND Í DAG Hugur í okkur að klára verkefnið með sæmd > Stórleikir í Landsbankadeild kvenna 5. umferð Landsbankadeildar kvenna í fótbolta fer fram í dag. Valur og KR eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir. Valur mætir Keflavík á útivelli en KR lenti einmitt í miklum erfiðleikum þar í 1. umferðnni. KR fær Stjörnuna í heimsókn en Stjörnustúlkur eru í þriðja sæti deildarinnar sem stendur. Þór/KA hefur bitið hressilega frá sér eftir stórt tap gegn Val í 1. umferð og mætir Fjölni á útivelli. Þá mæta nýliðar Aftureldingar liði HK/Víkings og Breiðablik fær Fylki í heimsókn. Allir leikirnir fara fram kl. 14.00. Landsbankinn býður 16 ára og yngri á völlinn. Sækja þarf boðsmiðann í næsta útibú Landsbankans. sun. 8. júní sun. 8. júní sun. 8. júní sun. 8. júní sun. 8. júní 6. umferð FH Fjölnir14:00 Fram Grindavík14:00 HK ÍA14:00 Valur 14:00 Keflavík KR14:00 Breiðablik Landsbankadeild karla Fjölnirlau. 7. júní lau. 7. júní lau. 7. júní lau. 7. júní lau. 7. júní 5. umferð Þór/KA Keflavík Valur14:00 14:00 Afturelding HK/Víkingur14:00 KR Stjarnan14:00 Breiðablik 14:00 Fylkir Landsbankadeild kvenna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.