Fréttablaðið - 10.07.2008, Blaðsíða 40
10. JÚLÍ 2008 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● suðurland
Núpsstaður er vestan Skeiðar-
ársands í um 370 kílómetra fjar-
lægð frá Reykjavík. Þar eru
gömul bæjarhús og þykir bæna-
húsið einna merkilegast, sem er
eitt af örfáum torfkirkjum sem
eru ennþá til á Íslandi. Það er
að stofni til frá 17. öld og er nú í
umsjá þjóðminjavarðar.
Þjóðminjasafnið hóf vinnu við
varðveislu muna í gömlu hús-
unum við Núpsstað árið 2006 og
munu þeir verða gerðir upp á
næstu árum.
Fyrir ofan bæinn á Núpsstað er
hrikalegt hamrabelti sem mynd-
ar turna og alls konar spírur sem
gnæfa upp í loft.
Einn af þessum dröngum kall-
ast Hella og segir sagan að hann
muni einhvern tíma hrynja yfir
bæinn á Núpsstað.
Þess má geta að bændur sem
bjuggu á Núpsstað hér á öldum
áður fylgdu ferðamönnum yfir
vötnin og sandinn þegar farið var
yfir hann á hestum.
Heimildir: www.nat.is, www.
klaustur.is og www.south.is.
- mmf
Torfkirkjan á Núpsstað
Hugmyndir eru uppi um að setja
á laggirnar bátasafn í Þorláks-
höfn. Menningarnefnd Ölfuss
hafa borist tilboð vegna hönnun-
ar þess. Bæjarstjórn tók fyrir er-
indi frá nefndinni í júlíbyrjun, þar
sem óskað var eftir áframhaldandi
vinnu við undirbúning safnsins.
„Þetta er safn báta sem Þjóð-
minjasafnið á og liggja við Vest-
urvör í Kópavogi og eru í geymslu
þar. Þar liggja bátarnir raunveru-
lega í niðurníðslu. Við vorum að
bjóða okkur fram til að leysa þetta
mál með Þjóðminjasafninu og rík-
inu,“ segir Ólafur Áki Ragnarsson,
bæjarstjóri Ölfuss.
„Þetta eru gamlir bátar sem
Þjóðminjasafnið er búið að safna
saman frá um 1800. Við erum að
bjóðast til að gera bátana upp og
koma þeim í sýningarhæft ástand,
en við gerum það ekki nema ríkið
komi að því, því bátasafnið er auð-
vitað hluti af Þjóðminjasafninu.“
Ólaf Áka dreymir um að hafa
safnið í Þorlákshöfn. „Þorlákshöfn
er byggð í kringum sjávarútveg
og því dæmigert sjávarþorp. Ég
tel að bátasafnið eigi vel heima á
Þorlákshöfn.“ - stp
Bátasafn opnað
í Þorlákshöfn
Ölfushreppur hefur boðist til að gera
bátana upp og koma þeim í sýningar-
hæft ástand. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Norður-Vík var eitt sinn reisulegt
býli en þjónar nú hlutverki far-
fuglaheimilis í Vík í Mýrdal sem
kallast Norður-Vík.
Húsið er stórt og reisulegt
og stendur ofarlega í Norður-
Víkurtúni rétt norðan þorpsins.
Þaðan er fallegt útsýni yfir byggð-
ina og hafið. Hægt er að fá bæði
uppbúin rúm eða svefnpokapláss
og morgunmat. Annars er gesta-
eldhús þar sem gestir geta eldað
sjálfir og setustofa sem þeir hafa
aðgang að.
Stutt er í alla þjónustu og hefur
farfuglaheimilið hlotið góða dóma
víða á netinu fyrir góða þjónustu
og sanngjarnt verðlag.
Í Vík og nágrenni eru mörg
skemmtileg svæði og náttúruperl-
ur sem vert er að skoða. - hs
Notalegt í
Norður-Vík
Norður-Vík er reisulegt hús. MYND/MICHI.F
Bænahúsið er
eitt af fáum
torfkirkjum
sem enn eru
til á Íslandi.
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
Hoppaðu upp í næstu rútu Kynnisferða og skelltu þér
í ógleymanlega ævintýraferð í Þórsmörk. Upplýsingar um
brottfararstaði og tíma má finna á www.re.is. Á vegum
Kynnisferða eru áætlunar- og hópferðir í Þórsmörk.
Auk þess bjóða Kynnisferðir upp á leiðsögn, gistingu,
léttar veitingar og veisluþjónustu. Skildu bílinn eftir
og komdu með okkur í Þórsmörk.
Þórsmörk er ein af fegurstu náttúruperlum
Íslands umlukin fjöllum, jöklum og jökulám.
Skógi vaxið landsvæðið býður upp á
einstaka veðursæld.
ÞÚ KEMST ÞANGAÐ
MEÐ OKKUR!
SKEMMTILEGAR SUMARFERÐIR Í ÞÓRSMÖRK
BSÍ / 101 Reykjavík / Sími 562-1011 / main@re.is / www.re.is
Ferðir daglega 15/6-14/9
Hópferðir eftir pöntunum
Frábær gistiaðstaða og þjónusta í Húsadal í Þórsmörk.
Ferðir fyrir Íslendinga
í einstaka náttúruparadís
SUMARFERÐIR
Í ÞÓRSMÖRK