Fréttablaðið - 07.06.2008, Síða 86

Fréttablaðið - 07.06.2008, Síða 86
58 7. júní 2008 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. sælgæti, 6. guð, 8. duft, 9. angan, 11. gelt, 12. orðtak, 14. urga, 16. klafi, 17. ennþá, 18. málmur, 20. tveir eins, 21. hófdýr. LÓÐRÉTT 1. fjúk, 3. kringum, 4. gróðrahyggja, 5. hamfletta, 7. sambandsríkis, 10. skraf, 13. atvikast, 15. sál, 16. pota, 19. ónefndur. LAUSN LÁRÉTT: 2. buff, 6. ra, 8. mél, 9. ilm, 11. gá, 12. frasi, 14. ískra, 16. ok, 17. enn, 18. tin, 20. dd, 21. asni. LÓÐRÉTT: 1. drif, 3. um, 4. fégirnd, 5. flá, 7. alríkis, 10. mas, 13. ske, 15. andi, 16. ota, 19. nn. Tæplega helmingur þeirra Pólverja sem búa hér á landi kýs frekar að horfa á útsendingar frá heima- landi sínu af EM en útsendingar RÚV. Þetta segir Maciek Kaczynski, dyggur stuðningsmaður pólska landsliðsins og starfsmaður RVR-Kontrol. Frétta- blaðið náði í skottið á Maciek og reyndi forvitnast hvernig honum litist að horfa á Evrópumótið í knattspyrnu með íslenskri lýsingu. Til að forðast allan misskilning þá er Maciek ekkert skyldur forseta landsins, Lech Kaczynski, þótt þeir beri sama eftirnafn. „Við náum beinum útsendingum í gegnum gervihnöttinn og getum þannig fylgst með okkar mönnum,“ segir Maciek en mikil stemning er í Póllandi um þessar mundir vegna þátttökunnar á EM enda í fyrsta skipti sem liðið nær svona langt í þessari keppni. Maciek segist hafa heyrt af því að í stærstu borgunum ætli fólk að hengja pólska fánann upp hvar sem það verður hægt. Hann íhugi jafnvel að taka upp sið landa sinna og setja pólska fánann út á svalir þegar leikir liðsins færu fram. Hins vegar er fyrsti leikurinn mjög erfiður, gegn erkifjendunum í Þýskalandi. „Þýskaland er með mjög sterkt lið en Leo Beenhakker er að gera mjög góða hluti. Ég spái því að leikurinn fari annaðhvort 1-1 eða 0-0. Við megum alltént ekki tapa honum.“ Samkvæmt Hagstofunni búa tæplega níu þúsund manns hér á landi sem eru með pólskt ríkisfang. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er sú tala þó mun hærri að mati Pólverja því inni í þeirri tölu eru ekki þeir Pólverjar sem hafa fengið íslenskt ríkisfang á undanförnum árum. - fgg Pólverjar sleppa íslenskri EM HORFIR Á PÓLSKU ÚTGÁFUNA Maciek hyggst ekki horfa á Hrafnkel Kristjánsson eða Þorstein Joð heldur kýs frekar pólska starfsbræður þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA „Eftir yndislegan fund í ráðhúsinu fyrr í vikunni með öllum sem að þessum málum koma, meðal annarra borgarstjóra og Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra þar sem kom fram einlægur vilji til að leysa vandamál í samein- ingu fengum við bréf þar sem okkur er gert að stytta afgreiðslutímann,“ segir Kormákur Geirharðsson, vert á Ölstofunni. Honum, ásamt eigendum Vegamóta, hefur borist bréf frá borgaryfirvöldum þar sem þeim er gert að loka stöðum sínum klukkan þrjú um helgar en ekki hálf sex, eins og verið hefur. Samkvæmt tilskipun á þessi breyting að taka gildi hálfum mánuði frá dagsetningu bréfsins sem barst þeim á fimmtudag. Fréttablaðið hefur fjallað um ýfingar íbúa í miðborginni við veitingastaðaeigendur en eftir að reykingabannið gekk í gildi hefur hávaði við veitingastaði aukist til muna. Lögreglustjóri hefur mælt með styttri afgreiðslutíma sem lausn á þessum vanda en veitingastaðaeigendur vilja meina að það sé engin lausn. Það er þungt í Kormáki hljóðið vegna þessa. Hann segir þetta hnífstungu í bakið því þrátt fyrir viljayfirlýsingar þess efnis um að leysa beri vandann í samein- ingu, séu boð og bönn eina sem í boði er. „Við munum berjast gegn þessu. Og þurfum að verja hundruðum þúsunda í lögfræði- kostnað,“ segir Kormákur sem segir rekstrargrundvelli kippt undan staðnum með þessu. Og það sem verra er, þá mun vandinn enn vera til staðar eftir sem áður að hans mati verði þetta lendingin. „Heilbrigðis- og sam- göngunefnd byggir þetta á skýrslum lögreglustjóra um kvartanir. Við höfum viljað skoða það nánar, teljum þessar kvartanir koma mest frá einu símanúmeri og það er hart ef ég get, ef mér býður svo við að horfa, lagt einhvern tiltekinn stað í einelti. Hringt stöðugt í lögreglu með kvartanir og komið því svo fyrir að honum sé bara lokað. Við erum með hundrað manns í vinnu.“ - jbg Opnunartími Ölstofu og Vegamóta styttur KORMÁKUR GEIRHARÐSSON Þeir á Ölstofunni ætla að berjast gegn tilskipun um styttan opnunar- tíma með öllum tiltækum ráðum. PERSÓNAN Árni Finnson Aldur: 50 ára. Starf: Formaður Náttúruverndar- samtaka Íslands, og starfa fyrir Green Peace á Norðurlöndum. Fjölskylda: Kvæntur Hrafn- hildi Arnkelsdótt- ur, skrifstofustjóra Hagstofunnar. Þau eiga tvær dætur, Láru og Karítas. Foreldrar: Hulda Árnadóttir, fyrrverandi kennari, og Finnur Torfi Hjörleifsson, fyrrverandi dómari. Búseta: Grandavegi, Vesturbæ. Stjörnumerki: Hrútur. Árni Finnson harmaði að ísbjörninn í Skagafirði náðist ekki lifandi, en ísbirnir eru í útrýmingarhættu. Það er kreppa og dýrtíð. Tveir veitingastaðir á Laugavegi 22 spyrna við fótum og bjóða upp á ódýrari mat en gengur og gerist. Fólkið sem rekur staðina segist hugsa um annað en gróða. Það er sátt ef það kemur út á núlli. „Við vorum bara búin að fá nóg af því að fá okkur samlokur og gos á 2.500 kall,“ segir Íris Dögg Konráðsdóttir, einn af eigendum 22, sem opnaði fyrir viku undir gamla nafninu. Hafði heitið Barinn um hríð. „Við erum að gera okkar besta til að standa okkur á krepputímum,“ segir Íris. „Matseðilinn er skemmtilegur og pínulítið öðruvísi en gengur og gerist og dýrasti rétturinn kostar 1.290 kr, alvöru steikarsamloka úr nautafille.“ Við hliðina er Santa María, veitingastaður í mexíkóskum stíl þar sem enginn réttur kostar yfir þúsund krónum. María Hjálmtýsdóttir rekur staðinn ásamt mexíkóskum eiginmanni sínum, Ernesto Ortiz. „Fyrst og fremst byrjuðum við með staðinn vegna þess að við tímdum voða lítið að fara út að borða sjálf því okkur fannst allt svo hrika- lega dýrt,“ segir María. „Við lítum frekar á þetta sem atvinnusköpun fyrir fjölskylduna og það góða fólk sem vill vinna með okkur. Við opnuðum ekki staðinn til að sitja sjálf heima og bíða eftir peningum í vasann. Okkur langar hvorki í Rolex né Range Rover. Ef okkur tekst að borga öllum laun og borga alla reikninga er takmarkinu náð. Við látum allt kosta þannig að okkur finnist við vera sanngjörn og allir séu glaðir.“ Móttökur almennings hafa verið frábærar og fullt er út úr dyrum á hverju kvöldi – „enda margir orðnir leiðir á okrinu,“ segir María. „Einhverjir veitingahúsaeigendur hér í nágrenninu hafa þó látið okkur vita að þeim finnist þetta ósanngjörn samkeppni við sig. En við höldum okkar striki, enda þurfum við ekki að smyrja ofan á matinn fyrir tíu milljóna króna svarthvítri og ferkantaðri innanhúshönnun. Þegar við opnuðum staðinn héldum við í sem mest af innréttingunum og máluðum svo bara sjálf.“ gunnarh@frettabladid.is ÍRIS OG MARÍA: TVEIR ÓDÝRIR VEITINGASTAÐIR VEKJA ATHYGLI Berja niður okrið á Laugavegi REYNUM AÐ STANDA OKKUR Á KREPPUTÍMUM Íris Dögg Konráðsdóttir, ein af eigendum 22. Hún var orðin leið á því að borga 2.500 krónur fyrir samloku og gos. Nú kostar dýrasti rétturinn 1.290 krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA LANGAR HVORKI Í ROLEX NÉ RANGE ROVER Ernesto Ortiz hjá Santa María þar sem allir réttir eru undir þúsundkallinum. Sannkölluð vin í eyðimörkinni. FRÉTTALAÐIÐ/RÓSA Furðuleg saga gengur þess efnis að Megas hafi selt lagið „Ef þú smælar framan í heiminn” í auglýs- ingu Toyota. Íslenska auglýsingastofan á að hafa skrifað handritið, Pegasus kvikmyndað og Megas að hafa þegið 1,3 milljón fyrir. Mun þetta þá vera fyrsta lag sem Megas selur í auglýs- ingu. Gríðarleg leynd er um málið og allir aðilar neita að staðfesta eitt eða neitt nema umboðsmaður Megasar, Rúnar Birgisson, sem segir ekkert slíkt í spilunum. Þegar Megas sé annars vegar sjái ekki í hann fyrir kjaftasögum en Rúnar eigi hins vegar fullt af óútfylltum reikningum sem hann vilji gjarnan senda út vanti einhvern lag í auglýsingu. Jón Gnarr lýsti því yfir við Frétta- blaðið að hann treysti sér ekki lengur í messur hjá kaþólsku kirkj- unni eftir tvær Síma-aug- lýsingar. Andrúmsloftið væri með þeim hætti að honum fyndist hann ekki velkominn. Ekki er hins vegar að sjá á vefsíðu kaþólsku kirkjunnar að henni sé eitthvað mikið í nöp við grínistann því á heimasíðu hennar er Jón Gnarr enn titlaður sem umsjónarmaður bókasölu. Sturla Jónsson og félagar tilkynntu í gær stofnun Lýðræðisflokksins. Stuttu síðar steig Ástþór Magnús- son fram og sagðist eiga nafnið og myndi ekki láta það af hendi. Sturla svaraði því til að annað nafn skyldi fundið og klykkti út með góðri lífsspeki: „Lífið er of stutt til þess að vera að standa í deilum.“ Það var einmitt það. -jbg/fgg/shs FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8 1 Sigurður Tómas Magnússon. 2 Austurríki og Sviss. 3 Jón Gnarr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.