Fréttablaðið - 10.07.2008, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 10.07.2008, Blaðsíða 12
 10. júlí 2008 FIMMTUDAGUR DÓMSMÁL „Mitt meginerindi í þessari grein er að beita eigi sams konar reglum í sönnunar- færslu í kynferðisbrotum eins og öðrum afbrotaflokkum. Engin lagaheimild er fyrir öðru,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson Hæsta- réttardómari í samtali við blaða- mann. Í nýjasta tölublaði Tímarits Lögréttu [Tímarit laganema við Háskólann í Reykjavík] birtist grein þar sem Jón Steinar svarar gagnrýni Eiríks Tómassonar lagaprófessors við Háskóla Íslands á sératkvæði hans í máli númer 148/2005. „Þetta breytir ekki neinu í minni grein sem ég set fram á rökstuddan hátt. Ég hyggst svara Jóni Steinari síðar í Úlfljóti [tímarit laganema við Háskóla Íslands],“ segir Eiríkur Tómasson lagaprófessor. Í dómi Hæsta- réttar í málinu vildu fjórir dóm- arar af fimm sak- fella mann fyrir báða ákæruliði en hann var dæmdur fyrir kynferðis- brot gegn dóttur sambýliskonu sinnar. Í sérat- kvæðinu vildi Jón Steinar sýkna manninn af einum ákærulið. Hann taldi að ekki væru nægar sannanir fyrir því að sakfella manninn fyrir ákæruliðinn. „Í íslenskri löggjöf gildir sú meginregla að maður er saklaus uns sekt er sönnuð,“ segir Jón Steinar. Gagnrýni Eiríks sneri að því að ekki væri nógu mikið mið tekið af óbeinum sönnunargögnum og sérstöðu kynferðisafbrota. „Í kynferðisafbrotamálum eru leidd vitni fyrir dóm sem eru í raun engin vitni heldur er þetta fólk sem kærandi hefur sagt frá málsatvikum,“ segir Jón Steinar. Eiríkur telur að þetta séu að sjálfsögðu vitni. „Í íslenskum lögum er gert ráð fyrir því að dómarar meti óbein sönnunar- gögn eins og þegar vitni segir frá einhverju sem fórnarlambið hefur sagt þeim. Jón Steinar telur að almennt eigi ekki að taka mark á sönnunargögnum af þessu tagi. Með því er hann að þrengja þessa lagareglu,“ segir Eiríkur og segir að margoft hafi Jón Steinar sagt að dómarar eigi að dæma einung- is eftir lögunum. Ekki hefur tíðkast á Íslandi að hæstaréttardómari svari gagn- rýni sem þessari en er algengara erlendis að sögn Jóns Steinars. „Það er ekkert að mínu mati við þetta að athuga. Þetta er umræða um þýðingarmikil þjóðfélags- mál,“ segir Jón Steinar. vidirp@frettabladid.is Hyggst svara svari við gagnrýni sinni Hæstaréttardómari svaraði gagnrýni prófessors á sératkvæði hans í dómsmáli. Dómarar hafa ekki gert það hingað til. Prófessorinn hyggst svara til baka. Dóm- arinn segir ekki eiga að beita öðruvísi sönnunarfærslu í kynferðisbrotamálum. HÆSTIRÉTTUR Fjórir af fimm dómurum Hæstaréttar vildu sakfella af báðum ákæru- liðum en Jón Steinar bara af öðrum þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EIRÍKUR TÓMASSON JÓN STEINAR GUNNLAUGS- SON Í STUTTU MÁLI ■ Dómur gengur í málinu 20. okt- óber 2007. Fjórir dómarar af fimm sakfella mann af öllum ákærulið- um fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sambýliskonu sinnar. Jón Steinar skilar inn sératkvæði. ■ Eiríkur Tómasson gagnrýnir sér- atkvæði Jóns Steinars í afmælisriti Úlfljóts árið 2007. ■ Jón Steinar svarar gagnrýni Eiríks í Tímariti Lögréttu. Dómari hefur aldrei gert það áður hérlendis. ÚR SÉRATKVÆÐI JÓNS STEINARS „Ákærði hefur neitað sök. Sam- kvæmt 2. mgr. 70. gr. stjórnar- skrárinnar skal hver sá sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð.“ „[Vitnisburðurinn] felur aðeins í sér endursögn á frásögn annars manns og skiptir því ekki máli um sönnun sakargiftanna.“ „Með vísan til alls þess sem hér hefur verið rakið tel ég ósannað að ákærði hafi gerst sekur um þau brot sem hann er sakaður um í 1. og 2. lið ákærunnar og beri að sýkna hann af þeim.*“ *Fyrsti ákæruliður var talinn fyrndur af meirihluta Hæstaréttar og því var hann ekki álitaefni. Jón Steinar telur að almennt eigi ekki að taka mark á sönnunargögnum af þessu tagi. Með því er hann að þrengja þessa lagareglu. EIRÍKUR TÓMASSON LAGAPRÓFESSOR SKIPULAGSMÁL „Með þessu er verið að minnka atvinnuhúsnæðislóðir fyrir íbúðir. Með þessu er verið að blanda byggðinni á Kársnesi,“ segir Þór Jónsson, upplýsingafull- trúi Kópavogsbæjar, um nýjar hug- myndir að skipulagi á Kársnesi sem kynntar voru í fyrrakvöld. Hugmyndirnar gera ráð fyrir að pláss fyrir atvinnu- og þjónustu- húsnæði muni minnka um 9.500 fermetra en íbúðum muni fjölga um 736. Tillögurnar gera jafnframt ráð fyrir að bílum fjölgi úr 9.000 í allt að 14.000. „Sá fjöldi er um 80 pró- sent af flutningsgetu brautarinnar en gæti farið niður í 11.000 ef hægt væri að vera með vegtengingu við Reykjavík,“ segir Þór en uppi er hugmynd um að koma fyrir ökubrú frá Kársnesi yfir í Skerjafjörðinn. Kópavogsbær dró til baka tillög- ur um skipulag á Kársnesinu í fyrra. Arna Harðardóttir sagði í samtali við Fréttablaðið á þriðju- dag að samtökunum Betri byggð hafi verið boðið að taka þátt í að mynda nýjar hugmyndir en Kópa- vogsbær hafi ekki viljað taka tillit til athugasemda þeirra. „Bæjaryfirvöld unnu hugmynd- irnar í samráði við Betri byggð. Það fólst í ítrekuðum fundum og hlustað var á athugasemdir þeirra,“ segir Þór. - vsp Fundur haldinn á þriðjudagskvöld um nýtt skipulag á Kársnesi: Atvinnuhúsnæði fyrir íbúðir HÚS VIÐ KÁRSNESBRAUT Atvinnuhús- næðislóðum mun fækka en íbúðum fjölga á Kársnesi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA AKUREYRI Ekkert aldurstakmark verður á tjaldsvæði Akureyrar um verslunarmannahelgina eins og í fyrra, þegar það var 23 ár. „Samkvæmt landslögum er átján ára aldurstakmark á tjaldsvæði, en sjálf setjum við ekki takmörk,“ segir Margrét Blöndal sem skipu- leggur hátíðina Eina með öllu. Þórgnýr Dýrfjörð, fram- kvæmdastjóri Akureyrarstofu, segir þetta sameiginlega niður- stöðu bæjaryfirvalda, skátanna og annarra hagsmunaaðila í verslun- ar- og þjónustugeiranum. „Það er neyðarráðstöfun að grípa til aldurstakmarkana. Við teljum það óþarfa núna þó að það hafi verið nauðsynlegt í fyrra eftir ástandið sem var á bíladögum þá,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar. Í ár var ekki síður slæmt ástand í kringum bíladaga og tónlistarhá- tíðina AIM festival en tæp 300 mál komu til kasta lögreglu um þá helgi og meðal annars skapaðist hættuástand þegar skoteldum var beint að lögreglu. Sigrún Björk sagði í fjölmiðlum á dögunum að ástandið hefði verið betra á tjaldsvæðunum vegna hærri aldurstakmarka. Engu síður verða engar tak- markanir um verslunarmanna- helgina nú. „Við vonum að fólk sem komi á hátíðina geti borið ábyrgð á sjálfu sér og foreldrar á börnum sínum,“ segir Sigrún. - ges Tjaldsvæði á Akureyri verða öllum opin um verslunarmannahelgina: Ekki aldurstakmark á Akureyri ÚTIHÁTÍÐ Þessi sprelligosi finnur sig vel á útihátíð, eins og aðrir slíkir. Myndin er ekki tengd fréttinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.