Fréttablaðið - 10.07.2008, Blaðsíða 54
34 10. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Kafka-fræðimenn víða um heim hugsa sér
gott til glóðarinnar um þessar mundir þar
sem allt bendir til þess að senn muni líta
dagsins ljós skjöl sem rithöfundurinn lét
eftir sig þegar hann lést úr berklum árið
1924 og hafa ekki verið aðgengileg síðan.
Kafka var aðeins 41 árs þegar hann lést, en
hann lét vini sínum, Max Brod, eftir allar
eigur sínar. Þrátt fyrir að Kafka hafi skilið
eftir mjög skýr fyrirmæli um að handrit sín
skyldu brennd að sér látnum gerði Brod
sér grein fyrir verðmæti þeirra og gekk því
gegn þessum óskum vinar síns. Brod bjó í
Prag framan af, en á árum síðari heims-
styrjaldarinnar flúði hann til Palestínu, síðar
Ísrael, og bjó þar það sem eftir lifði ævinn-
ar. Brod lést árið 1968, en hann ánafnaði
einkaritara sínum og ástkonu, Esther Hoffe,
Kafka-skjölin sem hann geymdi í lúinni
ferðatösku.
Hoffe hefur alla tíð síðan neitað að
láta skjölin af hendi og látið öll rök um
menningarlegt gildi þeirra sér sem vind um
eyru þjóta. Hún lést á dögunum, 101 árs
að aldri, og eru örlög Kafka-skjalanna því
nú í höndum dætra hennar, en yfirvöld í
Tel Avív hafa gefið fjölmiðlum til kynna að
dæturnar séu samningsfúsari en móðirin.
Margir fræðimenn óttast að ástand
skjalanna sé afar bágborið þar sem þau
hafa verið geymd á heimili Hoffe í Tel
Avív í fjörutíu ár, en í borginni er raka- og
hitastig almennt mjög hátt og umhverfið
því óvinveitt gömlum og viðkvæmum
pappírum. Að auki hélt Hoffe fjöldann
allan af hundum og köttum sem gætu vel
hafa gert ástand pappíranna enn verra.
Því bíða Kafka-aðdáendur um allan heim
nú spenntir fregna af frelsun skjalanna og
ástandi þeirra, enda er aldrei að vita hvaða
gullmolar gætu leynst í bunkanum.
- vþ
Skjöl Kafka koma í ljós
FRANZ KAFKA Fræðimenn mega vart vart vatni
halda yfir tilhugsuninni um að komast í skjöl hans
og handrit.
Píanóleikaranir knáu Arnhildur
Valgarðsdóttir og Ástríður Har-
aldsdóttir munu leika fjórhent á
píanó á Gljúfrasteini næstkom-
andi sunnudag kl. 16. Á efnis-
skránni eru verk eftir Grieg,
Brahms, Rubinstein og íslenska
tónskáldið Hildigunni Rúnarsdótt-
ur, en hún samdi verk sitt, Sjóræn-
ingjapolka, sérstaklega fyrir þær
Arnhildi og Ástríði.
Arnhildur og Ástríður hófu að
spila saman er þær spiluðu undir
fjórhent á píanó hjá kvennakórn-
um Vox feminae þegar kórinn
flutti Liebesliederwalzer árið
2002. Síðan hafa þær leikið saman
fjórhent við ýmis tækifæri; þær
hafa meðal annars tvisvar komið
fram á kennaratónleikum Suzuki-
tónlistarskólans í Reykjavík og
haldið tónleika fyrir nemendur í
Norræna húsinu. Rétt er að vekja
athygli á því að á sunnudag er hinn
íslenski safnadagur og af þeim
sökum er ókeypis á tónleikana og
safnið allan daginn.
- vþ
Fjórhent á Gljúfrasteini
ARNHILDUR VALGARÐSDÓTTIR OG ÁSTRÍÐUR HARALDSDÓTTIR Þær leika fjórhent á
píanó, geri aðrir betur.
BAKPOKAR
Miki› úrval af bakpokum
frá Karrimor og Aztec
Sumari› er tíminn...
SÓLGLERAUGU
Ver› kr. 2.995 HÖFU‹KLÚTAR
kr. 1.395
ALPARNIR
Íslensku
Faxafeni 8 ¥ 108 Reykjav k ¥ S mi 534 2727 ¥ e-mail : alparnir@alparnir. is ¥ www.alparnir. is
GÖNGUBUXUR
Ver› frá kr. 6.995
Stær›i
r 42-48
Kr. 19.9
95
Stær›i
r 36-43
Kr. 18.9
95
Stær›i
r 36-48
Kr. 17.9
95
Frábær
t ver› á
göngu
skóm
MIKI‹ ÚRVAL AF:
- POTTASETTUM
-PRÍMUSUM
-D†NUM
OG Ö‹RUM FYLGIHLUTUM
Í FER‹ALAGI‹
STRETCH JAKKAR
Ver› frá 12.995
kr. 3.995
kr. 4.995
BARNAPOKI
100 cm
KRAKKAPOKI
130 cm
Frá kr. 6.995
FULLOR‹INSPOKI
Frábær ver›, frábær kaup...
CORDOBA
5 manna tjald, Kr. 25.995
6 manna tjald, Kr. 19.995
Tjöldin a› klárast...
Tilbo›
Panther 60 - 70L
Ver› frá 16.995
*Flug aðra leiðina með sköttum.
Í Shaftesbury Theatre er sæti
fyrir þig. Ítalskur meistara-
kokkur við Duke Street hefur
lagt á borð fyrir þig. Það er
beðið eftir þér í Notting Hill.
Safnaðu
Vildarpunktum Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
Komdu til London, í helgarferð eða í
sumarleyfi. Lífvörður drottningar hefur æ
vaktaskipti síðan á 19. öld og menn ski
ekkert í hvers vegna þú skulir ekki hafa
látið sjá þig ennþá.
M
A
D
R
ID
B
A
R
C
E
LO
N
A
PARÍS
LONDO
N
MANCHESTER
GLASGOW
MÍLANÓ
AMSTERDAM
MÜNCHE
FRANKFURT
BERLÍN
KAUPMANNAHÖFN
BERGEN
GAUTABORG
OSLÓ
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
HA
LI
FA
X
BO
ST
ON
OR
LAN
DO
MINN
EAPOL
IS – ST. P
AUL
TOR
ONT
O
NE
W
YO
RK
REYKJAVÍK
AKUREYRI
Kl. 17
Breski myndlistarmaðurinn
Hamish Fulton opnar sýningu sína í
Gallerí i8, Klapparstíg 33, í dag kl.
17. Á sýningunni má sjá verk sem
Fulton hefur unnið í tengslum við
gönguferð sína um Ísland nú í lok
júní og byrjun júlí, en Fulton hefur
áður gengið um fjölmörg lönd og
unnið texta og myndir út frá
gönguferðum sínum.
Borgarbókasafnið í Reykjavík
hefur um nokkurra ára bil boðið
borgarbúum og nærsveitamönn-
um upp á kvöldgöngur með bók-
menntalegu ívafi. Þá hefur safn-
ið bætt við og leggur í
gönguferðir fyrir enskumæl-
andi og enskuskiljandi gesti
síðan 2003 í júlí og ágústmánuði.
Eru göngurnar vikulega á
fimmtudagskvöldum og lagt upp
frá aðalsafninu í Grófinni. Mark-
miðið er að kynna íslenskar bók-
menntir fyrir erlendum göngu-
gestum, hvort sem þeir eru
ferðamenn eða búsettir hér á
landi. Göngurnar eru framlag
Borgarbókasafnins til menning-
arlegrar ferðaþjónustu, með
sérstakri áherslu á að kynna
borgina í ljósi bókmennta og
sögu.
Alltaf er um sömu göngu að
ræða, þ.e. hvert sumar er dag-
skrá göngunnar eins frá viku til
viku. Tekur gangan um eina og
hálfa klukkustund. Leiðsögu-
maður er Úlfhildur Dagsdóttir
bókmenntafræðingur og með
henni er bandarískur leikari
sem búsettur er á Íslandi, Dar-
ren Foreman, en hann fer með
textana sem kynntir eru í göng-
unni. Gestgjafar hér á landi ættu
að benda gestum sínum á þessa
vikulegu dægrastyttingu sem
opnar gestkomandi nýjan glugga
og sýn í samfélagið hér við Vík-
ina. - pbb
Gönguferðir á ensku
MENNING Úlfhildur Dagsdóttir leiðir
erlenda gesti um Kvosina í Reykjavík og
kynnir þeim bókmenntaarfinn á ensku.