Fréttablaðið - 10.07.2008, Blaðsíða 2
2 10. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
Halldór, er lögreglustjóri með
allt niðri um sig í þessu máli?
„Nei, nei, enda miklu flottari í
búningnum.“
Veitingastaðurinn Óðal hefur beðið
niðurstöðu lögreglustjóra höfuðborgar-
svæðisins varðandi nektardansleyfi í yfir
hálft ár. Halldór H. Backman er lögmaður
veitingastaðarins.
JAPAN, AP Leiðtogafundur G8-ríkjanna var fjölmenn-
ari í ár en nafnið gefur til kynna. Nú í vikunni
mættu leiðtogar á þriðja tug ríkja og alþjóðastofn-
ana til Japans, þar sem fundarhöld stóðu yfir frá
mánudegi en þeim lauk í gær.
Stefnt er að framhaldi á því að bjóða fleirum en
efnahagsveldunum átta til fundanna næstu ár. Hitt
er svo annað mál, að ríkin átta eru flest treg til að
taka fleiri ríki formlega inn í hópinn.
Átta ríkja hópurinn hefur verið gagnrýndur fyrir
að vera einangraður og sjónarmið annarra þurfi að
komast að á fundunum, þar sem fjallað er um mörg
brýnustu heimsmálin.
„G8-hópurinn nægir ekki lengur til að leysa mörg
vandamálanna,“ sagði Angela Merkel Þýskalands-
kanslari. Hún sagði þó að hópurinn mætti ekki
„vatna út sjálfan sig“, og sagði formlega fjölgun
aðildarríkja ekki endilega á dagskrá næstu árin.
Aðildarríkin átta eru Bandaríkin, Bretland,
Frakkland, Ítalía, Japan, Kanada, Rússland og
Þýskaland. Auk þess var fimm upprennandi
efnahagsveldum boðið til fundarins, en þau eru
Kína, Indland, Brasilía, Mexíkó og Suður-Afríka. Að
auki var leiðtogum Suður-Kóreu, Ástralíu og
Indónesíu boðið til viðræðna. - gb
G8-ríkin bjóða æ fleiri leiðtogum á fundi hópsins:
Fjölgun ekki strax á dagskrá
GESTIR Á FUNDI G8 Leiðtogar Indlands, Kína og Brasilíu ásamt
Rússlandsforseta á leiðtogafundinum í Japan nú í vikunni.
NORDICPHOTOS/AFP
SKIPULAGSMÁL Drög að nýjum bygg-
ingarskilmálum fyrir sumar bú-
staði á Þingvöllum hafa verið send
sumarhúsaeigendum í þjóð garðin-
um til umsagnar. Þar er meðal ann-
ars lagt til að allar nýbyggingar og
stækkanir sumar húsa á Þingvöll-
um verði bannaðar og að óheimilt
verði að girða af einkalóðir.
Nokkuð hefur borið á því að efn-
aðir eigendur sumarhúsalóða á
Þingvöllum hafi rifið húsin sem á
lóðunum standa í því skyni að reisa
þar ný og glæsilegri hús. Þessu
hefur meðal annars fylgt aukin
umferð þyrlna sem fljúga reglu-
lega á framkvæmdasvæðin með
byggingarefni, þar eð bíla umferð
upp að lóðunum er óheimil.
Segir í greinargerð með tillög un-
um að á síðustu árum hafi risið á
Þingvöllum allt upp í 180 fermetra
heilsárshús á tveimur hæðum, þar
sem önnur hæðin er niðurgrafin,
þar sem áður stóðu mun veiga-
minni hús.
Bjarni Harðarson, nefndar mað-
ur í Þingvallanefnd, er höfundur
tillagnanna. Hann lagði þær fyrir
nefndina, sem ákvað að senda þær
til umsagnar. Bjarni er ekki hrifinn
af stórtækum framkvæmdum í
þjóðgarðinum.
„Að mörgu leyti eru þessar regl-
ur nauðsynlegar til að mæta þeirri
þróun sem hefur orðið í sumar-
húsalöndum þar sem sumar hús
fara mjög stækkandi og
fram kvæmdagleði er oft mjög
mikil,“ segir Bjarni. „Sjálfur tel ég
ekki að slík framkvæmdagleði sé
við eigandi á lóðum innan þjóð-
garðs, og allra síst á lóðum sem eru
hvað næst sjálfri þinghelginni.“
Í tillögunum er heimilað að við-
halda húsum sem þegar eru á lóð-
unum, og jafnframt endur byggja
þau ef þess gerist þörf vegna
skemmda, en kveðið á um að leitast
skuli við að breyta húsunum sem
minnst.
Einnig er lagt til bann við því að
reisa bátaskýli eða bryggjur á eða
við lóðir, eða að girða lóðirnar af.
Þá skuli, í samráði við eigendur,
unnið að því að breyta þeim lóðum
til betri vegar sem ekki uppfylla
fyrirhuguð skilyrði þegar og ef þau
verða að reglum. Með því að banna
girðingar er ætlunin að tryggja
betur aðgengi gesta að svæðinu,
einkum vatnsbakkanum.
Björn Bjarnason, formaður Þing-
vallanefndar, segir í skriflegu svari
við fyrirspurn Fréttablaðsins, að
nefndin muni taka málið til
afgreiðslu eftir að umsagnir hafi
borist, og hann muni þá láta í ljós
skoðun sína á málinu. Nefndin
þurfi að samþykkja allar fram-
kvæmdir á svæðinu, en hafi slegið
frekari ákvörðunum á frest þar til
tillaga Bjarna verði afgreidd.
stigur@frettabladid.is
Engar nýbyggingar
rísi á Þingvöllum
Drög að nýjum reglum um byggingu sumarbústaða á Þingvöllum hafa verið
sendar lóðareigendum til umsagnar. Í þeim er gert ráð fyrir að nýbyggingar og
stækkanir á bústöðum verði bannaðar. Stór hús eru í byggingu og hafa risið.
ÞYRLA Á ÞINGVÖLLUM Tvö
tiltölulega stór hús eru í
byggingu á samliggjandi
lóðum við Valhallarstíg. Þyrlur
fá leyfi frá starfsmönnum
Þingvallanefndar til að flytja
byggingarefni á staðinn með
reglulegu millibili.
FRÉTTABLAÐIÐ / AUÐUNN
BJARNI HARÐARSON
Kveðst ekki hrifinn af
stórtækum framkvæmdum í
þjóðgarðinum á Þingvöllum.
BELGÍA, AP Utanríkisráðherrar
Króatíu og Albaníu undirrituðu í
gær aðildarsamninga við Atlants-
hafsbandalagið. Búist er við að
löndin gangi formlega í bandalag-
ið í byrjun næsta árs.
Áður en af aðild getur orðið
þurfa þó þjóðþing beggja landanna
að staðfesta samninginn, og það
þurfa hin 26 núverandi aðildarríki
bandalagsins einnig að gera.
Jaap de Hoop Scheffer, fram-
kvæmdastjóri NATO, sagði
undirritun samninganna sýna hve
vel hefur miðað á Balkanskaga frá
því Júgóslavía liðaðist í sundur í
stríðsátökum á síðasta áratug.
- gb
Albanía og Króatía:
Hafa samið um
aðild að NATO
Karlmaður á áttræðisaldri
fannst látinn rétt utan við
Hvolsvöll í gærmorgun.
Maðurinn mun hafa verið í
reiðtúr og fallið af baki.
Vegfarendur sáu hest með
reiðtygi og gerðu lögreglu
viðvart. Maðurinn fannst síðan
látinn skammt frá.
Ekki er hægt að greina frá
nafni hins látna að svo stöddu.
- hþj
Fannst látinn
FÓLK Vel gengur með söfnun til
styrktar Guðmundi Þorsteins-
syni fjárbónda sem missti
heimili sitt á Finnbogastöðum í
Trékyllisvík í eldsvoða 16. júní
síðastliðinn.
„Það safnaðist heil milljón á
Hótel Glym um síðust helgi.
Miklu munaði þar að eigendurn-
ir. Hansína B. Einarsdóttir og
Jón Rafn Högnason, létu allan
ágóða af sölu kaffiveitinga
ganga óskiptan í söfnunina,“
segir Kristmundur Kristmunds-
son, formaður Félags Árnesbúa.
Að sögn Kristmundar er markið
sett á fimm milljónir króna og
er skammt í að það náist. Þegar
hefur verið leitað tilboða í
einingahús sem ætlunin er að
rísi áður en vetur gengur í garð
á Ströndum.
- gar
Bruninn á Finnbogastöðum:
Styrktarsöfnun
gengur afar vel
FINNBOGASTAÐIR Bærinn brann og
innbúið með.
LÖGREGLUMÁL Sex innbrot um
hábjartan dag hafa verið tilkynnt
lögreglu undanfarna daga á
Akureyri. „Þetta er mjög
óvenjulegt og við viljum ekki sjá
þetta hér hjá okkur,“ segir
Kjartan Helgason varðstjóri.
Tveir karlmenn og kona voru
handtekin á laugardag eftir tvö
innbrot í hús á Akureyri og í
Hörgárdal. Tilraun til þriðja
innbrotsins heppnaðist ekki þegar
þjófarnir bönkuðu upp á hjá
lögreglumanni sem áttaði sig
fljótt á því hverjir voru á ferð.
Lögregla brýnir fyrir fólki að
gæta eigna sinna vel og læsa
húsum sínum. - ht
Innbrotahrina á Akureyri:
Sex innbrot um
hábjartan dag
TYRKLAND, AP Þrír tyrkneskir
lögreglumenn féllu þegar
óþekktir menn réðust á varðstöð
utan við skrifstofu ræðismanns
Bandaríkjanna í Istanbúl í
Tyrklandi í gær. Þrír árásarmann-
anna voru felldir en einn slapp.
Tyrkir og Bandaríkjamenn lýsa
árásinni sem hryðjuverkaárás.
Einhverjir árásarmannanna hlutu
þjálfun í Afganistan samkvæmt
fréttum CNN-Turk, en lögreglan
vildi ekki staðfesta það. Árásar-
mennirnir voru vopnaðir skamm-
byssum og haglabyssum. - gh
Hryðjuverkaárás í Tyrklandi:
Sex biðu bana
í skotárás
SÆRÐUR LÖGREGLUMAÐUR Tyrknesk og
bandarísk stjórnvöld segjast staðráðin í
að halda áfram baráttu gegn hryðjuverk-
um. NORDICPHOTOS/AFP
KJARAMÁL Skrifað var undir kjara-
samning á milli Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga og samninga-
nefndar ríkisins um tíuleytið í
gærkvöld. Þá hafði fundur staðið
sleitulaust frá því klukkan 11 um
morguninn.
„Yfirvinnubanninu er aflýst hér
með. Einhugur var í samninga-
nefnd hjúkrunarfræðinga og
stjórninni um að þetta væri góður
samningur í alla staði,“ sagði Elsa
B. Friðfinnsdóttir, formaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga, í samtali við Fréttablaðið í
gærkvöld.
„Að samningur skyldi nást ætti
að gleðja hjúkrunarfræðinga,
lækna og aðra starfsmenn sjúkra-
húsanna sem og sjúklinga.“
Elsa segist telja að allur undir-
búningurinn í vetur og öll sú vinna
sem hefur verið „sé að skila hjúkr-
unarfræðingum mjög góðum
samningi“.
Hún segir verulega hækkun
dagvinnukaups vera eitt aðalmál-
ið en einkum munu laun ungra
hjúkrunarfræðinga hækka. „Það
eru umtalsverðar hækkanir í
launatöflunni. Við hættum ekki
fyrr en við náðum samningi sem
hjúkrunarfræðingar gætu sætt
sig við.“
Yfirvinnubannið hefði skollið á
klukkan fjögur í dag ef samningar
hefðu ekki náðst. Samningurinn
verður lagður fyrir hjúkrunar-
fræðinga 20. júlí. - vsp
Hjúkrunarfræðingar sömdu við samninganefnd ríkisins seint í gærkvöldi:
Telur samninginn góðan í alla staði
LOKASPRETTURINN Hjúkrunarfræðingar
komu til fundar í Karphúsinu í gærmorg-
un. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SPURNING DAGSINS